Guðleg opinberun í Hvíta húsinu 7. október 2005 00:01
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa rökstutt innrásina í Írak og Afganistan með því að hafa fengið guðlega opinberun. Hvíta húsið vísar þessu hins vegar á bug. Í sjónvarpsþætti um stjórnmálaástandið fyrir botni Miðjarðar-hafs sem sýndur verður á BBC eftir helgi heldur Nabil Saath, fyrrverandi utanríkisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, því fram að Bush hafi sagt þeim Mahmoud Abbas, forseta heimastjórnarinnar, á fundi sumarið 2003 að Guð hafi sagt honum að berjast við hryðjuverkamenn í Afganistan og binda enda á alræðið í Írak, svo og að útvega Palestínumönnum ríki og Ísraelum öryggi. „Það veit Guð að ég ætla að gera það." Talsmenn Hvíta hússins segja hins vegar ekkert hæft í ummælunum og þau séu algerlega úr lausu lofti gripin. Hvað sem þessu líður eru --hvorki- trúarskoðanir Bush ný tíðindi né sú sýn hans að stríðið gegn hryðjuverkum sé barátta „góðs og ills". Þetta mátti glögglega heyra í ræðu hans á fimmtudagskvöldið í Washington þar sem hann -skýrði- frá því að tekist hefði að koma í veg fyrir tíu hryðjuverkaárásir al-Kaída á Vesturlöndum síðustu misseri. Þar dró hann upp einfalda mynd af íslömskum heittrúarhreyfingum sem afli staðráðnu í að koma á trúarveldi sem „teygði anga sína frá Spáni til Indónesíu".
Erlent Fréttir Mest lesið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Umferð beint um Þrengslin í dag Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Erlent Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Innlent Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Innlent Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Hundrað hjálparsamtök segja hungursneyð breiðast út um Gasa-svæðið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Ozzy Osbourne allur Hitinn víða yfir 50 stig og vatnsforðinn að þorna upp Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Ísraelar segja yfirlýsingu 28 ríkja úr takti við raunveruleikann Ríkisstjórn Bandaríkjanna og Harvard takast á fyrir dómstólum Nítján látnir eftir að herflugvél brotlenti á skólabyggingu Rússar opnir fyrir friðarviðræðum en hyggist ekki slá af kröfum sínum Hátt í sjötíu drepnir í biðröð eftir mat Ökumaðurinn skotinn af vitnum á vettvangi Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Ísrael og Sýrland hafi samið um vopnahlé Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Sjá meira