Erlent

Aðildarviðræður í uppnámi

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins héldu neyðarfund í gær vegna aðildarviðræðna sambandsins við Tyrkland sem hefjast eiga í dag. Vegna andstöðu nokkurra aðildarlanda ESB er ekki ljóst hvort viðræðurnar geti hafist. Yfirvöld í Tyklandi hafa hótað að slíta viðræðum vegna tillögu Austurríkismanna sem vilja að Tyrkir geri samstarfssamning við ESB í stað þess að fá fulla aðild. Forsætisráðherra Tyrkja, Recep Tayyip Erdogan, sagði af þessu tilefni að annað hvort yrði sýndur pólitískur þroski og Evrópusambandið yrði gert að alþjóðlegu afli, eða það myndi enda sem kristilegur klúbbur. Utanríkisráðherra Breta, Jack Straw, sagði í gær að hann vildi að aðildarviðræðurnar færu fram því að öðrum kosti væri hætta á klofningi milli kristinna og íslamskra þjóða. Búist er við að aðildarviðræður ESB við Tyrki geti tekið allt að tíu ár en Tyrkir þurfa að taka upp fjölda laga og reglugerða sambandsins. Sextíu þúsund stuðningsmenn þjóðernisflokksins MHP mótmæltu aðildinni í höfuðborginni Ankara í gær en þrátt fyrir það sýna kannanir að meirihluti Tyrkja vill aðild að sambandinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×