Sýrlendingar sýni samvinnu 1. nóvember 2005 06:15 Ályktunin samþykkt. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, samþykkti vitanlega ályktunina í gær enda voru Bandaríkjamenn á meðal flutningsmanna hennar. Á bak við hana sést John Bolton, sendiherra landsins hjá SÞ. @
Mynd -FoMed 6,5p CP:Ályktunin samþykkt Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, samþykkti vitanlega ályktunina í gær enda voru Bandaríkjamenn á meðal flutningsmanna hennar. Á bak við hana sést John Bolton, sendiherra landsins hjá SÞ. Fréttablaðið/AP Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti einum rómi í gær að skora á Sýrlendinga að aðstoða rannsóknarnefnd þeirra við að upplýsa morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Ályktunin sem öryggisráðið samþykkti í gær var reyndar nokkuð breytt frá þeirri sem Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar lögðu fyrst fram en þar var Sýrlendingum hótað efnahagsþvingunum sýndu þeir ekki samstarfsvilja. Vegna andstöðu Rússa, sem rétt eins og fyrrnefndu þjóðirnar þrjár hafa neitunarvald í ráðinu, var orðalaginu hins vegar breytt á þann veg að aðeins var talað um „aðgerðir“ gegn Sýrlendingum ef þeir óhlýðnuðust. „Öryggisráðið er ekki eftirlitsnefnd og það væri rangt að blanda saman lögreglurannsókn og alþjóðasamskiptum,“ sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands á fundi ráðsins. Rannsóknarnefnd SÞ greindi frá frumniðurstöðum sínum á dögunum og þar var staðhæft að útilokað hafi verið að ráða Hariri af dögum án vitneskju leyniþjónustustofnana Sýrlendinga og Líbana. Sýrlensk yfirvöld voru auk þess sökuð um að hindra framgang réttvísinnar. Sýrlenska ríkisstjórnin greindi frá því um helgina að hún hygðist gangast fyrir eigin rannsókn á málinu. Sú nefnd mun sýna rannsóknarnefnd SÞ fulla samvinnu að sögn talsmanns forsetans. Til mótmæla kom í Damaskus, höfuðborgar Sýrlands, í gær þar sem öryggisráðið var hvatt til að beygja sig ekki undir vald Bandaríkjamanna.
Erlent Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent