Fótboltamaður skotinn til bana Ekvadorska lögreglan tilkynnti á miðvikudag að fótboltamaðurinn Mario Pineida hefði verið skotinn til bana. Fótbolti 18.12.2025 06:31
Kókaínkóngur handtekinn á Spáni Wilmer "Pipo" Chavarria, forsprakki eins umsvifamesta glæpagengis Ekvador, hefur verið handtekinn í Malaga á Spáni. Chavarria hafði falsað eigin dauða árið 2021, skipt um nafn og flúið til Evrópu, en þaðan hélt hann áfram að stýra genginu í Ekvador. Erlent 16.11.2025 23:52
Viðkvæmar viðræður, lausn Assange og næstu skref WikiLeaks Eftir rúmlega fimmtán ára óvissu, ákærur, stofufangelsi í sendiráði og einangrun í Belmarsh-fangelsi, sneri Julian Assange heim til Ástralíu í fyrrasumar. Kristinn Hrafnsson lýsir lokasprettinum, viðkvæmum viðræðum við erlenda ráðamenn og framtíð WikiLeaks. Lífið 29.9.2025 16:01
Óöld í Ekvador Forseti Ekvador hefur lýst yfir neyðarástandi vegna ofbeldisöldu þar í landi í kjölfar þess að alræmdur leiðtogi glæpagengis hvarf úr fangelsi. Skotbardagar hafa átt sér stað víðs vegar um landið, sprengingar og umfangsmikil rán. Þá hafa fangar hafið óeirðir í nokkrum fangelsum Ekvador á undanfarinni viku. Erlent 10. janúar 2024 12:37
Byssumenn réðust inn í beina útsendingu og hótuðu sprengjuárás Hópur manna vopnuðum skotvopnum brutust inn í sjónvarpssett hjá ekvadorska miðlinum TC í borginni Guayaquil fyrr í kvöld meðan á beinni útsendingu stóð. Erlent 9. janúar 2024 22:13
Bananaprins kjörinn forseti í Ekvador Bananaerfinginn Daniel Noboa var í gærkvöldi kjörinn forseti Ekvador og verður hann sá yngsti til að sinna embættinu í sögu landsins. Noboa hefur heitið því að taka á ofbeldisöldu sem ríður yfir landið af hörku og auka atvinnustig ungs fólks. Erlent 16. október 2023 10:09
Sakborningar í morðmáli forsetaframbjóðanda drepnir í fangelsi Mennirnir sex sem grunaðir eru um morðið á ekvadorska forsetaframbjóðandanum Fernando Villavicencio í ágúst eru nú sagðir hafa verið drepnir í fangelsi í Guayaquil í Ekvador, viku fyrir seinni umferð forsetakosninganna. Erlent 7. október 2023 10:13
Bananaerfingi og bandamaður spillts forseta í aðra umferð Allt stefnir í að kosið verði á milli vinstrisinna og erfingja bananaveldis í annarri umferð forsetakosninga í Ekvador eftir að engum frambjóðanda tókst að tryggja sér hreinan meirihluta í kosningunum þar í gær. Erlent 21. ágúst 2023 14:05
Varaforsetaefni kemur í stað látna forsetaframbjóðandans Hin ekvadorska Andrea Gonzalez, fyrrverandi varaforsetaefni, hefur tekið við forsetaframboði Fernando Villavicencio sem var skotinn til bana dögunum. Erlent 12. ágúst 2023 23:55
Meintir morðingjar frambjóðandans frá Kólumbíu Sex menn sem voru handteknir vegna morðsins á Fernando Villavicencio, forsetaframbjóðanda í Ekvador, í gær eru kólumbískir ríkisborgarar. Innanríkisráðherra landsins segir að mennirnir tengist skipulagðri glæpastarfsemi. Erlent 11. ágúst 2023 08:50
Frambjóðandi til forseta Ekvador skotinn til bana Frambjóðandi í komandi forsetakosningum í Suður-Ameríkuríkinu Ekvador var skotinn til bana á kosningafundi í höfuðborginni Quito í gær. Erlent 10. ágúst 2023 06:23
Lést sjö dögum eftir að hafa lifnað við í eigin jarðarför Kona sem lifnaði við í eigin jarðarför í síðustu viku er látin, viku eftir að atburðurinn átti sér stað. Hún lést af völdum heilablóðfalls, 76 ára. Erlent 18. júní 2023 18:37
Bella lifnaði við í eigin jarðarför Syrgjendur í jarðarför aldraðrar konu í Ekvador hrukku í kút á föstudaginn var þegar hin látna lifnaði við. Erlent 13. júní 2023 07:51
Tala látinna í Ekvador fer hækkandi: Hlupu skelfingu lostin út á götu Tala látinna vegna jarðskjálftans sem skók Ekvador og norðurhluta Perú í dag fer hækkandi. Þrettán hafa látið lífið og fleiri einstaklingar eru særðir. Fjölmargar byggingar skemmdust í skjálftanum. Erlent 19. mars 2023 00:15
Minnst fjögur látin eftir að jarðskjálfti skók Ekvador Að minnsta kosti fjögur létu lífið í kjölfar jarðskjálfta að stærð reið yfir Ekvador í dag. Jarðskjálftinn átti upptök á um 65 kílómetra dýpi í grennd við bæinn Baláo. Erlent 18. mars 2023 21:32
Rannsaka dauða fjögurra skjaldbaka Yfirvöld í Ekvador rannsaka nú dauða fjögurra risaskjaldbaka sem fundust á Galapagos-eyjum fyrr á árinu. Talið er að veiðiþjófar hafi veitt og borðað þær. Erlent 31. ágúst 2022 19:40
Segja að Ekvador verði hent út af HM vegna falsaðs vegabréfs Hætt er við því að Ekvador fái ekki að taka þátt á HM karla í fótbolta í Katar í vetur. Síle fái sæti liðsins þar sem ólöglegur leikmaður, með falsað ekvadorskt vegabréf, spilaði með liðinu í undankeppninni. Fótbolti 9. júní 2022 10:35
24 látin eftir aurskriður og flóð í Ekvador Að minnstu 24 eru látin og tugir eru slasaðir eftir að aurskriður hafa fallið víðs vegar í ekvadorsku höfuðborginni Quito. Úrhellisrigning hefur verið í landinu síðustu daga sem hefur svo framkallað aurskriðurnar og aurflóð. Erlent 2. febrúar 2022 07:51
Fimm ára og eldri skyldaðir í bólusetningu Bólusetningarskyldu hefur verið komið á í Ekvador í Suður-Ameríku. Allir, fimm ára og eldri, skulu fara í bólusetningu en stjórnvöld tóku ákvörðunina í ljósi fjölgun smita af völdum kórónuveirunnar. Erlent 24. desember 2021 07:46
Nærri sjötíu fangar drepnir í fangelsi í Ekvador Blóðug átök brutust út í fangelsi í Ekvador í gær en 68 létu lífið og yfir 25 særðust í átökunum, sem hófust um kvöldmatarleyti á föstudag. Erlent 14. nóvember 2021 08:26
Spretthlaupari skotinn til bana Ekvadorinn Alex Quinonez, sem vann til verðlauna á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum 2019, var skotinn til bana í borginni Guayaquil í Ekvador síðastliðið föstudagskvöld. Sport 24. október 2021 12:02
Að minnsta kosti 116 látnir í fangaóeirðum í Ekvador Að minnsta kosti 116 eru látnir eftir bardaga glæpagengja í Litoral-fangelsinu í borginni Guayaquil í Ekvador. Að minnsta kosti fimm fangar voru afhöfðaðir en aðrir skotnir. Talið er að gengin hafi tengsl við mexíkósk glæpasamtök. Erlent 30. september 2021 08:34
24 dánir og 48 særðir í óeirðum í fangelsi í Ekvador Minnst 24 fangar eru látnir og minnst 48 særðir eftir miklar óeirðir í fangelsi í Ekvador í gær. Þetta er í þriðja sinn á þessu ári sem óeirðir sem þessar eiga sér stað í landinu vegna baráttu glæpagengja í landinu. Erlent 29. september 2021 10:29
Fundu risaskjaldböku af tegund sem var talin hafa dáið út fyrir rúmri öld Erfðarannsóknir hafa leitt í ljós að risaskjaldbaka sem fannst á Galapagoseyjum sé af tegund sem vísindamenn töldu hafa dáið út fyrir rúmum hundrað árum. Erlent 27. maí 2021 13:54