Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Fjölmennir ferðamannahópar hafa að undanförnu afbókað gistingu fyrir vestan sem ætluðu að dvelja þar til að upplifa almyrkva á sólu um miðjan ágúst. Starfsmann Vestfjarðastofu grunar að ferðaskrifstofur hafi frátekið gistingu í fleiri en einu landi sem tilheyrir almyrkvaslóðum og séu nú að taka ákvörðun; af eða á. Innlent 6.7.2026 12:55
Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Brúðulistahátíðin HIP-fest (Hvammstangi international puppetry festival) var haldin í fimmta sinn dagana 26., 27. og 28. júní en þátttakendur í ár voru frá jafn mörgum mismunandi löndum. Handbendi brúðuleikhús stendur fyrir hátíðinni en gestir ferðuðust sumir víða að, þar á meðal frá Havaí, Kína og Finnlandi. Menning 6.7.2026 10:02
Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Ísak Elí Sæmundsson gaf út sína fyrstu bók, Ævintýri Dalla Dollu, á dögunum en hann er ellefu ára og búsettur á Tálknafirði. Hann segir krökkum sem langi að skrifa bók að láta bara vaða og ekki gefast upp. Menning 5.7.2026 20:00
Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Innlent 13.6.2026 12:12
Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Sveitarstjóri Vesturbyggðar telur að vafi leiki á hvort samningur Vegagerðarinnar heimili það að Baldur sé nýttur til siglinga milli lands og Eyja samhliða Herjólfi. Innlent 11. júní 2026 11:44
Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028. Innlent 11. júní 2026 11:36
Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ „Það rekur hér hvert kjaftshögg annað,“ segir Birna Mjöll Atladóttir, staðarhaldari á Hóteli Breiðavíkur við Látrabjarg. Hún lenti nýverið í klóm netþrjóta sem bjóða upp á norðurljósaferðir í júlí í nafni hótelsins og segir sömuleiðis að það rigni inn afbókunum vegna óvissu með Breiðafjarðarferju. Innlent 10. júní 2026 12:45
Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Innviðaráðuneytið hefur ákveðið, á grundvelli tillögu frá Öryggisfjarskiptum, að styrkja sérstaklega úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans 12. ágúst. Innlent 5. júní 2026 21:48
Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Sveitarstjóri Stykkishólms segir tilfærslu á ferjunni Baldri til Vestmannaeyja óheppilega, fyrirvarann of stuttan og tilfærslan ekki í samræmi við samkomulag við ríkið. Sveitarfélögin á svæðinu mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa ferjuna og sérstaklega því fordæmi sem ákvörðunin kann að skapa. Innlent 5. júní 2026 12:01
Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Sveitarfélögin Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur harma og mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja frá og með 8. júní nk. Innlent 5. júní 2026 08:33
Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Hótel Flatey hefur verið ákveðinn miðpunktur þess lífs sem iðar í Flatey á Breiðafirði á sumrin. Nú eru þó blikur á lofti og óvissa um hvort hótelið verði yfirleitt opið í sumar er líkleg til að hafa töluverð áhrif á menningarástandið á þessum rómaða áfangastað. Innlent 26. maí 2026 06:30
Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, hefst í nítjánda sinn á Patreksfirði föstudaginn næstkomandi. Sérhæfing hátíðarinnar eru frumsýningar íslenskra heimildarmynda og í ár eru sýndar myndir sem fjalla meðal annars um byggð í Grímsey, baráttu við fíkn, stöðu íslenskrar millistéttar, endómetríósu og æðavarp á Austfjörðum. Bíó og sjónvarp 21. maí 2026 11:09
Ný sýn hélt meirihluta sínum í Vesturbyggð N-listin Nýrrar sýnar hélt meirihluta sínum í sveitarstjórn Vesturbyggðar í sveitarstjórnarkosningunum í dag. Ný sýn náði inn fjórum mönnum í sveitarstjórn en V-listi Sterkari Vesturbyggð þrjá. Innlent 17. maí 2026 02:09
Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Bæjarstjóri Vesturbyggðar er ósáttur við samráðsleysi þegar tekin er ákvörðun um að sigla ferjunni Baldri til Vestmannaeyja þar sem henni er ætlað að leysa af Herjólf. Tveir starfsmenn á vegum Orkubús Vestfjarða eru strandaglópar í Flatey vegna brotthvarfs Baldurs. Innlent 30. apríl 2026 15:49
Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Karlmaður á sextugsaldri hefur verið ákærður fyrir hættubrot, með því að gefa samstarfsmanni sínum í fiskeldisstöðinni í Þverá í Vatnsfirði í Vesturbyggð köku sem innihélt ótilgreint magn tetróhýdrókannabínóls, virka efnisins í kannabis. Innlent 30. apríl 2026 14:37
Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Starlink-tengingu hefur nú verið komið fyrir í skólabíl á Patreksfirði af öryggisástæðum. Hvorki foreldrum né sveitarstjórn þótti forsvaranlegt að daglega væri ekið með börn langa vegarkafla án símasambands. Innlent 29. apríl 2026 19:26
Fékk í skrúfuna skammt frá landi Skömmu fyrir hádegi tilkynnti skipstjóri lítils fiskibáts sem var staddur utarlega í Patreksfirði, um að hann hefði fengið veiðarfæri í skrúfuna og væri því aflvana. Innlent 24. apríl 2026 13:08
„Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Sveitarstjórn og viðbragðsaðilar í Vesturbyggð eru nú íóða önn að undirbúa komu mikils fjölda ferðamanna í tengslum við almyrkvann í sumar. Bæjarstjóri á segir erfitt að sjá fyrir hve margir leggi leið sína vestur til að berja almyrkvann augum. Innlent 21. apríl 2026 20:30
Aðalsteinn Lúther: „Þetta er ekki einhver trúarofsi tengdur guðfræðinámi“ Aðalsteinn Leifsson, guðfræðinemi og fyrrverandi ríkissáttasemjari, tók upp millinafnið Lúther fyrir ekki svo löngu síðan. Nafnabreytingin tengist ekkert guðfræðináminu sem Aðalsteinn byrjaði nýverið í heldur er það virðingavottur við afa hans, Aðalstein Lúther Indriðason. Lífið 27. mars 2026 16:27
Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi. Innlent 24. mars 2026 21:00
Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Lækkun verðs á raforku til húshitunar hefur lengi verið baráttumál sveitarfélaga á köldum svæðum. En af hverju hefur árangurinn ekki verið meiri? Þetta verður meginumræðuefnið á ráðstefnu Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem ber heitið „Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Hverju er hægt að breyta” og fer fram á morgun, miðvikudaginn 18. mars. Skoðun 17. mars 2026 12:48
Búið að opna veginn um Raknadalshlíð eftir flóðið Vegurinn um Raknadalshlíð á Vestfjörðum var opnaður rétt eftir klukkan sjö í morgun en snjóflóð féll á hann síðdegis í gær. Dynjandisheiðin er lokuð og sömu sögu er að segja af Kleifarheiði. Innlent 4. mars 2026 07:24
Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Snjóflóð féll á veginn um Raknadalshlíð á Vestfjörðum síðdegis í dag. Í kjölfarið var ákveðið að loka veginum, sem og Dynjandisheiði og Kleifaheiði til morguns Innlent 3. mars 2026 17:28
Að standa af sér storminn Umræðan um sjókvíaeldi hefur verið þung og á köflum hörð. Hér fyrir vestan finnum við það vel. Margir íbúar hafa lýst því yfir að þeir upplifi umræðuna ekki aðeins sem gagnrýni á atvinnugrein heldur sem gagnrýni á samfélagið sjálft og fólkið sem hér býr og starfar. Skoðun 27. febrúar 2026 19:31
Þjónustubátur sökk í Tálknafjarðarhöfn Hátt í fjörutíu ára gamall þjónustubátur sökk í Tálknafjarðarhöfn í morgun. Hafnarvörður segir unnið að því finna út úr hvernig báturinn verður hífður upp úr höfninni. Innlent 25. febrúar 2026 12:06