Leitar að lífi á Mars 8. ágúst 2005 00:01
Í dag skýtur NASA á loft tveggja tonna könnunargeimfari sem setur stefnuna á Mars með það að markmiði að safna upplýsingum sem gefa vísbendingar um hvort líf hafi getað þrifist á plánetunni. Gert er ráð fyrir að ferjan nái til Mars um miðjan marsmánuð á næsta ári og fari þá á sporbaug í kringum plánetuna og safni þaðan upplýsingum sem gagnast þegar þjarkar verða sendir til plánetunnar á komandi árum. Nú þegar eru þrjú geimför á sporbaug um rauðu plánetuna. Mars er þurr og köld pláneta og þykkar íshellur eru á skautum hennar. Vísindamenn telja hins vegar að í fyrndinni hafi plánetan ef til vill verið rakari og jafnvel hlýrri og þar hafi getað þrifist líf. Geimferjan er búin einhverjum tæknilegustu verkfærum sem send hafa verið út í geim, þar á meðal smásjármyndavél sem getur tekið skýrari myndir en nokkurn tímann áður af yfirborði plánetunnar, í sex sinnum hærri upplausn en bestu myndavélar hingað til. Þá er um borð ratsjá sem hægt er að senda niður að yfirborði plánetunnar, þar sem hún getur borað sig niður í allt að 500 metra dýpi í íshelluna og safnað gögnum. Önnur tæki geta til dæmis rakið daglegar veðurbreytingar og auðkennt ýmsar steintegundir. Eftir að hafa aflað gagna mun ferjan aðallega þjóna sem fjarskiptamiðstöð fyrir aðrar geimflaugar sem verða send til Mars, en loftnet ferjunnar er afar öflugt og getur sent um tíu sinnum meira af gögnum á mínútu en önnur för hingað til.
Erlent Fréttir Mest lesið Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Erlent Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Innlent Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Erlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Fleiri fréttir Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Sjá meira