Erlent

Njósnað um Benedikt páfa

Austur-þýska leyniþjónustan sáluga, Stasi, áleit Joseph Ratzinger kardinála, sem nú er Benedikt páfi sextándi, einn hættulegasta gagnrýnanda kommúnisma og njósnaði um hann frá árinu 1974. Þetta kemur fram í þýska tímaritinu Bild am Sonntag sem birti nýlega gögn sem sýna að Stasi fylgdist náið með Ratzinger í mörg ár. Þar kemur fram að vinátta Ratzingers við hinn pólska Jóhannes Pál páfa annan var álitin mjög hættuleg. Talið var að Ratzinger, sem fæddur er í Bæjaralandi, gæti haft töluverð áhrif á andstöðu gegn kommúnisma innan kaþólsku kirkjunnar. Í skjölunum kemur einnig fram að Stasi reyndi árið 1981 að finna einhverjar vísbendingar um að Ratzinger hefði verið viðriðinn Nasistaflokkinn, en vitað er að Ratzinger var félagi í Hitleræskunni. Sú leit bar þó engan árangur. Bild am Sonntag heldur því fram að Benedikt páfi sjálfur hafi leyft birtingu á skjölunum en yfirvöld í Vatikaninu hafa ekki viljað gefa yfirlýsingu vegna þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×