Mosfellsbær

Mosfellsbær

Mannfjöldi: 13.715 (2025). Flatarmál: 186 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Hefja við­ræður um sölu Blikastaðalandsins

Arion banki hefur ákveðið að ganga til einkaviðræðna við Íslensk verðbréf fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs um kaup sjóðsins á öllu hlutafé dótturfélags bankans, Landeyjar ehf., í Blikastaðalandi ehf., sem á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ.

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Stakk af frá far­gjaldi leigu­bíls

Fjórir voru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Einn var handtekinn fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglunnar og þá kemur einnig fram í dagbók að lögregla hafi verið kölluð til þegar einstaklingi var vísað úr félagslegu dvalarúrræði.

Innlent
Fréttamynd

Enn enginn grunaður um inn­brotið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar enn innbrot í Dalsbú í Mosfellsdal í lok júlí, sem varð til þess að mikill fjöldi minka gekk laus um Mosfellsdal og nágrenni. Enginn er grunaður en vonir standa til að málið verði leyst fljótlega.

Innlent
Fréttamynd

Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósa­staur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörgu að snúast í gærkvöldi og í nótt en á varðsvæði stöðvar tvö, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, barst lögreglunni tilkynning um hugsanlegan ölvunarakstur. Ökumaðurinn hafði ekið bifreið sinni yfir kant og upp á gras. Þegar laganna verði bar að garði hafði bifreiðinni svo verið ekið á ljósastaur en ökumaðurinn var handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum áfengis sem og ávana- og fíkniefna.

Innlent
Fréttamynd

Barn á raf­magn­s­krossara sótt af for­eldrum sínum

Lögreglu barst tilkynning um glæfralegan akstur bifhjóls í Mosfellsbæ í gær. Ungur ökumaður ók þar um á rafmagnskrossara, ekki með skráningarnúmer. Því mátti hann ekki aka á akbraut. Lögregla stöðvaði akstur hans en hann var ekki með aldur til að vera í umferðinni. Foreldrar komu og sóttu hann á vettvang. 

Innlent
Fréttamynd

Tuttugu lögðu ó­lög­lega

Lögreglan þurfti að sinna fjölda ökumanna í nótt sem voru í órétti. Að undanskildu einu innbroti er dagbók lögreglu í dag undirlögð umferðarlagabrotum.

Innlent
Fréttamynd

Eftir­lýstur og með vopn á sér

Eftirlýstur einstaklingur var handtekinn og vistaður í fangaklefa Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að lögregla hafði af honum afskipti og fann á honum vopn.

Innlent
Fréttamynd

Játar inn­brot í búin

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot og eignaspjöll í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ ásamt fleiri innbrotum í önnur bú á Suðurlandi og Kjalarnesi.

Innlent
Fréttamynd

Geti fundið Tækni­skólanum góðan stað á Akur­eyri

Berglind Ósk Guðmundsdóttir segir Akureyrarbæ til í að ræða það að nýr Tækniskóli verði byggður á Akureyri. Samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans um uppbyggingu í Hafnarfirði fór um þúfur og er óvissa um það hvar skólinn verður í framtíðinni.

Innlent
Fréttamynd

Sunn­lendingar buðu best í breikkun á Kjalar­nesi

Verktakarnir Suðurverk og Fossvélar áttu lægsta boð í breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga. Sameiginlegt tilboð þeirra hljóðar upp á nærri 4,7 milljarða króna. Það er hálfum milljarði króna undir kostnaðaráætlun, eða 90,4 prósent af áætluðum verkakakostnaði, sem er tæplega 5,2 milljarðar króna.

Innlent
Fréttamynd

Opnum Skála­fell

Það er barátta í gangi við að opna á ný skíðasvæðið í Skálafelli þrátt fyrir samkomulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um þá uppbyggingu. Reynslan af Bláfjöllum undanfarin ár hefur sannað að stórbætt aðstaða og nýjar lyftur skila aukinni aðsókn. Það mælir allt með því að byggja einnig upp skíðasvæðið í Skálafelli.

Skoðun
Fréttamynd

Kalla eftir á­kvörðun um milljarðaáform í Skála­felli

Framtíð skíðasvæðisins í Skálafelli er á ný komin á borð sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verður beðin um að taka afstöðu til þess hvort endurskoða eigi samkomulag um uppbyggingu svæðisins frá árinu 2018.

Innlent
Fréttamynd

Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi

Allir sem tóku eldsneyti fyrir miðnætti í gær borguðu lægra verð en þeir sem biðu með að dæla þar til í dag eftir að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi. Um tíma leit út eins og Olís hefði þjófstartað í hækkununum í Mosfellsbæ en um var að ræða bilun í kerfi og allir greiddu rétt verð. Framkvæmdastjórinn gagnrýnir hve stuttan tíma olíufélögin fá til að bregðast við meiriháttar breytingum stjórnvalda. 

Neytendur
Fréttamynd

Stungan leiddi til skurðar

Ungur drengur stakk sér til sunds í Mosfellsbæ og rak höfuðið í með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á höfðinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við tilkynningu um slysið.

Innlent
Fréttamynd

Hand­tökur í tengslum við inn­brot í minkabúið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmt handtökur í tengslum við innbrotið í minkabúið í Mosfellsdal. Ekki hefur þó verið farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum. Bóndinn segir mikið uppbyggingarstarf fram undan en mikilvægt sé að fá ný dýr til landsins.

Innlent