Erlent

Bilið milli fylkinga minnkar

Heldur hefur dregið saman með kristilegum demókrötum og jafnaðarmönnum í Þýskalandi eftir sjónvarpskappræður leiðtoga flokkanna á sunnudagskvöld. Gerhard Schröder, núverandi kanslari, var almennt talinn hafa staðið sig heldur betur í kappræðunum en á móti kemur að Angela Merkel stóð sig samt betur en flestir höfðu átt von á. Þeir tveir flokkar sem hyggjast mynda miðju-hægristjórn fá samtals 48 prósenta fylgi í skoðanakönnunum eftir kappræðurnar, sem ekki er víst að dugi til að mynda nógu sterkan meirihluta á þingi. Þegar boðað var til kosninganna var búist við stórsigri Kristilegra demókrata en ef svo fer fram sem horfir gætu Kristilegir jafnvel þurft að mynda nokkurs konar þjóðstjórn með jafnaðarmönnum, en Merkel yrði að öllum líkindum kanslari samt sem áður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×