Hofstad-hópurinn fyrir rétt 6. desember 2005 02:30 Heittrúaðar í Hollandi. Hollenskar lögreglukonur hafa hér gætur á tveimur konum klæddum að sið strangtrúaðra múslima fyrir utan dómhús í Amsterdam. Þar hófst í gær réttarhald yfir fjórtán mönnum, þar á meðal morðingja hollenska kvikmyndagerðarmannsins Theo van Gogh, en þeir eru ákærðir fyrir aðild að leynifélagi herskárra múslima og að leggja á ráðin um að sýna hollenskum stjórnmálamönnum banatilræði.
Réttarhald hófst í Amsterdam í gær yfir fjórtán ungum mönnum, sem allir eru múslimar af norður-afrískum uppruna en uppaldir í Hollandi. Þeir eru ákærðir fyrir aðild að öfgasamtökum og að leggja á ráðin um að sýna hollenskum stjórnmálamönnum banatilræði. Flestir mannanna eru af marokkósku bergi brotnir en hollenskir ríkisborgarar. Hollenska lögreglan handtók mennina eftir morðið á van Gogh í nóvember í fyrra. Morðið framdi Mohamed Bouyeri en hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi í vor. Hinir mennirnir sem nú svara fyrir rétti með Bouyeri eru grunaðir um að vera meðlimir félagsskapar sem rannsóknarlögreglumenn gáfu nafnið Hofstad-hópurinn. Verjendur sakborninganna segja þá vera trúuð en saklaus ungmenni. Saksóknarar segja sakborningana hafa haft í fórum sínum afrit af bréfinu sem Bouyeri skildi eftir á líki van Gogh og leiðarvísa um hvernig framkvæma skuli íslömsk trúarmorð. Nokkrir hinna ákærðu hefðu fengið þjálfun í vopnuðum árásum í búðum öfgamanna í Pakistan. Réttarhaldið fór ekki vel af stað í gær. Fyrsta vitnið sem leitt var fyrir réttinn neitaði alfarið að svara nokkrum spurningum; vildi ekki einu sinni staðfesta hvað það héti. Dómarar sögðu vitnið, konu með klút fyrir öllu andlitinu, heita Malika Shabi. Shabi sat þögul er dómarinn A. de Boer las upp úr skýrslu lögreglu um vitnisburð hennar sem hún gaf í yfirheyrslu 30. ágúst. Þar vitnaði hún um skyndibrúðkaup sitt og eins sakborningsins, Nouriddin el Fatmi. Fatmi var handtekinn nálægt lestarstöð í Amsterdam með vélbyssu og skotfæri. Að því er haft er eftir Shabi í skýrslunni voru þau Fatmi gefin saman í stuttri og fábrotinni athöfn í lítilli íbúð í Amsterdam haustið 2004, án samþykkis eða vitundar foreldra þeirra. Enginn múslimaprestur, imam, var heldur viðstaddur. Það var Bouyeri sem brá sér í það hlutverk og tók við giftingareiðum þeirra. Shabi sagði Fatmi hafa krafist þess að þau giftust vegna þess að það væri skylda hvers múslimakarlmanns að kvænast áður en hann deyi. Þau horfðu saman á al-Kaída-áróðursmyndbönd og á brúðkaupsnóttina hefði Fatmi talað um löngun sína til að myrða Ayaan Hirsi Ali, hollensku þingkonuna sem er upprunnin í Sómalíu en hún vann með van Gogh að gerð sjónvarpsmyndarinnar Undirgefni sem fjallaði um hlutskipti múslimakvenna. Í vitnisburði Shabi segir enn fremur að Fatmi hafi sýnt henni hnífa sem hann og aðrir meðlimir hópsins hafi notað til að æfa sig í að slátra kindum samkvæmt íslömskum helgisiðum, en sömu aðferð hugðust þeir beita við að drepa fólk. Saksóknarinn Koos Plooy sagði ástæðuna fyrir þögn Shabi í vitnastúkunni kunna að vera hótunarbréf sem henni barst. Í því hafi henni verið sagt að tala ekki við lögreglu eða trúleysingja og hún áminnt um dómsdag.
Erlent Mest lesið Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Fleiri fréttir Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Sjá meira