Rússar tregir til að þiggja aðstoð 6. ágúst 2005 00:01
Rússar eru tregir til að þiggja aðstoð Bandaríkjamanna og Breta við að bjarga dvergkafbátnum sem sökk undan ströndum Kamsjatka í gær. Þeir segja svæðið yfirfullt af hernaðarleyndarmálum. Eins og þegar kafbáturinn Kursk fórst fyrir fimm árum, með 118 manna áhöfn virðist nú lítið að marka það sem Rússar segja. Dvergkafbáturinn AS-28 sökk á fimmtudag eftir að dræsur festust í skrúfu hans. Í fyrstu var sagt að sjö manna áhöfnin hefði nóg loft í fimm daga, nú er sagt að það endist hugsanlega til morguns. Kafbáturinn liggur á 190 metra dýpi, sem er alltof djúpt til þess að áhöfnin geti yfirgefið hann og synt upp á yfirborðið. Bæði Bretar og Bandaríkjamenn hafa sent ómannaða, fjarstýrða björgunarkafbáta flugleiðis til Kamsjatka en Rússar eru tregir til að leyfa þeim að kafa niður að AS-28. Undan ströndum skagans eru allskonar hernaðarmannvirki, hlustunar og fjarskiptastöðvar og þar fram eftir götunum. „Það væri allt eins hægt að bjóða öllu NATO á staðinn,“ sagði rússneskur flotaforingi á eftirlaunum. Næst æðsti yfirmaður flotans tók í sama streng og sagði að það væri engin þörf fyrir hjálp erlendis frá enn þá. Rússar væru að byrja aðra tilraun til þess að lyfta AS-28 upp á yfirborðið. Vladímír Pútín forseti er þó vel minnugur þeirrar reiði sem gaus upp í landinu þegar björgun áhafnarinnar á Kursk var klúðrað vegna seinagangs flotans. Hann hefur því sent varnarmálaráðherra landsins til Kamsjatka til þess að stjórna björgunaraðgerðunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Innlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Fleiri fréttir Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Sjá meira