Efnahagsumbætur lykilatriði 12. október 2005 00:01
Viðræður um myndun samsteypustjórnar tveggja stærstu flokka Þýskalands munu fara út um þúfur takist ekki að koma trúverðugri aðgerðaáætlun um víðtækar efnahagsumbætur inn í stjórnarsáttmálann. Þetta sagði einn forystumanna kristilegra demókrata, flokks Angelu Merkel væntanlegs kanslara, í gær. Gerhard Schröder, fráfarandi kanslari, tók af skarið um það í gær að hann muni ekki verða í neinu hlutverki í hinni væntanlegu ríkisstjórn. Að Schröder eftirléti Merkel kanslarastólinn í samsteypustjórn flokka þeirra var forsenda fyrir samkomulagi sem flokkarnir náðu í byrjun vikunnar um að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður. Jafnaðarmenn tryggðu sér hins vegar í staðinn mörg lykilráðuneyti og munu stýra alls átta af fjórtán fagráðuneytum. Peter Müller, einn forystumanna CDU, sagði í blaðaviðtali að það skipti ekki máli að ráðuneyti atvinnu-, skatta- og heilbrigðismála verði á höndum jafnaðarmanna. "Það sem ræður úrslitum er það sem í raun er framkvæmt," tjáði hann Die Welt. "Umbótaþörfin á þessum sviðum er óumdeild. Ef okkur tekst ekki að ná samkomulagi um víðtækar umbætur hér yrði "stóra samsteypa" tilgangslaus." Schröder sagði á verkalýðsráðstefnu í heimabæ sínum Hannover að hann myndi ekki taka sæti í nýju stjórninni. Áður staðfesti hann þó að hann myndi taka virkan þátt í stjórnarmyndunarviðræðunum. Hann sagði ekkert um hvað hann hygðist taka sér fyrir hendur er kanslaratíð hans lyki. >
Erlent Fréttir Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Innlent Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Erlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Innlent Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Innlent Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent Fleiri fréttir Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Sjá meira