Bjóðast til að ná í geimfarana 1. ágúst 2005 00:01 "
Ef við vinnum mjög hratt getum við flutt geimfarana níu til jarðar í janúar eða febrúar með þremur Soyuz-geimförum," sagði Nikolai Sevastyanov, yfirmaður RKK Energia, rússnesks geimvísindafyrirtækis í ríkiseigu. Hann segir að telji Bandaríkjamenn ekki óhætt að fljúga geimferjunni Discovery til jarðar geti Rússar séð um að bjarga geimförunum úr himingeimnum. Það yrði reyndar ekki auðunnið verk fyrir Rússana að sækja geimfarana níu, sjö um borð í Discovery og tvo í alþjóðlegu geimstöðinni. Rússarnir þyrftu að byggja geimförin því þau eru ekki tilbúin núna. Geimförin sem Sevastyanov vill nota eru af gerðinni Soyuz sem leit fyrst dagsins ljós á sjöunda áratug síðustu aldar. Þau eru frábrugðin bandarísku geimferjunum að því leyti að þau geta ekki lent á flugvöllum heldur svífa þau til jarðar og eru því einnota. Að auki eru þau mjög þröng og geimfararnir gætu hvorki hreyft legg né lið meðan á flugi Soyuz stendur. Þó að hugmyndin þyki óraunhæf, geimfararnir hafa hvorki mat né vatn til svo langrar dvalar úti í geimnum, er hún til marks um það sjálfstraust sem rússneskir geimvísindamenn hafa endurheimt á ný síðustu árin. Í hálft þriðja ár eftir að Columbia sprakk á leið til jarðar sáu Rússar alfarið um flug til og frá alþjóðlegu geimstöðinni. Sérfræðingar bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA reyna nú að meta hversu alvarlegar skemmdirnar sem urðu á Discovery í flugtaki eru. Einangrunarbútar sem rifnuðu af sínum stað hanga utan á geimferjunni og kann að fara svo að gera verði við þær áður en reynt verður að fljúga geimferjunni til jarðar. Það yrði þá í fyrsta skipti sem geimfarar yrðu að framkvæma slíka viðgerð á neðri hluta geimferju úti í geimnum. Sérfræðingar stofnunarinnar voru ekki á eitt sáttir um hvort gera þyrfti við skemmdirnar eða hvort óhætt væri að fljúga Discovery til jarðar án viðgerðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Sjá meira