Cameron blæs til sóknar 7. desember 2005 03:45 Sigurgleði. David Cameron fagnar úrslitunum í leiðtogakjörinu í gær ásamt eiginkonu sinni Samönthu.
David Cameron var í gær kjörinn leiðtogi breska Íhaldsflokksins. Við kjör hans binda flokksmenn vonir um að eiga betri möguleika á sigri í næstu þingkosningum, eftir að hafa tapað þrisvar í röð fyrir Verkamannaflokkinum með Tony Blair í broddi fylkingar. Cameron er 39 ára að aldri og þar með einn yngsti flokksleiðtoginn í sögu Íhaldsflokksins en hann er sá fimmti sem fer fyrir flokknum í átta ár. Hann er einkaskólagenginn sonur verðbréfamiðlara. Cameron var kokhraustur í fyrstu yfirlýsingum sínum í hinu nýja hlutverki; hann lýsti ríkisstjórn Verkamannaflokksins sem mönnum gærdagsins og hét því að koma henni frá. "Við höfum á brattann að sækja," sagði hann þó, með eiginkonuna Samönthu sér við hlið, en hún gengur með þriðja barn þeirra hjóna. "En ef við stöndum saman, ef við höfum skýra sýn á það hverju þarf að breyta ... getum við verið uppbyggileg stjórnarandstaða og við getum verið sú góða ríkisstjórn sem þetta land sárlega vantar," sagði hann. Keppinautur hans um leiðtogasætið, David Davis, fékk innan við þriðjung atkvæða í póstkosningunni sem fram fór meðal 250.000 almennra félagsmanna í flokknum. Hann tók ósigrinum með ró og lýsti Cameron tilvonandi forsætisráðherra. Verkefnið sem bíður Camerons er að reyna að endurheimta fyrri sess Íhaldsflokksins, sem hélt um stjórnartaumana í Bretlandi megnið af 20. öldinni. Margir álíta flokkinn hafa staðnað og ekki fylgt þeim breytingum sem orðið hafa á bresku þjóðfélagi. Stjórnmálaskýrendur telja nokkra áhættu í því fólgna fyrir flokkinn að velja Cameron til forystu í von um að hann sé fær um að breikka fylgi flokksins. Forréttindauppeldi hans í vel þénandi menntamannafjölskyldu og menntun í Eton og Oxford þykja síður til þess fallin að höfða til alþýðunnar. Eiginkona hans er af aðalsættum. Sem stjórnmálamaður hefur hann hins vegar sýnt að hann kann lagið á að tala til fólks og pólitískar áherslur hans þykja miðjusæknar. "Við verðum að breytast til að fólk geti treyst okkur," sagði hann um eigin flokk. Til dæmis væri það forgangsmál að fjölga konum í honum.
Erlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Sjá meira