Cameron segist vera framtíðin 8. desember 2005 03:30 Fullur sjálfstrausts. David Cameron virtist fullur sjálfstrausts er hann mælti fyrir stjórnarandstöðunni í spurningatíma forsætisráðherra í þinginu í gær.
David Cameron, nýkjörinn leiðtogi breska Íhaldsflokksins, mætti Tony Blair í vikulegum spurningatíma forsætisráðherrans á þinginu í Westminster í gær. Hin nýja vonarstjarna íhaldsmanna reyndi við það tækifæri að varpa upp þeirri ímynd af sér að hann væri ásjóna pólitískrar framtíðar Bretlands en Tony Blair maður liðins tíma. Þingmenn íhaldsflokksins létu óspart í sér heyra þegar Cameron sté í pontu og hann glotti þegar Blair óskaði honum til hamingju með sigurinn í leiðtogakjörinu. Sá sigur varð ljós á þriðjudag er atkvæði í póstkosningu almennra flokksfélaga Íhaldsflokksins höfðu verið talin. Nýi íhaldsleiðtoginn vatt sér beint í að ota spjótum að Blair; lýsti hann sjálfum sér sem ásýnd ungs og bjartsýns Bretlands en Blair sem stjórnmálamanni hvers tími væri liðinn. "Hann var framtíðin einu sinni," sagði Cameron um Blair. Þessi hálftímalanga mælskuglíma var fyrsta áberandi prófraunin á það hvort Cameron stæði undir þeim væntingum sem flokksmenn hans binda við hann. Cameron er fimmti maðurinn sem fer fyrir Íhaldsflokknum síðan hann vann síðast kosningar árið 1992. Cameron er 39 ára, tveimur árum yngri en Blair var þegar hann tók við forystu Verkamannaflokksins á sínum tíma. Vonast flokksmenn hans til að ungur aldur nýja flokksforingjans, metnaður hans, mælska og miðjusæknar stjórnmálaáherslur eigi eftir að hjálpa flokknum til valda á ný eftir næstu kosningar sem væntanlega fara fram árið 2009.
Erlent Mest lesið Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Ofbeldi í garð fangavarða eykst Innlent Dettifoss komið til hafnar Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Sjá meira