Suður­nesja­bær

Suður­nesja­bær

Mannfjöldi: 4.091 (2025). Flatarmál: 82 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Sandgerði, Garður.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ekki síður í vand­ræðum með bók­lega kennslu

„Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann.

Innlent
Fréttamynd

Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauks­stöðum of­beldi

Jón Steinar Konráðsson, sem rak fósturheimilið Gauksstaði með eiginkonu sinni Lindu Angelique Elizondo, neitar öllum ásökunum um að hafa beitt börnin sem dvöldu þar ofbeldi. Starfsemin var rannsökuð fyrir fimm árum af lögreglu en málið fellt niður. Hann telur málið vera til umræðu vegna uppbyggingar hans á Gauksstöðum.

Innlent
Fréttamynd

Meiri hveralykt af vatninu vegna við­halds og við­gerðar

Tímabundið getur verið meiri hveralykt af vatni en venjulega í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum vegna íblöndunar súlfíts í heita vatnið. Íblöndunin er vegna viðhalds og viðgerðar HS Orku á búnaði sínum á Fitjum í Reykjanesbæ. Fólk sem viðkvæmt er fyrir súlfíti í matvælum er bent á að heita vatnið sé ekki ætlað til neyslu eða til matreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Sverrir Berg­mann hættir í bæjar­stjórn

Sverrir Bergmann Magnússon, tónlistarmaður, varaþingmaður og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, hefur ráðið sig í starf samfélags- og sjálfbærnisstjóra hjá Kadeco, þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. Þar sem fyrirtækið starfar bæði í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ hefur hann ákveðið að hætta í bæjarstjórn og kveðst ekki bjóða sig fram aftur. 

Innlent
Fréttamynd

Blása í lúðra vegna at­vinnu­leysis á Suður­nesjum

Vinnumálastofnun hvetur atvinnuleitendur á Suðurnesjum til að leita til sín. Skráð atvinnuleysi á svæðinu mælist nú yfir 6,5 prósent. Þróunin gefi tilefni til markvissra aðgerða af hálfu Vinnumálastofnunar í samræmi við lög um atvinnuleysistryggingar og um vinnumarkaðsaðgerðir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Heitavatnslaust á Suður­nesjum og raf­magns­laust víða um land

Heitavatnslaust varð víða á Suðurnesjum í kvöld eftir að dælustöð fyrir heita vatnið sló út vegna rafmagnstruflunar. Truflunin varð þegar tenging HS Veitna við Landsnet sló út fyrr í kvöld sem jafnframt olli rafmagnsleysi í Grindavík, Vestfjörðum og víðar í dreifikerfinu. 

Innlent
Fréttamynd

Tulipop-leiksvæði opnað á Kefla­víkur­flug­velli

Nýtt leiksvæði fyrir börn, innblásið af veröld Tulipop, hefur verið opnað á Keflavíkurflugvelli (KEF). Leiksvæðið er staðsett við veitingasvæðið Aðalstræti þar sem gengið er inn í aðra hæð nýrrar austurálmu flugvallarins. Á sama svæði eru einnig gagnvirk leiktæki.

Lífið
Fréttamynd

Heim­sótti heimaslóðirnar 52 árum eftir nauðlendinguna

Flugmaðurinn Greg Fletcher, sem nauðlenti Douglas Dakota-flugvél á Sólheimasandi árið 1973 og bjargaði þannig lífi allra um borð, heimsótti í gær gamlar heimaslóðir á Ásbrú í Reykjanesbæ. Með honum í för var Halla Tómasdóttir forseti Íslands. 

Innlent
Fréttamynd

Hags­munir sveitanna í vasa heild­sala

Við stöndum nú frammi fyrir ákvarðanatöku sem getur haft afgerandi áhrif á framtíð íslensks landbúnaðar. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur boðað lagasetningu sem breytir tollflokkun svonefnds pítsaosts – osts með viðbættri jurtafitu – þannig að innflutningur hans verði tollfrjáls.

Skoðun
Fréttamynd

Allt stopp á lokametrunum

Framkvæmdir við loftlínuhluta Suðurnesjalínu 2 eru nú í biðstöðu á meðan beðið er niðurstöðu í dómsmálum sem tengjast verkefninu. Verkefnastjóri segir þetta hafa áhrif á raforkuöryggi á Suðurnesjum en til stóð að taka hana í notkun nú í haust.

Innlent
Fréttamynd

Skötumessur Ás­mundar Frið­riks­sonar gefa vel af sér

Á annað hundrað milljónir króna hafa safnast í Skötumessu á sumri, sem fyrrverandi þingmaður, Ásmundur Friðriksson hefur séð um að skipuleggja í að verða tuttugu ár í Garðinum í Suðurnesjabæ. Allur peningurinn hefur farið í að styrkja góð málefni, ekki síst fólk, sem hefur lent í áföllum eða glímir við fötlun.

Innlent
Fréttamynd

Loft­gæði mun betri á höfuð­borgar­svæðinu

Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu mælast töluvert betri í dag en í gær. Enn er þó svifryksmengun yfir Reykjanesskaga og á Ísafirði mælast loftgæði óholl. Á miðvikudag gæti síðan aftur farið að byggjast upp mengun á gosstöðvunum vegna hægs vinds.

Innlent
Fréttamynd

Stal bíl og keyrði um flug­brautirnar

Maður stal bíl inni á haftasvæði Keflavíkurflugvallar síðdegis í gær, ók honum um flughlaðið og ógnaði flugumferð. Ók hann meðal annars inn á flugbraut þar sem flugvél var að undirbúa flugtak.

Innlent