Rice ver stefnuna í hryðjuverkavörnum 6. desember 2005 05:00 Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna flytur ávarp sitt á Andrews-herflugvellinum fyrir utan Washington í gær áður en hún lagði upp í Evrópuför sína.
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gaf í gær skýrustu svörin sem fengist hafa til þessa frá bandarískum stjórnvöldum við ásökunum um vafasama meðferð fanga sem grunaðir væru um að vera hryðjuverkamenn. Sagði hún að allt sem bandarísk yfirvöld aðhefðust í nafni stríðsins gegn hryðjuverkum væri innan marka laganna og gaf sterklega til kynna að leyniþjónustur evrópskra bandamanna ættu í nánu samstarfi við bandarísku leyniþjónustuna CIA. Í yfirlýsingu sem hún las er hún lagði upp í ferð til nokkurra höfuðborga í Evrópu í gær sagði hún ekkert um það sem marga í Evrópu fýsir mest að fá svör við, það er hvort CIA reki leynifangelsi í Austur-Evrópu. "Við getum ekki rætt opinberlega upplýsingar sem gætu spillt fyrir leyniþjónustustarfi, lögreglu- eða hernaðaraðgerðum. Við ætlumst til að aðrar þjóðir deili þessari sýn með okkur," sagði Rice. Rice sagði að Bandaríkin myndu beita hvaða löglega vopni sem er til að ráða niðurlögum þessara hryðjuverkamanna. Hún lagði á það áherslu að Bandaríkjastjórn heimilaði ekki né liði að pyntingum væri beitt undir neinum kringumstæðum. Frásagnir í fjölmiðlum af meintum leynifangelsum og leynilegu fangaflugi á vegum CIA fram og aftur um evrópska lofthelgi og flugvelli hafa valdið miklu írafári í mörgum löndum Evrópu og hefur verið kallað á skýringar. Bæði hafa stjórnvöld í viðkomandi Evrópuríkjum og Evrópusambandið farið fram á svör frá Bandaríkjastjórn. Þýska höfuðborgin Berlín er fyrsti viðkomustaður Rice í Evrópuförinni. Þar sagði talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar, Uwe Wilhelm, að hann hefði undir höndum skrá yfir vel á fimmta hundrað tilvika þar sem flugvélar sem taldar væru á vegum CIA hefðu flogið um þýska lofthelgi eða lent á flugvöllum í landinu. Hann tjáði fréttamönnum að hann vonaðist til að allar staðreyndir málsins yrðu ræddar á fundi Rice og Angelu Merkel kanslara. Í yfirlýsingunni fyrir brottförina sagði Rice að Bandaríkin virtu fullveldi annarra landa sem hafa tekið þátt í samstarfi um þessi mál, en þetta samstarf hefði hjálpað til við að vernda líf borgara bæði Bandaríkjanna og landa í Evrópu og víðar. Vísunina til fullveldis má skilja þannig að ef eitthvert Evrópuríki skyldi hafa lagt til aðstöðu undir leynifangelsi þá hefði það gerst með vitund og vilja þarlendra stjórnvalda. Rice tók fram að það væri undir stjórnvöldum í þessum löndum komið að ákveða hversu mikið af viðkvæmum upplýsingum þau geta birt.
Erlent Mest lesið Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Innlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Erlent Fleiri fréttir Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Sjá meira