Erlent

Fjórmenningar neita að hafa skipulagt hryðjuverk

Fjórmenningarnir sem eru í haldi lögreglunnar í Danmörku, vegna gruns um að þeir hafi ætlað að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu á næstunni, neita allir sök. Þá segja sænskir fjölmiðlar að átján ára Svíi hafi verið handtekinn í Sarajevó í síðustu viku, grunaður um að hafa ætlað að gera þar sjálfsmorðsárás.

Mennirnir búa allir á höfuðborgarsvæðinu í Danmörku, og voru handteknir í íbúðum sínum í Kaupmannahöfn, Frederiksberg og Brøndby. Lögreglan handtók alls tuttugu og fimm manns í áhlaupinu í gær, og voru fjórmenningarnir úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald.

Þeir eru grunaðir um að hafa ætlað að gera hryðjuverkaárásir á næstunni einhversstaðar í Evrópu. Lögreglan segist ekki hafa þorað að bíða með að handtaka mennina, eftir að hafa fengið upplýsingar um málið frá dönsku leyniþjónustunni. Mennirnir voru handteknir í kjölfar aðgerða lögreglunnar í Sarajevó í Bosníu fyrir rúmri viku. Þar fundust við húsleit sprengiefni og vopn ætluð til árása úr launsátri. Danska leyniþjónustan fékk upplýsingar frá yfirvöldjum í Sarajevó um að tengsl væru milli hópanna.

Fjórmenningarnir sem voru handteknir í Danmörku í gær, eru sextán til tuttugu ára, allir af mið-austurlenskum uppruna búsettir í Danmörku. A.m.k. einn þeirra er með danskan ríkisborgararétt.

Danska lögreglan hefur staðfest fréttir sænskra fjölmiðla um að tengsl séu milli mannanna fjögurra og átján ára Svía sem var handtekinn fyrir hryðjuverkastarfsemi í Sarajevó í Bosníu.

Sænski blaðið Expressen segir átján ára Svíann hafa ætlað sér að gera sjálfsmorðsáraa á breska eða bandaríska sendiráðið í Sarajevó, en það vill danska lögreglan ekki staðfesta við fjölmiðla.

Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, segir við sjónvarpsstöðina TV 2 að málið sé alvarlegt, honum sé brugðið yfir því einu að grundvöllur hafi verið til að úrskurða mennina í varðhald.

Dómsmálaráðherra landsins, Lene Espersen, segist vilja skoða það nánar að danska leyniþjónustan, fái greiðari aðgang að upplýsingum, t.d. farþegalista flugfélaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×