Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Gjaldtaka um nýjan hringveg um Hornafjörð hefst á morgun, 1. september. Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð var opnaður fyrir umferð í júní. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að veggjöld standi undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, rekstur og viðhald vegarins. Innlent 31.8.2026 12:42
Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Forstöðumaður Þórbergsseturs segist geta tekið undir þá gagnrýni að skilti í veitingasölu menningarsetursins ættu ekki að vera á ensku; það væri viðeigandi ef þau væru frekar á íslensku eða esperanto. Langflestir gestir setursins séu þó erlendir ferðamenn og því sé auðvelt að gleyma sér í því að gera íslenskunni hátt undir höfði. Það gæti vel verið að skiltunum verði skipt út. Innlent 17.8.2026 17:27
Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Sauðfjárbændur í Suðursveit, sem fengu nóg af ágangi ferðamanna, settu upp skilti við heimreiðina þar sem óboðnum gestum var hótað því að þeir yrðu settir í vændi. Núna virðist skiltið ætla að hafa þveröfug áhrif. Innlent 14.8.2026 22:00
Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi Þórbergssetrið á Hala í Suðursveit, fæðingarstað rithöfundarins, fagnar í dag tuttugu ára afmæli. Forstöðukona setursins segist bjartsýn um að verk Þórbergs Þórðarsonar muni áfram lifa með þjóðinni. Innlent 30. júní 2026 20:20
Stytting hringvegarins sú næstmesta á þessari öld Ný brú yfir Hornafjarðarfljót var opnuð í dag. Hringvegurinn styttist um tólf kílómetra og leiðin milli Reykjavíkur og Hafnar um næstum fimmtán kílómetra. Vegamálastjóri sagði í ávarpi við brúarvígsluna að slík stytting hefði ekki orðið á hringveginum frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð árið 1998. Innlent 24. júní 2026 22:24
Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Nýjum íþróttamannvirkjum er jafnan vel fagnað meðal þeirra sem munu njóta þeirra en við Hrollaugsstaði í Suðursveit er verið er að taka í notkun nýjan fjölnota íþróttavöll. Sveitin er mjög fámenn og eru þar innan við tuttugu heimili og því vekur nýi völlurinn mikla athygli. Innlent 23. júní 2026 23:33
Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út í morgun eftir tilkynningu um umferðarslys í Öræfum. Fyrstar á vettvang voru björgunarsveitir. Innlent 6. júní 2026 14:05
Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í gærkvöld, þriðjudag, til þess að sækja ökumann sem hafði lent í bifhjólaslysi nærri Höfn í Hornafirði. Þyrluáhöfnin flaug til móts við sjúkrabíl og sótti ökumanninn við Skaftafell í Öræfum á Suðausturlandi. Innlent 3. júní 2026 14:54
Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Sigurjón Andrésson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skaftárhrepps af meirihluta D-lista og óháðra í Skaftárhreppi. Sigurjón lauk störfum sem sveitarstjóri í næsta sveitarfélagi, Hornafirði, fyrir aðeins nokkrum dögum. Í tilkynningu kemur fram að ráðningin verði formlega staðfest á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar þann 9. júní. Innlent 30. maí 2026 11:56
Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Hjalti Þór Vignisson oddviti Framsóknar í Hornafirði verður bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa undirritað málefnasamning um samstarf á komandi kjörtímabili 2026–2030. Innlent 28. maí 2026 16:38
Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Ómannað loftfar á vegum Landhelgisgæslunnar sem er ætlað að hafa eftirlit með hafsvæðinu umhverfis landið verður tekið í notkun í vikunni. Dróninn verður gerður út frá Hornafjarðarflugvelli og er fjármagnaður af Evrópusambandinu. Innlent 26. maí 2026 13:56
Lokatölur í Sveitarfélaginu Hornafirði: Framsókn bætir við sig og meirihlutinn fallinn Framsókn og stuðningsmenn bætir við sig manni frá síðustu kosningum og Sjálfstæðisflokkurinn og K-listi Kex framboðs tapa manni hvor í sveitarfélaginu Hornafirði. Miðflokkurinn fær einn mann. Innlent 17. maí 2026 00:32
Oddvitaáskorunin: Strumpur svo lýsandi gælunafn Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 12. maí 2026 21:01
Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Strax í gærmorgun var búið að flagga hinsegin fánum um allan bæ, að sögn Hornfirðingsins Guðrúnar Óskar Gunnarsdóttur. Hún brást við ummælum Snorra Mássonar um regnbogafána í færslu sem hefur farið víða um Facebook. Var færslan einnig hugsuð til þess að fá fram viðhorf Miðflokksins sem býður fram í sveitarfélaginu í fyrsta sinn. Innlent 18. apríl 2026 18:31
Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Forsvarsfólk Miðflokksins á Hornafirði taldi tilefni til að bregðast við umræðu um stefnu flokksins eftir að varaformaður hans gerði athugasemdir við fjölda regnbogafána og svipaðra tákna í skólum. Innlent 17. apríl 2026 17:49
Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða. Innlent 16. apríl 2026 22:20
Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Rannsókn á mögulegu þjófagengi sem er sagt hafa látið greipar sópa í versluninni Freysnesi í Öræfum þann 29. mars síðastliðinn stendur enn yfir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi. Innlent 14. apríl 2026 11:55
Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave „Danirnir höfðu engar áhyggjur af þessu. Það er það eina sem ég veit,“ segir Ægir Birgisson, skipstjóri Ásgríms Halldórssonar, nýs uppsjávarskips, sem er í smíðum á Skagen í Danmörku og slitnaði frá bryggju þegar stormurinn Dave gekk með látum yfir Jótland á páskadag. Innlent 7. apríl 2026 12:32
Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ferðamenn sem voru stöðvaðir á leið til Egilsstaða tengjast ekki þjófnaði sem framinn var í versluninni Freysnesi í Skaftafelli á sunnudaginn. Innlent 31. mars 2026 19:16
Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Lögreglan á Austurlandi stöðvaði hóp erlendra ferðamanna á leið til Egilsstaða í gær þar sem lögreglu höfðu borist ábendingar um þar væri á ferð hópurinn sem hefði farið ránshendi um verslun í Skaftafelli. Sá hópur reyndist aftur á móti ekki hafa neitt þýfi meðferðis. Innlent 31. mars 2026 16:36
Ferðamennirnir þaulvanir og breytt landslag Óprúttnir aðilar fóru ránshendi um verslunina Freysnes í gær. Eigandi verslunarinnar segir þetta ekki í fyrsta sinn sem eitthvað er tekið ófrjálsri hendi þar. Fólkið hafi verið þaulvant og breytt landslag blasi við á Íslandi. Innlent 30. mars 2026 21:41
Ekki fengið tilkynningu um þjófótta ferðamenn í Freysnesi Lögreglunni á Suðurlandi hefur ekki borist formleg tilkynning um þjófagengi, sem sagt er hafa látið greipar sópa um verslunina Freysnes í Öræfum í gærmorgun. Þó er til skoðunar að reyna að hafa uppi á hópnum. Innlent 30. mars 2026 11:09
Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa um verslunina Freysnes í Öræfum í morgun. Um skipulagðan þjófnað var að ræða enda voru þeir allt að tíu talsins og gengu hringi um verslunina og stungu vörum í vasana. Innlent 29. mars 2026 20:42
Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kallaðar út vegna manns í sjálfheldu á Vestrahorni. Maðurinn var án meiðsla en honum var flogið til Hafnar í Hornafirði. Innlent 10. mars 2026 20:10