Krefja CIA um svör 17. nóvember 2005 06:00 Á Palma-flugvelli. Yfirvöld á Spáni hafa fyrirskipað rannsókn á lendingum meintra fangaflutningavéla CIA á flugvellinum á Mallorca.
Yfirvöld í hinum ýmsu Evrópuríkjum þrýsta nú á Bandaríkjastjórn að svara fyrir meint fangaflug á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA um lofthelgi og flugvelli viðkomandi landa. Talsmaður norska utanríkisríkisráðuneytisins sagði í gær að bandaríska sendiráðið í Noregi hefði neitað því að einkaþota, sem lenti á Óslóarflugvelli í júlí síðastliðnum, hefði verið í leynilegum erindagjörðum fyrir CIA eða aðra bandaríska stjórnarstofnun. Þotan, með einkennisnúmerið N50B, er á lista sem bandarískir fjölmiðlar hafa birt yfir flugvélar sem sagðar eru oft notaðar af CIA til að flytja fanga sem bandarísk yfirvöld hafa grunaða um aðild að hryðjuverkum eða íslömskum öfgasamtökum. Sama þota, sem er af gerðinni Gulfstream, er einnig sögð hafa átt viðkomu á Keflavíkurflugvelli. Deilt var um hið meinta fangaflug um sænska lögsögu á sænska þinginu í fyrradag. Lars Ohly, formaður Vinstriflokksins, skoraði á ríkisstjórn Görans Persson að upplýsa allt sem henni er kunnugt um ferðir umræddra flugvéla um sænska flugvelli og lofthelgi. Talsmaður stjórnarinnar, Lars Danielsson, sagði hins vegar að stjórnin vissi ekkert um flug á vegum CIA í Svíþjóð. Sænska TT-fréttastofan hafði áður greint frá því að a.m.k. tvær flugvélar sem talið væri að hefðu verið notaðar til fangaflugs fyrir CIA hefðu lent á sænskum flugvöllum á síðustu þremur árum. Yfirvöld á Spáni hafa hafið formlega rannsókn á því hvað hæft er í fullyrðingum um að flugvélar í slíkum leynilegum fangaflutningum á vegum CIA hafi ítrekað lent á spænskum flugvöllum. José Antonio Alonso, innanríkisráðherra Spánar, tilkynnti þetta á þriðjudag. Hann sagði í sjónvarpsviðtali að reyndust þessar frásagnir réttar myndi það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir samskiptin við Bandaríkin. Að sögn spænskra fjölmiðla hefur CIA einkum notað flugvöllinn á Mallorca til millilendinga. Slíkar lendingar hafi verið að minnsta kosti tíu á tímabilinu frá janúar 2004 til janúar síðastliðins. Þingmenn tveggja flokka á þinginu í Portúgal kröfðu í gær ríkisstjórnina svara vegna frétta um að tvær meintar CIA-fangaflutningavélar hefðu sést á flugvöllunum í Porto og Tires við Lissabon. Getgátur um að CIA reki leynileg fangelsi í Austur-Evrópu og flytji fanga með leynd fram og aftur um evrópska lofthelgi voru líka ræddar á Evrópuþinginu í vikunni. Skorað var á framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að rannsaka ásakanirnar. Franco Frattini, sem fer með dómsmál í framkvæmdastjórninni, tjáði þinginu að það væri komið undir ríkisstjórnum hvers aðildarríkis fyrir sig að rannsaka málið.
Erlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Fleiri fréttir Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Sjá meira