Kínverjarnir selja sig út úr Elkem Kínverska félagið Bluestar hefur samið um sölu á öllum eignarhlut sínum í norska félaginu Elkem AS, sem rekur meðal annars járnblendisverksmiðju á Grundartanga. Kaupverðið verður allt greitt með einni af þremur deildum Elkem, sem verður klofin frá félaginu, og enginn peningur fer á milli aðila. Breytingarnar hafa engin áhrif á rekstur Elkem á Grundartanga. Viðskipti innlent 13.2.2026 10:39
Hvalfjörður er líka okkar fjörður Enn einu sinni þurfa íbúar Kjósarhrepps að verjast uppbyggingu á mengandi iðnaði í Hvalfirði og að þessu sinni er það gríðarstórt „landeldi“ á laxi sem við nánari athugun er ekki það jákvæða landeldi sem virðist við fyrstu sýn. Skoðun 18.1.2026 14:01
Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Í Skipulagsgátt stjórnvalda liggur nú til umsagnar umhverfismatsskýrsla vegna fyrirhugaðs 28.000 tonna svokallaðs landeldis Aurora fiskeldis í Hvalfirði. Um er að ræða aðila sem hafa verið áberandi í sjókvíaeldi hér á landi, með fjármagn og rekstrarlíkan sem að stórum hluta á rætur að rekja til Noregs. Skoðun 26.12.2025 07:02
Hegðun Norðuráls vonbrigði og Orkuveitan fari fram á fulla greiðslu Viðskipti innlent 24.11.2025 17:30
Fundinum mikilvæga frestað Fundi þar sem greiða átti atkvæði um tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um verndarráðstafanir vegna kísilmálms hefur verið frestað fram á mánudag. Samkvæmt tillögu framkvæmdastjórnarinnar verða íslenskir og norskir framleiðendur kísilmálms ekki undanþegnir verndarráðstöfununum. Viðskipti innlent 14. nóvember 2025 15:53
Grafalvarleg staða Grafalvarleg staða er að teiknast upp vegna bilunarinnar hjá Norðuráli, segir formaður Verkalýðsfélags Akraness. Samkvæmt nýjustu áætlunum fyrirtækisins er ekki gert ráð fyrir að framleiðsla verði komin í fullan gang fyrr en eftir ár. Viðskipti innlent 7. nóvember 2025 13:06
Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Fulltrúar Norðuráls skoða nú möguleikann á því að gera við spenna sem biluðu í síðasta mánuði og nota þá tímabundið þar til nýir fást. Áætlað er að biðin eftir nýjum spennum gæti tekið allt að ár. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um uppsagnir starfsmanna vegna ástandsins. Viðskipti innlent 7. nóvember 2025 08:24
Telja viðgerð geta tekið allt að ár Forsvarsmenn Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, telja að viðgerð vegna alvarlegrar bilunar í álverinu á Grundartaka gæti tekið allt ellefu til tólf mánuði. Þangað til bilunin hefur verið löguð er framleiðslan í álverinu einungis þriðjungur af því sem hefðbundið er. Viðskipti innlent 6. nóvember 2025 23:45
Engar uppsagnir í farvatninu Enn sem komið er eru engin áform uppi um uppsagnir starfsmanna Norðuráls á Grundartanga, þrátt fyrir alvarlega bilun sem kom upp í verksmiðjunni í síðustu viku. Þá stendur ekki annað til en að verksmiðjan verði rekin á fullum afköstum þegar viðgerðum hefur verið lokið. Innlent 30. október 2025 06:54
Línur gætu skýrst hjá Norðuráli í næstu viku Afleiðingar bilunar í verksmiðju Norðuráls á Grundartanga gætu byrjað að komast á hreint í næstu viku ef línur skýrast þá um hvenær nýr búnaður fæst til landsins. Viðskipti innlent 27. október 2025 10:24
Verðmætasköpunarlaust haust Forsætisráðherra hefur frá fyrsta degi ítrekað sagt að efnahagsmálin séu áherslumál vinstri stjórnarinnar númer eitt, tvö og þrjú hjá ríkisstjórninni. Í humátt hafa svo fylgt frasar á borð við það að ríkisstjórnin muni „gera meira hraðar“ ef árangurinn lætur á sér standa. Skoðun 24. október 2025 11:32
„Atvinnulífið er sannarlega að kólna“ Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins, segir stöðuna á Grundartanga grafalvarlega, og fyrir samfélagið í heild. „Norðurál er eitt stærsta útflutningsfyrirtæki þjóðarinnar og útflutningsverðmætin sem tapast geta verið allt að sex milljarðar á mánuði,“ segir Sigurður sem fór yfir málið í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Viðskipti innlent 23. október 2025 21:00
„Þá erum við að tala um 60 milljarða í töpuðum útflutningstekjum“ Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir félagsfólk kvíðið vegna stöðu Norðuráls á Grundartanga. Óljóst er hve langan tíma mun taka að koma framleiðslu fyrirtækisins í fullan gang á ný og forsætisráðherra segir stöðuna grafalvarlega. Innlent 23. október 2025 19:28
Viðgerð muni taka einhverja mánuði Forstjóri Norðuráls segir mikið tjón blasa við eftir að starfsemi fyrirtækisins var stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga í gær. Hann segir einhverja mánuði þar til starfsemi verði komin í eðlilegt horf á ný. Innlent 22. október 2025 17:50
Norðurál stendur undir um fjórtán prósent af öllum tekjum Orkuveitunnar Norðurál á Grundartanga, sem þarf núna að óbreyttu að stöðva framleiðsluna um tvo þriðju um margra mánaða skeið vegna bilunar, keypti meðal annars raforku af Orkuveitu Reykjavíkur fyrir samtals um níu milljarða í fyrra, en fyrirtækið er sömuleiðis stór viðskiptavinur hjá HS Orku og Landsvirkjun. Innherji 22. október 2025 16:11
Skynjar kvíða og ótta meðal starfsmanna Formaður Verkalýðsfélags Akraness skynjar kvíða og ótta meðal starfsmanna Norðuráls eftir að upp kom bilun í búnaði. Tveir þriðju framleiðslunnar liggja niðri en óljóst er hve langan tíma mun taka að laga búnaðinn. Viðskipti innlent 22. október 2025 12:00
„Alvarlegt áfall á Grundartanga” sem beri að bregðast við hratt Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, lýsir alvarlegum áhyggjum af þeirri stöðu sem uppi er á Grundartanga en Norðurál tilkynnti um það í gær að framleiðsla hafi verið stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga vegna bilunar í rafbúnaði. Um er að ræða mikið áfall fyrir starfsemina, starfsfólkið og samfélagið allt á Akranesi og í nærsveitum að sögn Vilhjálms. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru uppi töluverðar áhyggjur meðal starfsfólks um mögulegan atvinnumissi vegna stöðunnar. Innlent 22. október 2025 09:53
Stöðva framleiðslu í álverinu á Grundartanga Framleiðsla hefur verið stöðvuð í annarri af tveimur kerlínum álvers Norðuráls á Grundartanga í kjölfar bilunar í rafbúnaði álversins. Bilunin veldur því að álframleiðsla á Grundartanga skerðist um tvo þriðju um óákveðinn tíma. Innlent 21. október 2025 21:00
Gætu þurft að draga úr framleiðslu á Grundartanga Elkem hefur tilkynnt að dregið verði úr framleiðslu í járnblendiverksmiðjum félagsins í Rana í Noregi og á Grundartanga. Forstjóri Elkem á Íslandi segir að í versta falli verði slökkt á einum þriggja ofna á Grundartanga í fimmtíu til sextíu daga. Hann voni þó að ekki þurfi að koma til þess. Þá verði engum sagt upp hjá félaginu. Viðskipti innlent 20. október 2025 14:55
Ný heimildarmynd afhjúpi veikindi vegna flúormengunar og fyrirslátt MAST Kvikmyndagerðarkonan Hrafnhildur Gunnarsdóttir undrast aðgerðaleysi stjórnvalda vegna flúormengunar í Hvalfirði sem bitnað hafi illa á fólki, búfénaði og lífríki við fjörðinn. Aðgerðaleysið hafi viðgengist um árabil og mikið hafi mætt á hrossabónda sem er viðfangsefni nýrrar heimildarmyndar um málið. Illa hafi verið vegið að æru bóndans með því að hundsa ítrekaðar ábendingar um veikindi í hestum sem talið er að rekja megi til mengunar. Innlent 16. október 2025 16:32
Uppsagnir hjá Norðuráli í dag 25 starfsmönnum verður sagt upp hjá Norðuráli í dag. Ástæðan er sögð vera aukinn framleiðslukostnaður. Innlent 25. september 2025 13:05
Þyrlan kölluð út vegna beinbrotinnar göngukonu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á þriðja tímanum í dag vegna konu sem hafði slasast við Paradísarfoss við Glym. Um beinbrot var að ræða. Innlent 30. ágúst 2025 16:07
Lenti næstum framan á vörubíl við framúrakstur Minnstu mátti muna að jeppi hefði lent framan á vörubíl við Grundartanga í Hvalfirði í gær við glannalegan framúrakstur. Innlent 26. ágúst 2025 18:15
Skúli hannaði hof fyrir Grímu Brúðkaup Skúla Mogensen athafnamanns og Grímu Bjargar Thorarensen innanhúshönnuðar fór fram í hofi sem Skúli hafði hannað sérstaklega fyrir brúðkaupið. Lífið 24. ágúst 2025 11:47
Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Gasmengun og gosmóða mældist í litlu mæli í Hvalfirði í gær og í nótt. Nokkur gosmóða mældist þá í Vík í Mýrdal. Enn er hætta á skyndilegum framhlaupum við jaðra hraun eldgossins við Sundhnúksgíga. Innlent 4. ágúst 2025 07:13