Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 28. apríl 2026 17:26 Það hefur verið hart barist í einvígi Hauka og ÍBV. vísir/Ernir ÍBV tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn eftir 36-31 sigur á Haukum í kvöld eftir æsispennandi tvíframlengdan leik. Leikurinn byrjaði jafnt á milli liðanna þar sem hvorugu þeirra tókst að slíta sig frá hinu. ÍBV náði tveggja marka forystu á síðasta þriðjungi fyrri hálfleiks en Haukakonur svöruðu þá vel og komust yfir með einu marki. Það varði þó í skamma stund og ÍBV leiddu með einu marki þegar gengið var til búningsherbergja, 15-14. Það var allt í járnum í síðari hálfleik þar sem liðin skiptust á að taka forystuna. ÍBV virtust vera að sigla sigrinum heim á lokamínútunni en tapaður bolti í sókn ÍBV olli því að Haukar jöfnuðu. Í kjölfarið varði Sara Sif Helgadóttir síðustu sókn ÍBV og tryggði Haukum framlengdum leik. Það var allt jafnt eftir fyrstu framlengingu, 30-30. Það þurfti því að tvíframlengja leikinn en sóknarleikur Hauka var afhroð í framlengingunni og fann liðið engar lausnir. Þreyta og hátt spennustig eru líklega orsakavaldarnir. Amalie Froland varði þá víti frá Emblu Steindórsdóttur á mikilvægum tíma en meiddist í kjölfarið og eru það hrikalegar fréttir fyrir ÍBV sem eru á leiðinni í úrslitaeinvígið. Haukar köstuðu leiknum svo algjörlega frá sér í seinni hálfleik síðari framlengingarinnar og ÍBV fór því með sigur af hólmi, 36-31. Atvik leiksins Varsla Söru Sifjar á lokasekúndunum í síðari hálfleik venjulegs leiktíma tryggði Haukum framlengingu. Stjörnur og skúrkar Sandra Erlingsdóttir var markahæst hjá ÍBV með tíu mörk. Þar á eftir kom Agnes Lilja Styrmisdóttir sem átti frábæran leik fyrir Eyjakonur. Ólöf Maren Bjarnadóttir gerði afskaplega vel í innkomu sinni og endaði með 42% vörslu. Embla Steindórsdóttir var markahæst í liði Hauka með átta mörk og Rakel Oddný Guðmundsdóttir þar á eftir með sex mörk. Stemning og umgjörð Flott stemning í Eyjum og troðfull höllin. Dómarar Vel dæmdur leikur að mínu mati. Lítið sem ekkert um vafamál og svona nánast allt í teskeið. Olís-deild kvenna ÍBV Haukar