Al-Qaida leiðtogi gripinn í Írak 8. janúar 2005 00:01
Einn af meginleiðtogum al-Qaida í Írak, Abu Ahmed, er í haldi herveldanna í Írak. Bandaríkjamenn líta á þetta sem sigur, en hafa sent fulltrúa til Íraks til að kanna ástand hersveita þar. Bandaríkjamenn leggja mikla áherslu á að uppræta sveitir al-Qaida þar, einkum að ná höfuðpaurnum Abu Musab al-Zarqawi. Abu Ahmed er sagður hafa stýrt hryðjuverkaárásum í borginni Mósúl, þar sem róstur hafa verið undanfarið. Í kjölfar þess að hann náðist tókst að handsaman annan af leiðtogum al-Qaida í Írak, Abu Marwan. Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur skipað fyrrverandi hershöfðingja í Bandaríkjaher, Gary Luck, til að taka hersveitir í Írak, fjölda þeirra og þjálfun írakskra sveita til nákvæmrar skoðunar. Þetta er gert í kjölfar gagnrýni þess efnis að of fáar hersveitir séu í landinu og þær séu illa búnar til að takast á við uppreisnarmenn og skæruliða, sem virðist vaxa ásmegin. Luck hershöfðingi var áður yfirmaður bandaríska heraflans í Suður-Kóreu og ráðgjafi herforingjaráðsins. Hann á að skila Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra skýrslu um ástandið hið fyrsta. Ein þeirra leiða sem valin hefur verið til að klekkja á uppreisnarmönnum er að fangelsa þá. Margir þeirra flokkast sem erlendir bardagamenn, sem Bandaríkjamenn fullyrða að séu ekki stríðsfangar og njóti þar af leiðandi ekki verndarinnar sem Genfarsáttmálarnir veita. New York Times greinir frá því í dag að erlendum bardagamönnum í haldi Bandaríkjahers hafi fjölgað úr 140 fyrir áhlaupið á Fallujah í síðasta mánuði í 325 nú. Margir þessara fanga eru sagðir tengjast al-Qaida og hugsanlegt er að þeir verði fluttir úr landi. Bandarísk yfirvöld eiga nú þegar í nokkrum vanda með fanga í Guantanamo-herstöðinni á Kúbu og hafa sætt harðri gagnrýni vegna meðferðar þeirra.
Erlent Fréttir Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Fleiri fréttir Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent