Kann sjö tungumál, með fimm háskólagráður og kennir dönsku Í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöld mætti Tómas Arnar í Garðaskóla til að kynnast einum áhugaverðasta dönskukennara landsins sem er jafnframt doktor í kennslufræði. Lífið 13.2.2026 11:01
Brynja Dan og Jóhann selja slotið eftir breytingar Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Garðabæ og eigandi Extraloppunnar, og Jóhann Sveinbjörnsson hafa sett parhús sitt í Garðabæ á sölu eftir framkvæmdir. Lífið 9.2.2026 23:59
Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Borgarfulltrúar í Reykjavík eru með langhæstu grunnlaunin meðal kjörinna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu en bæjarstjórar sveitarfélaganna sex eru með á bilinu tvær til þrjár milljónir króna í laun og aðrar fastar greiðslur á mánuði. Almennir bæjarfulltrúar á höfuðborgarsvæðinu eru flestir með á bilinu 350 til 420 þúsund krónur í föst grunnlaun á mánuði, en ofan á það leggjast ýmsar greiðslur fyrir formennsku og setu í ráðum og nefndum, og jafnvel er greitt fyrir setu á einstaka fundum, sem geta togað launin upp um nokkra hundraðþúsundkalla til viðbótar á mánuði. Innlent 9.2.2026 06:47
Árekstur í Urriðaholti Árekstur varð á gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Kauptúns í Garðabæ um klukkan 11 í morgun. Tveir eru sagðir slasaðir en þó er talið að um minni háttar áverka sé að ræða. Innlent 3. febrúar 2026 11:22
„Þá kemur bara allt í einu högg“ Maður sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás í Garðabæ á föstudagskvöld kveðst þakklátur fyrir að vera á lífi, hugrakkur vegfarandi hafi ekki hugsað sig tvisvar um áður en hann skarst í leikinn. Meintir árásarmenn eru þrír og allir undir lögaldri. Innlent 2. febrúar 2026 20:32
Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Lögreglan segir að líkamsárás sem átti sér stað í Garðabæ á föstudagskvöldið hafi verið mjög fólskuleg og telur sig vera komna með ágæta mynd af atburðarásinni. Þrír eru grunaðir í málinu en árásarmennirnir eru 16 og 17 ára. Innlent 2. febrúar 2026 12:00
Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Töframaðurinn Daníel Örn Sigurðsson hélt að hann myndi aldrei fá að sjá dætur sínar aftur er hann lá máttvana undir kjaftshöggum og spörkum ungmenna í Garðabæ á föstudagskvöld, sem virðast hafa ráðist tilefnislaust á hann. Daníel rankaði marinn við sér á bráðamóttöku með brotinn handlegg, glóðarauga og skurð fyrir ofan annað augað. Innlent 1. febrúar 2026 11:34
„Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Anton Sveinn McKee, Íslandsmethafi í sundi og formaður Ungra Miðflokksmanna, steig inn í þegar ungmenni réðust á mann við strætóbiðskýli nærri Aktu taktu í Garðabæ seint í gær. Innlent 31. janúar 2026 14:45
Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Í desember 2014 varð mikið áfall innan hestamannahreyfingarinnar þegar tólf hestar fundust drukknaðir í Bessastaðatjörn á Álftanesi. Hrossin höfðu verið í haustbeit á Bessastaðanesinu á vegum Hestamannafélagsins Sóta og Íshesta, og þegar smalað var eftir óveður kom í ljós að óvenju mörg dýr vantaði. Í kjölfarið var farið að leita og þá kom í ljós hið versta: hrossin höfðu farið út á ísinn einhvern síðustu daga, ísinn gefið eftir og þau farið undir. Lífið 25. janúar 2026 10:00
Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður útilokar ekki að hann muni einn daginn skella sér í stjórnmálin og fara í framboð. Myndi hann skipta um starfsvettvang eða færa sig um set gæti valið þó einnig verið allt annað en pólitíkin. Hann myndi til að mynda hafa áhuga á að gerast rithöfundur í franskri sveit. Lífið 24. janúar 2026 13:38
Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. úr hópi 23 umsækjenda. Hann mun hefja störf á næstu dögum. Um er að ræða nýtt félag sem tekur yfir rekstur leiðakerfis Strætó. Viðskipti innlent 23. janúar 2026 10:00
Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Hálfbróðir Margrétar Löf sem var dæmd í 16 ára fangelsi fyrir að ráða föður sínum bana ætlar að halda áfram með kröfu um að hún verði svipt erfðarétti fyrir Landsrétti. Lögmaður hans segir málið ekki snúast um krónur eða aura heldur réttlæti. Það sé bæði lög- og siðfræðilega rétt að fallast á kröfuna. Innlent 16. janúar 2026 19:32
Bergþór og Laufey selja slotið Parið Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, og Laufey Rún Ketilsdóttir, fyrrverandi starfsmaður Miðflokksins, hafa sett húsið sitt í Garðabæ á sölu. Lífið 14. janúar 2026 14:14
Hús Björns og Hafdísar það dýrasta sem hefur verið selt Björn Kristmann Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, eigendur World Class, keyptu í desember af félaginu Í toppformi einbýlishús sem stendur við sjávarlóð á Haukanesi í Garðabæ. Verð hússins var 1,2 milljarðar samkvæmt þinglýstu afsali. Fyrst var greint frá á vef Viðskiptablaðsins. Lífið 11. janúar 2026 13:23
Leita að manneskju við Sjáland Lögregluleit stendur yfir að manneskju í nágrenni við Sjáland í Garðabæ í kvöld. Innlent 8. janúar 2026 20:55
Sex á slysadeild og bílarnir óökufærir Sex voru fluttir á slysadeild með minniháttar áverka eftir árekstur tveggja bíla á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar í Garðabæ rétt eftir klukkan fjögur síðdegis í gær. Um töluverðan árekstur var að ræða, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Innlent 8. janúar 2026 10:47
Árekstur á Álftanesvegi Tveir fólksbílar skullu saman í árekstri á Álftanesvegi í Garðabæ nú síðdegis. Miklar umferðartafir eru á svæðinu á meðan viðbragsaðilar athafna sig. Innlent 7. janúar 2026 16:49
Hafnarfjörður er ekki biðstofa Í áratugi hefur Reykjanesbrautin klofið Hafnarfjörð í tvennt. Á hverjum morgni horfa íbúar í Setbergi og Suðurbæ á eftir dýrmætum tíma í biðröðum sem virðast engan endi ætla að taka. Staðreyndin er sú að íbúar bæjarins búa við verulegar tafir vegna gegnumumferðar sem er bílastraumur sem á ekkert erindi inn í bæinn heldur keyrir aðeins í gegnum hann á leið sinni annað. Skoðun 7. janúar 2026 13:30
Rafmagn komið á að nýju í Garðabæ Rafmagnslaust varð síðdegis í dag vegna háspennubilunar í Garðabæ. Í tilkynningu frá Veitum kom fram að unnið sé að því að greina bilun. Innlent 6. janúar 2026 15:11
Margrét Löf sættir sig ekki við sextán ára dóm Margrét Halla Hansdóttir Löf hefur áfrýjað sextán ára fangelsisdómi, sem hún hlaut fyrir að ráða föður sínum bana á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ í apríl síðastliðnum og að ráðast á móður sína. Innlent 5. janúar 2026 11:30
Strætómiðinn mun kosta 690 krónur eftir áramót Verð á strætómiða fyrir fullorðna hækkar um tuttugu krónur eftir áramót, eða um þrjú prósent. Byggðasamlagið hækkar að jafnaði gjaldskrá sína tvisvar á ári. Gjaldskrárbreytingar taka gildi 6. janúar 2026. Neytendur 30. desember 2025 14:00
Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Upp hafa komið mál á Íslandi þar sem einstaklingar hafa verið sviptir erfðarétti eftir að hafa valdið arfleifanda bana en þau eru afar fá. Héraðsdómur Reykjaness vísaði í gær frá kröfu hálfbróður Margrétar Höllu Löf um að hún yrði svipt erfðaréttinum eftir að hafa banað föður þeirra. Þannig kann Margrét á endanum að hagnast fjárhagslega af því að hafa myrt föður sinn. Innlent 18. desember 2025 07:29
Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Um sex hundruð miðar með orðsendingum sem fundust á heimili Margrétar Höllu Hansdóttur Löf og foreldra hennar, þar sem hún myrti föður sinn, vöktu sérstaka athygli rannsóknarlögreglumanna. Svo virðist sem samskipti fjölskyldunnar hafi að miklu leyti farið fram í gegnum miðasendingar og sumar þeirra eru æði hrottalegar. Innlent 17. desember 2025 14:57
Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Hálfbróðir Margrétar Löf krafðist þess fyrir dómi að ákveðið yrði að með því að drepa föður sinn hafi hún fyrirgert rétti sínum til þess að erfa hann. Kröfu hans var vísað frá dómi og vísað til þess að svipting erfðaréttar teljist samkvæmt lögum til refsikenndra viðurlaga við afbroti og að ákvörðun um slíka kröfu verði að koma frá ákæruvaldinu. Innlent 17. desember 2025 06:30