Bush útnefnir Alito hæstaréttardómara 1. nóvember 2005 06:15 Nýi dómarinn Bush telur Alito bæði fróðan og réttsýnan en tæpast skemmir fyrir að þeir eru skoðanabræður í mörgum málum.
Í viðleitni sinni til að friða félaga sína í repúblikanaflokknum tilnefndi George W. Bush Bandaríkjaforseti Samuel Alito hæstaréttardómara. Demókratar hyggjast berjast gegn tilefningunni í öldungadeild þingsins. Óhætt er að segja að erfiðlega hafi gengið fyrir Bush að skipa eftirmann Söndu Day O'Connor í Hæstarétt Bandaríkjanna en í síðustu viku afþakkaði Harriet Miers útnefningu forsetans eftir að íhaldssamari flokksbræður hans mótmæltu skipaninni harðlega. Tilefning hins íhaldssama Samuel Alito, kaþólikka frá New Jersey, ber því vitni að Bush vilji friða sína helstu stuðningsmenn enda á hann talsvert í vök að verjast. Ný skoðanakönnun bendir til dæmis til að einungis 39 prósent þjóðarinnar myndi kjósa Bush væri gengið til kosninga nú. "Alito dómari er einn reyndasti og virtasti dómari Bandaríkjanna," sagði Bush þegar hann greindi frá útnefningunni. "Hann er mikill lögspekingur og afar réttsýnn." Bush hvatti öldungadeildina til að staðfesta tilnefninguna en til þess hefur hún frest til ársloka. Alito er 55 ára að aldri en hefur langa reynslu sem dómari að baki því undanfarin ár hefur hann setið í áfrýjunardómstól í Philadelphia. Sá dómstóll þykir einn sá frjálslyndasti í landinu en Alito er oft ósammála félögum sínum í réttinum og skilar gjarnan séráliti. Demókratar virðast líklegir til ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir skipunina enda þykir víst að Alito muni taka mun íhaldssamari afstöðu í dómum sínum en O'Connor, sem oft snerist á sveif með frjálslyndari hluta hæstaréttar í umdeildum málum á borð við fóstureyðingar og dauðarefsingar. "Öldungadeildin verður að skera úr um hvort maðurinn sem kemur í stað Miers sé of róttækur fyrir bandarísku þjóðina," sagði Harry Reid, leiðtogi demókrata í deildinni. Jim Jordan, einn af ráðgjöfum demókrata, tók í svipaðan streng og sagði að með útnefningunni ætlaði Bush sér að efna til ófriðar í öldungadeildinni til að beina athyglinni frá öðrum og stærri áhyggjuefnum, svo sem ásökunum á hendur nánum samstarfsmönnum sínum um að hafa ljóstrað upp um nafn leyniþjónustumanns CIA, mannfalls bandarískra hermanna í Írak og bágs efnahagsástands.
Erlent Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Innlent Fleiri fréttir Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Ítalir lögðu hald á skip frá Rússlandi Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila Sjá meira
Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila