Kvaðst saklaus af öllum ákærum 13. desember 2005 03:45 Í lögreglufylgd. Gotovina gisti í fangelsi í Haag um helgina en kom svo fyrir dómara í gær.
Ante Gotovina, Króatinn sem grunaður er um stríðsglæpi gegn Serbum árið 1995, kom í fyrsta sinn fyrir stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag í gær. Gotovina var handtekinn á Kanaríeyjum á miðvikudaginn eftir ákafa leit undanfarin ár. Starfsmenn stríðsglæpadómstólsins biðu ekki boðanna því í gær var hann leiddur fyrir réttinn og honum kynntar ákærurnar. Hann kvaðst saklaus af öllum ákæruatriðum. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa stýrt fjöldamorðum Króatíuhers í Krajina-héraði í ágúst 1995 þegar í það minnsta 150 Serbar voru stráfelldir og tugþúsundir hraktar af heimilum sínum. Handtakan er talin afar mikilvæg fyrir stríðsglæpadómstólinn, en að Bosníu-Serbunum Radovan Karadzic og Rato Mladic frátöldum var Gotovina sá maður sem rétturinn lagði mest kapp á að ná. Búist er við að þrýstingur aukist nú mjög á Serba að herða leitina að þeim Karadzic og Mladic. Í gær gerðu hermenn á vegum Atlantshafsbandalagsins í Bosníu húsleit á heimili Dragans Stajcic fyrrverandi ritstjóra sem grunaður er um að stýra hreyfingu sem gætir tvímenninganna. Í fyrradag komu tugþúsundir Króata saman í borginni Split og kröfðust lausnar Gotovina en margir samlandar hans álíta hann þjóðhetju.
Erlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Fleiri fréttir Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Sjá meira