Erlent

Lögmenn Saddams yfirgáfu dómsalinn

Fúkyrðaflaumur. Hálfbræðurnir Saddam Hussein og Barzan Ibrahim sögðu dómurunum til syndanna í gær.
Fúkyrðaflaumur. Hálfbræðurnir Saddam Hussein og Barzan Ibrahim sögðu dómurunum til syndanna í gær.

Saddam Hussein og hans menn héldu uppteknum hætti við réttarhöldin yfir sér í gær og véfengdu lögmæti dómstólsins. Verjendur sakborninganna yfirgáfu salinn þegar erlendum lögmönnum Saddams var bannað að ávarpa réttinn og frestaðist dómhald um stund vegna þess.

Þriðji dagur réttarhaldanna yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samstarfsmönnum hans var í gær en þeim er gefið að sök að hafa látið myrða 143 sjía í bænum Dujail sumarið 1982 í hefndarskyni fyrir misheppnað banatilræði við forsetann.

Enn einu sinni sló í brýnu á milli sakborninga og dómara og mátti vart á milli sjá hver hefði völdin í salnum. Kveikjan að illindunum í gær var synjun Rizgar Mohammed Amin aðaldómara á beiðni verjendanna að Ramsey Clark, fyrrverandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, og Najib al-Nueimi, fyrrum starfsbróðir hans í Katar, fengju að ávarpa réttinn.

Þá stóðu upp Saddam og hálfbróðir hans, Barzan Ibrahim, fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustunnar, og hrópuðu "lengi lifi Írak, lengi lifi ríki araba". Þrútinn af bræði bætti Ibrahim við: "Hvers vegna takið þið okkur ekki bara strax af lífi og hættið þessum skrípaleik?"

Eftir að lögmennirnir gengu út var gert hlé á dómhaldi en hálfri annarri klukkustund síðar tilkynnti Amin að hann myndi heimila Clark og al-Nueimi að taka til máls. Clark lagði í ræðu sinni áherslu á þýðingu þess að rétturinn nyti trausts Íraka.

"Þessi réttarhöld geta sameinað eða sundrað. Þau munu auka á sundrungina í Írak frekar en að sameina landsmenn ef þeir álíta þau ekki hafin yfir allan vafa." Al-Nueimi benti á að þar sem að dómstóllinn hefði verið stofnsettur þegar Írak var hernumið land hlyti hann að vera ólögmætur.

Fyrsta vitnið kom fyrir réttinn í gær, Ahmed Hassan Mohamm­ed, íbúi í Dujail. Hann greindi frá fjölda­handtökum dagana eftir banatilræðið misheppnaða og kvaðst hann hafa séð lík af níu vinum sínum þar sem honum var haldið. Mohammed atyrti svo Ibrahim fyrir að láta myrða unglingspilt. "Farðu til helvítis," svaraði Ibrahim. "Þú og þínir niðjar munu fara til helvítis," sagði Mohammed þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×