Erlent
Búist við lausn í Zimbabve Útlit er fyrir að til tíðinda draga í dag í viðræðum um framtíðarstjórn Zimbabwe - og um framtíð Roberts Mugabes forseta. Gert er ráð fyrir að þeir Mugabe og Morgan Tsvangerai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, muni setjast niður augliti til auglitis ásamt forseta Suður-Afríku og reyna að leggja lokahönd á samkomulag sem er í burðarliðnum í viðræðunum. Erlent 10.8.2008 09:54
Líklegt að sættir náist í Zimbabve á morgun Líklegt þykir að það dragi til tíðinda í Zimbabve á morgun en búist er við að sættir náist á milli Róberts Mugabe forseta landsins og Morgan Tsvangirai sem bauð sig fram gegn honum á dögunum. Reuters greinir frá því að samningaviðræður þeirra í millum hafi gengið vel og að von sé á yfirlýsingu þess efnis að þeir hyggist stjórna landinu í sameingu. Búist er við því að náist samningar muni Mugabe áfram verða forseti landsins en að Tsvangirai verði útnefndur forsætisráðherra. Erlent 9.8.2008 21:57
Frakkar hvetja Rússa til að fallast á vopnahlé Frakkar, sem fara með forsæti í Evrópusambandinu þessa stundina, hvetja Rússa til þess að samþykkja vopnahlé sem Georgíumenn hafa boðið í Suður-Ossetíu. Í yfirlýsingu frá forsætisnefnd sambandsins segir að vopnahléstilboði Georgíumanna beri að fagna og að Rússar eigi að taka því þegar í stað. Erlent 9.8.2008 20:38
Er Maddý í Belgíu? Lögregla rannsakar nú sögur þess efnis að Madeleine McCann hafi sést í Belgíu. Að því er fréttastofa SKY greinir frá á stúlkan, sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal í fyrra, að hafa sést í banka í Brussel í fylgd konu sem virtist vera frá Norður Afríku. Erlent 9.8.2008 19:42
Vesturveldin reyna að stilla til friðar Sameiginleg sendinefnd Evrópusambandsins, Bandaríkjanna og NATÓ heldur til Georgíu í kvöld til þess að reyna að stilla til friðar í deilum Rússa og Georgíumanna í Suður-Ossetíu og Abkasíu. Þetta hefur fréttastofa SKY eftir Des Brown, varnarmálaráðherra Breta og segir hann markmiðið að koma á vopnahléi milli stríðandi fylkinga. Georgíumenn hafa lýst yfir stríðsástandi í landinu og segjast þeir hafa brotið á bak aftur árásir í Abkasíu en að bardagar séu enn í gangi við rússneska hermenn í Suður-Ossetíu. Erlent 9.8.2008 16:24
Rússar segja Georgíumenn stunda þjóðarmorð Erindreki Rússa hjá NATÓ segir að Georgíumenn stundi þjóðernishreinsanir og þjóðarmorð á íbúum Suður-Ossetíu. Hann segir að átökin sem magnast hafa þar síðustu daga sé ekki hægt að kalla neitt annað en Rússneskir hermenn hafa barist við Georgíumenn sem reynt hafa að ná völdum í héraðinu sem lýst hefur yfir sjálfsstæði frá Georgíu. Suður-Ossetar hafa notið stuðnings Rússa í baráttu sinni fyrir sjálfstæði. Erlent 9.8.2008 13:31
Átök einnig hafin í Abkasíu Átökin í Georgíu virðast nú vera að breiðast út en nýjustu fregnir hermað að herflugvélar hafi gert sprengjuárásir á landamærum Georgíu og Abkasíu. Abkasía er, líkt og Suður-Ossetía, sjálfstjórnarsvæði innan landamæra Georgíu sem lýst hefur yfir sjálfstæði. Erlent 9.8.2008 11:24
Drap mann og kastaði sér í dauðann Bandaríkjamaður lét lífið þegar kínverskur maður á fimmtugsaldri réðst á hann og tvo aðra í Pekíng í morgun. Árásarmaðurinn svipti sig lífi eftir árásina með því að stökkva út af háhýsi. Ekki er ljóst hvert tilefni árásarinnar var. Erlent 9.8.2008 09:41
Átök magnast í Suður-Ossetíu Rússneski flugherinn hefur í nótt gert loftárásir á herstöðvar í borginni Gori í Georgíu á meðan georgíski herinn berst við uppreisnarmenn í Suður-Ossetíu. Fjölmargir óbreyttir borgarar hafa fallið. Fréttamenn hafa séð sært fólk flutt í ofboði úr íbúðarbyggingum sem hafa orðið fyrir sprengjum. Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands segir að 1500 manns hafi látið lífið. Erlent 9.8.2008 09:35
John Edwards hélt framhjá bráðveikri eiginkonu sinni Demókratinn John Edwards, sem fyrr á árinu sóttist eftir að verða forsetaframbjóðandi flokksins, hefur viðurkennt framhjáhald með konu sem hann hitti á krá í New York árið 2006. Erlent 8.8.2008 20:48
Öryggisráð SÞ boðað til neyðarfundar Sendiherrar hjá Sameinuðu þjóðunum hafa óskað eftir nýjum neyðarfundi öryggisráðs stofnunarinnar til þess að fara yfir ástandið í Suður-Ossetíu og reyna að koma í veg fyrir að stríð brjótist út. Erlent 8.8.2008 19:35
Ólympíueldurinn tendraður í Peking Ólympíueldurinn var nú á fimmta tímanum tendraður á Ólympíuleikvanginum í Peking í Kína en það markar setningu Ólympíuleikanna. Erlent 8.8.2008 17:05
Rússar ráðast á Georgíumenn Her Rússa er kominn inn í Tskhinvali, höfuðborg Suður-Ossetíu og eru byrjaðir að ráðast á Georgíumenn. Eru þetta fyrstu staðfestu átökin á milli Rússa og Georgíumanna. Erlent 8.8.2008 16:39
Hafa áhyggjur af almennum borgurum í Suður-Ossetíu Alþjóðlegi Rauði krossinn krefst þess að mannúðarlög séu virt í Suður-Ossetíu og hafa þungar áhyggjur af almennum borgurum á svæðinu. Átök fara harðnandi í Suður-Ossetíu á milli Georgíu og aðskilnaðarsinna og eru hermenn Rússlands á leið inn í héraðið til stuðnings aðskilnaðarsinnum. Erlent 8.8.2008 15:49
Hvetja til stillingar í Suður-Ossetíu Evrópusambandið, Bandaríkin og Atlantshafsbandalagið hvöttu í dag deilendur í Georgíu og Suður-Ossetíu til þess að leggja strax niður vopn og hefja þess í stað viðræður. Erlent 8.8.2008 15:28
Forseti Georgíu segir Rússa í stríði Míkhaíl Saakashvílí, forseti Georgíu, sagði í sjónvarpsviðtali í dag að Rússar hefðu hafið stríð gegn Georgíu. Erlent 8.8.2008 13:19
Enn verið að leita í braki Enn er verið að leita í braki lestar sem skall á hrunda brú í Tékklandi í morgun. Að minnsta kosti sex létust í slysinu en áður var haldið að tíu manns hefðu látist. Um var að ræða EuroCitylest á leið á milli Prag og Kraká. Erlent 8.8.2008 12:57
Opnunarhátíð Ólympíuleikanna hafin Setningarathöfn Ólympíuleikanna í Peking hófst nú í hádeginu. Þjóðarleiðtogar stórveldanna og önnur fyrirmenni hafa komið sér fyrir í heiðursstúkunum. Erlent 8.8.2008 12:39
Medvedev heitir því að verja samlanda í Suður-Ossetíu Forseti Rússlands Dmitry Medvedev heitir því að verja samlanda sína sem eru búsettir í Suður-Ossetíu. Átök brutust út þar í nótt á milli Georgíumanna og heimamanna þegar Georgíumenn umkringdu höfuðborg héraðsins Tskhinvali. Medvedev hét einnig að refsa þeim sem bæru ábyrgð á dauða samlanda sína. Erlent 8.8.2008 11:49
Efnahagslægð á Spáni dregur úr fjölda innflytjenda Versnandi efnahagsaðstæður á Spáni hafa meðal annars leitt til þess að innflytjendum frá Afríku sem reyna að koma til landsins hefur fækkað. Erlent 8.8.2008 11:45
Tíu látnir í lestarslysi í Tékklandi Að minnsta kosti tíu manns eru látnir og meira en hundrað manns særðir eftir að lest klessti á hrunda brú í Tékklandi í morgun. Eru margir slökkviliðsmenn á staðnum að reyna að hjálpa fórnarlömbum slyssins að komast úr lestinni. Erlent 8.8.2008 10:35
Hörð átök í S- Ossetíu Georgíumenn hafa umkringt Tskhinvali höfuðstað Suður - Ossetíu. Harðir bardagar hafa geysað þar í alla nótt og er talið að minnst fimmtán manns hafi fallið. Erlent 8.8.2008 08:43
Grunaður um að hafa í hótunum gagnvart Obama Bandarísk yfirvöld hafa ákært 22 ára gamlan karlmann fyrir að hafa hótað því að myrða Barack Obama forsetaframbjóðanda. Maðurinn heitir Raymond Hunter Geisel. Hann er sagður hafa haft uppi hótanir gagnvart Obama í lok júli og talað niðrandi um kynþátt hans. Erlent 8.8.2008 08:41
Ástralska lögreglan upprætir fíkniefnahring Ástralska lögreglan segist hafa upprætt alþjólegan fíkniefnasmyglhring og gert upptækt mesta magn af alsælu hingað til. Sextán manns hafa verið handteknir í Ástralíu vegna málsins og er búist við að fleiri verði handteknir í Belgíu, Hollandi og á Ítalíu. Erlent 8.8.2008 08:30
Ólympiuleikarnir settir í dag Þjóðarleiðtogar víðsvegar úr heiminum streyma nú til Peking til að vera viðstaddir opnunarhátíð Ólympíuleikanna sem fram fer í kvöld. Talið er að um 10 þúsund manns taki þátt í athöfninni og að fjórir milljarðar manna muni horfa á. Erlent 8.8.2008 08:17
Bandarískir karlmenn líklegri til að ættleiða en konur Bandarískir karlmenn á aldrinum átján til fjörutíu og fjögurra ára eru meira en tvöfalt líklegri til að ættleiða börn en konur á sama aldri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem byggð er á gögnum úr rannsókn á fjölskylduþróun sem gerð var í Bandaríkjunum árið 2002. Erlent 8.8.2008 08:12
Herinn áformar að yfirgefa Írak Írösk og bandarísk stjórnvöld eru nú nálægt því að ná samkomulagi um að bandarískt herlið yfirgefi Írak í október 2010. Erlent 8.8.2008 07:58
Bílstjórinn fékk fimm og hálfs árs fangelsi Fyrrum bílstjóri Osama Bin Landens var í gær dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi í bandarískum stríðsréttarhöldum í Guantanamo flóa. Erlent 8.8.2008 07:07
Kínverjar ansa lítt gagnrýni frá Bush Kínversk stjórnvöld segjast ekki sætta sig við að þjóðhöfðingjar annarra landa blandi sér í innanríkismál þeirra. Að öðru leyti hafa þau vart svarað gagnrýni George W. Bush Bandaríkjaforseta á ástandið í mannréttindamálum þar í landi. Erlent 8.8.2008 00:01
Ökumaður bin Ladens fékk 66 mánaða dóm Salim Hamdan, ökumaður Osama bin Ladens, var í dag dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi en hann var í gær fundinn sekur um stuðning við hryðjuverk. Erlent 7.8.2008 20:42