Frábær hvatning 7. október 2005 00:01
Magnús Ólafsson, einn framkvæmdastjóra Alþjóða-kjarnorkumálastofnunar IAEA, segir mikinn fögnuð hafa ríkt á meðal starfsmannanna í höfuðstöðvunum í Vín í gær eftir að fregnir bárust að stofnunin og Mohammed ElBaradei, framkvæmdastjóri hennar, hefðu hlotið friðarverðlaun Nóbels. Hann telur verðlaunin styrkja IAEA verulega í störfum sínum. „Við erum í sjöunda himni," sagði Magnús Ólafsson, hjá IAEA í gærdag. „Við fréttum þetta á sama tíma og allir aðrir. Ég var rétt að koma af fundi með ElBaradei og hann sagði okkur frá að hann hefði beðið við símann ef vera skyldi að hann fengi verðlaunin, þar sem hann var tilnefndur, en aldrei hringdi síminn. Þá kveikti hann á sjónvarpinu til að sjá hvaða kjáni myndi fá verðlaunin í þetta skipti og það var þá bara hann sjálfur". Óhætt er að segja að mikill fögnuður hafi ríkt þegar tíðindin spurðust út. „Já, þá brutust út mikil læti út í húsinu, maður heyrði hróp og óp á öllum göngum," segir Magnús en bætir því við að ekki hafi verið gefið frí af þessu tilefni. Magnús, sem hefur starfað hjá stofnuninni í fjögur ár, telur verðlaunin skipta verulegu máli. „Það er nú alltaf gott að fá klapp á bakið. Hitt er hins vegar mikilvægara að þetta gerir okkur þekktari og virtari og viðurkenningin á því að auðvelda okkur að inna störf okkar af hendi. Þetta er einfaldlega frábær hvatning."
Erlent Fréttir Mest lesið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Átta börn látin eftir skotárás Erlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Fleiri fréttir Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Sjá meira