Ísraelsstjórn fellur 21. nóvember 2005 04:00
Verkamannaflokkurinn í Ísrael samþykkti í gær á flokksþingi að slíta stjórnarsamstarfi við Ariel Sharon og Likud-flokkinn. Félagar í Verkamannaflokknum fóru þar að vilja nýs leiðtoga flokksins, Amirs Peretz, sem segir stjórnina hafa aukið fátækt í landinu. Kosningar áttu að fara næst fram í nóvember á næsta ári, en nú verður þeim líklega flýtt þangað til í mars. Sjálfur er Sharon sagður velta því mjög fyrir sér að yfirgefa Likud-flokkinn, sem hann átti þátt í að stofna árið 1973. Hann hefur ekki gefið frá sér neina yfirlýsingu um þetta, en ýmsir stjórnmálamenn og fjölmiðlar í Ísrael telja töluverðar líkur á því að hann muni stofna nýjan flokk eftir klofning í Likud út af brottflutningi hersins frá Gazasvæðinu. Láti hann verða af því mun pólitískt landslag verða gjörbreytt þegar til kosninga kemur. Þar að auki eru Palestínumenn núna að farnir búa sig undir kosningar, sem verða haldnar 25. janúar. Hamas-hreyfingin, sem ber ábyrgð á ýmsum ofbeldisverkum, býður í fyrsta sinn fram til kosninga og gæti árangur hennar í grafið undan stjórn Mahmoud Abbas, leiðtoga Fatah-hreyfingarinnar sem til þessa hefur farið með völdin í Palestínu. Peretz, sem hefur um langa hríð verið harðskeyttur verkalýðsleiðtogi, kennir bæði Ariel Sharon og Benjamin Netanjahú, fyrrverandi fjármálaráðherra stjórnarinnar, um að fátækt hafi aukist og hinir fátæku hafi verið "auðmýktir". Varðandi deilur Ísraelsmanna og Palestínumanna sagðist Peretz fylgja því að sameinuð Jerúsalem verði höfuðborg Ísraels, auk þess sem hann segist andvígur því að leyfa palestínskum flóttamönnum að snúa aftur til fyrri heimkynna sinna í Ísrael. Hann sagðist einnig líta svo á að sjálfstætt ríki Palestínumanna verði bæði Ísraelsmönnum og Palestínumönnum í hag.
Erlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira