Söguleg viðgerð í geimnum 2. ágúst 2005 00:01
Geimfararnir í geimferjunni Discovery undirbjuggu í gær sögulegan viðgerðarleiðangur sem fer fram í dag. Stephen Robinson, einn geimfaranna fer undir geimferjuna til viðgerða, en slíkt hefur ekki verið gert áður. Reyna á að fjarlægja stykki sem skaga framan úr hitahlíf á ferjunni. Ef stykkin verða ekki fjarlægð segja sérfræðingar NASA að mikil hætta sé á ofhitnun þegar geimferjan kemur aftur inn í lofthjúp jarðar. Slík ofhitnun gæti leitt til þess að Discovery springi í loft upp, líkt og geimferjan Columbia gerði. Robinson verður komið fyrir á tæplega átján metra armi, sem félagar hans stjórna innan úr geimferjunni, og færa þannig Robinson að þeim stað undir geimferjunni sem þarf að laga. Þar reynir hann að losa þau stykki sem standa út úr með handafli. Ef það virkar ekki þarf hann að nota sög sem búin var til í geimstöðinni til að saga stykkin af. Sögin var búin til úr sagarblaði, blastböndum, einangrunarlímbandi, Velcro og öðrum hlutum sem voru til taks í geimstöðinni. Á blaðamannafundi í gær sagði Robinson að þetta væri mjög vandmeðfarið verkefni, en hann treysti sér til að leysa það. Ef þessar aðferðir virka ekki, verða höfuð væntanlega lögð í bleyti og aðrar tilraunir til viðgerða gerðar á fimmtudag eða föstudag. Hlé var gert á undirbúningi leiðangursins til að ræða við George Bush, forseta Bandaríkjanna, í síma. Þar þakkaði Bush geimförunum fyrir að taka áhættu í þágu rannsókna. "Augljóslega, þegar þið undirbúið að snúa aftur, biðja margir Bandaríkjamenn fyrir öruggri heimkomu ykkar," bætti Bush við. Eileen Collins, sem fer fyrir áhöfn Discovery, svaraði því til að hún og áhöfnin öll trúðu sterklega á geimleiðangra og rannsóknir á hvað væri að finna í geimnum, og að "þau skref sem við tökum nú eru því þess virði og við viljum að allir viti það". Discovery verður við geimstöðina fram á laugardag og áætlað er að geimferjan snúi aftur til jarðar á mánudag.
Erlent Fréttir Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Sjá meira