Erlent

Kosið eftir 28 ára hlé

Palestínumenn á Vesturbakkanum munu í dag kjósa í fyrsta sinn til sveitarstjórnarkosninga síðan 1976. Um 150 þúsund Palestínumenn geta gengið til kosninga í 26 þorpum og bæjum. Sveitarstjórnarkosningum mun ljúka á næsta ári. Talið er að Fatah-hreyfingin hafi mestan stuðning á þeim svæðum þar sem kosið er fyrst. Á landinu öllu er von á mikilli kosningabaráttu á milli Fatah- og Hamas-hreyfinganna. Íbúar flóttamannabúða fá ekki að kjósa nú. Ástæðan er sögð vera að ekki eigi að gefa í skyn að flóttamannabúðir séu varanlegar byggðir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×