Rooney vill halda Guardiola hjá City Wayne Rooney, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, vonast til að Pep Guardiola verði áfram við stjórnvölinn hjá Manchester City. Hann segir hann setja fordæmi fyrir aðra stjóra. Enski boltinn 20.2.2026 10:30
„Mér býður við þessu, satt best að segja“ Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, ræddi kynþáttafordóma í fótbolta á blaðamannafundi sínum en hann var spurður út í atvikið þegar Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid, varð fyrir meintu kynþáttaníði í Meistaradeildinni í vikunni og hann gaf afdráttarlaust svar. Enski boltinn 20.2.2026 07:01
„Þegar ég lít til baka veit ég ekki hvað ég var að hugsa“ Ange Postecoglou hefur viðurkennt að hann sjái eftir því að hafa tekið við stjórastöðunni hjá Nottingham Forest á þessu tímabili og telur að það hafi verið of snemmt eftir að hann yfirgaf Tottenham Hotspur. Enski boltinn 19.2.2026 23:32
Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Enska úrvalsdeildin í fótbolta hefur tilkynnt að haldið verði áfram með stutt drykkjarhlé í miðjum leikjum í ramadan-mánuðinum, sem er hinn helgi mánuður þeirra sem eru íslamstrúar. Enski boltinn 17.2.2026 14:31
Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur viðurkennt að hann óttist að meiðsli gætu enn og aftur komið í veg fyrir að lið hans nái loksins að vinna ensku úrvalsdeildina. Enski boltinn 17.2.2026 13:33
Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Coventry City hafði betur gegn Middlesborough er liðin mættust í toppslag ensku B-deildarinnar í fótbolta í kvöld. Lokatölur 3-1 sigur Coventry sem lyftir sér þar með upp fyrir Middlesborough í toppsæti deildarinnar. Enski boltinn 16.2.2026 21:57
Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Marc Kosicke, umboðsmaður þýska knattspyrnustjórans Jurgen Klopp, segir að bæði Manchester United og Chelsea hafi bæði spurst fyrir um áhuga Þjóðverjans að gerast knattspyrnustjóri sinna liða þrátt fyrir að hann hafi ekki sagst ætla taka við öðru liði á Englandi eftir að hafa farið frá Liverpool. Enski boltinn 16.2.2026 19:21
Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson hélt marki sínu hreinu er Brentford sló út spútniklið enska bikarsins Macclesfield í kvöld og tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Lokatölur 1-0 sigur Brentford. Enski boltinn 16.2.2026 19:03
Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Það er orðið ljóst hvaða lið munu mætast í sextán liða úrslitum enska bikarsins í fótbolta. Dregið var nú rétt í þessu og er stórleikurinn án efa viðureign Newcastle United og Manchester City. Þá er athyglisverður leikur á dagskrá þar sem Chelsea heimsækir Wrexham sem hefur skotist upp metorðastigann á Englandi. Enski boltinn 16.2.2026 18:50
Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? John Rooney, bróðir fyrrverandi fyrirliða enska landsliðsins, Wayne, kom nafni sínu á kortið með ótrúlegum sigri Macclesfield á Crystal Palace í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í síðasta mánuði og hann fær annað tækifæri gegn úrvalsdeildarliði þegar Brentford heimsækir Moss Rose-leikvanginn í kvöld. Enski boltinn 16.2.2026 15:03
Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, hefur sagt að liðsfélagi hans hjá Liverpool, Milos Kerkez, sé að taka „miklum framförum“ eftir erfiða byrjun á ferli sínum á Anfield. Enski boltinn 16.2.2026 14:00
Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Arsenal á enn möguleika á að landa fjórum titlum fyrir sumarfrí eftir frábæran 4-0 sigur gegn C-deildarliði Wigan í dag, í ensku bikarkeppninni í fótbolta. Enski boltinn 15.2.2026 16:01
Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úrvalsdeildarliðin Fulham og Sunderland komust áfram í 16-liða úrslit enska FA-bikarsins eftir sigur á sitthvoru B-deildarliðinu í dag. Enski boltinn 15.2.2026 15:55
Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Wolves vann Grimsby 1-0 í enska FA-bikarnum í fótbolta í dag. Úlfarnir áttu í erfiðleikum þrátt fyrir mikinn getumun á liðunum. Enski boltinn 15.2.2026 15:25
Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Ítalinn Edoardo Bove spilaði í gær sinn fyrsta fótboltaleik í rúmt ár eftir að hafa farið í hjartastopp í leik með Fiorentina í desember 2024. Enski boltinn 15.2.2026 14:47
Perri varði víti og Leeds áfram Leeds United komst áfram í 16-liða úrslit enska FA-bikarsins eftir útisigur á Birmingham City í vítaspyrnukeppni. Enski boltinn 15.2.2026 14:46
Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur Messunnar, tók saman sérkennileg atvik í nýliðinni umferð í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku. Enski boltinn 15.2.2026 11:46
„Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Dómarinn Chris Kavanagh og aðstoðarmenn hans áttu nokkrar hræðilegar lykilákvarðanir í 3-1 sigri Newcastle gegn Aston Villa í ensku bikarkeppninni í fótbolta í dag. Alan Shearer segir ljóst að dómarar séu orðnir háðir VAR. Enski boltinn 14.2.2026 23:17
Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Liverpool vann afar öruggan og þægilegan 3-0 sigur gegn Brighton í kvöld og kom sér þannig áfram í 5. umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta. Enski boltinn 14.2.2026 19:32
Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot Newcastle sló Aston Villa út í 32-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í dag, þrátt fyrir að lenda undir, með 3-1 sigri í Birmingham. Enski boltinn 14.2.2026 17:15
C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stuðningsmenn Burnley hafa mátt þola miklar raunir í ensku úrvalsdeildinni í vetur en þeir bauluðu á leikmenn liðsins í dag, eftir 2-1 tap á heimavelli gegn C-deildarliði Mansfield Town í bikarkeppninni. Enski boltinn 14.2.2026 17:04
Stálheppnir gegn C-deildarliðinu West Ham skreið áfram í 16-liða úrslit FA-bikarsins í fótbolta í fyrsta leik dagsins með 1-0 sigri á C-deildarliði Burton Albion eftir framlengdan leik. Makalaust var að Burton-liðum hafi ekki tekist að jafna leikinn. Enski boltinn 14.2.2026 14:57
Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Manchester City átti ekki í miklum vandræðum með að slá út „litlu“ grannana sína, Salford City, sem þó slógu frá sér þegar liðin mættust í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í dag. Enski boltinn 14.2.2026 14:31
Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, fagnar því að eiga heimaleik í ensku bikarkeppninni í dag en þykir þó fátt skemmtilegra en að mæta smáliðum á útivelli og skítkastið sem því fylgir. Enski boltinn 14.2.2026 12:02