Erlent

Þingið logaði í slagsmálum

Lúskrað á andstæðingnum. gmyndir um innflutning á hrísgrjónum hleyptu illu blóði í þingheim.
Lúskrað á andstæðingnum. gmyndir um innflutning á hrísgrjónum hleyptu illu blóði í þingheim.

Slagsmál brutust út á suður-kóreska þinginu í vikunni þegar frumvarp um opnun hrísgrjónamarkaðar landsins var samþykkt. Þingmenn lítils stjórnarandstöðuflokks reyndu að hertaka forsetasætið í þingsalnum en þingmenn stjórnarflokkanna komu í veg fyrir það.

Hundruð bænda mótmæltu utan við þinghúsið en þeir óttast um afkomu sína. Forseti þingsins sagði þingið ekki hafa haft aðra kosti en að samþykkja frumvarpið þar sem Suður-Kórea væri bundin af samningum um alþjóðaviðskipti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×