KR í samstarf við akademíu í Gana Tveir knattspyrnumenn eru væntanlegir til KR á næstu dögum úr Field Masters Academy, knattspyrnuakademíu í Accra í Gana. Koma þeirra er hluti af nýju samstarfi KR við akademíuna. Fótbolti 15.1.2026 15:49
Partey ákærður fyrir nauðgun Thomas Partey, fyrrverandi leikmaður Arsenal á Englandi, hefur verið ákærður af lögregluyfirvöldum í Bretlandi fyrir nauðgun. Ákæruliðirnir eru sex og beinast gegn þremur konum. Fótbolti 4.7.2025 13:56
Súkkulaðið verði dýrara hjá öllum um páskana Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri Freyju og Atli Einarsson, viðskiptastjóri Góu-Lindu, segja von á svipuðum verðhækkunum hjá þeim og hjá Nóa Síríus. Neytendur muni finna fyrir þeim um til dæmis páskana. Þeir fóru yfir alls kyns súkkulaðitengt í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Viðskipti innlent 9.12.2024 11:17
Fjármálaráðuneytið hvetur forsetann til að undirrita ekki löggjöf gegn hinsegin fólki Erlent 5.3.2024 08:22
Fer með farm af fótboltabúnaði heim um jólin: „Þetta skiptir þau öllu máli“ Hin ganverska Samira Suleman, fótboltakona og yngri flokka þjálfari hjá ÍA, safnar nú íþróttabúnaði sem hún fer með til Gana um jólin. Að hennar sögn breytir þetta öllu fyrir ungt fólk í heimabænum hennar. Íslenski boltinn 25. nóvember 2023 08:00
Ganverskur þingmaður bað Maguire afsökunar Harry Maguire, leikmaður Manchester United og enska fótboltalandsliðsins, hefur samþykkt afsökunarbeiðni frá þingmanni í Gana sem henti gaman að honum. Enski boltinn 23. nóvember 2023 16:00
Isaac á leið aftur til Íslands Isaac Kwateng, vallarstjóri Þróttar, hefur fengið dvalar-og atvinnuleyfi. Hann er því væntanlegur til Íslands frá Gana. Innlent 1. nóvember 2023 13:33
Framtíðin sé á Íslandi en verður sendur út eftir nokkra daga Á dögunum kom lögreglumaður á skrifstofu Þróttar og tilkynnti að búið væri að kaupa flugmiða fyrir vallarstjóra félagsins. Honum á að vísa úr landi þann sextánda október næstkomandi. Innlent 4. október 2023 14:08
Vill taka neitunarvaldið af Rússum Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði eftir því í dag að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna yrði breytt á þann veg að hægt yrði að svipta ríki sem eiga fast sæti í ráðinu neitunarvaldi. Öryggisráðið og SÞ gætu ekkert gert vegna stríðsins þar sem árásaraðilinn, Rússland, væri með neitunarvald. Erlent 20. september 2023 16:59
Óttast „stjórnlausan“ flaum hjúkrunarfræðinga frá bágstöddum ríkjum Áhyggjur eru uppi vegna „stjórnlauss“ brottflutnings hjúkrunarfræðinga frá bágstöddum ríkjum á borð við Ghana til efnaðri ríkja, til að mynda Bretlands. Árið 2022 voru 1.200 hjúkrunarfræðingar frá Ghana nýskráðir á lista yfir hjúkrunarfræðinga á Bretlandseyjum. Erlent 6. júní 2023 08:49
Atsu lagður til hinstu hvílu Útför fótboltamannsins Christian Atsu, sem lést í jarðskjálftanum mikla í Tyrklandi í síðasta mánuði, var í dag. Fótbolti 17. mars 2023 15:45
Lík Christian Atsu komið til Gana Lík ganverska fótboltamannsins Christian Atsu var flutt til Gana en hann fórst í jarðskjálftanum ógurlega í Tyrklandi fyrir tveimur vikum. Fótbolti 20. febrúar 2023 09:03
Frökkum gert að yfirgefa Búrkína Fasó Franskir hermenn munu yfirgefa Búrkína Fasó í næsta mánuði. Herforingjastjórn Afríkuríkisins hefur krafist þess að fyrrverandi nýlenduherrar þess fari á brott en herforingjastjórnin hefur að undanförnu leitað frekar til Rússlands eftir aðstoð gegn umsvifamiklum vígahópum á Sahel-svæðinu svokallaða. Erlent 27. janúar 2023 09:03
Nær Gana að hefna fyrir tapið grátlega í Suður-Afríku? Gana og Úrúgvæ eru saman í H-riðli á heimsmeistaramótinu í Katar sem hefst á morgun. Það verður í fyrsta sinn í tólf ár sem þjóðirnar mætast en þá var Gana einni vítaspyrnu frá því að verða fyrsta Afríkuþjóðin að komast í undanúrslit HM. Fótbolti 19. nóvember 2022 14:15
Sviss útvistar loftslagsmarkmiðum til snauðari þjóða Stjórnvöld í Sviss hafa gert samninga við nokkur fátækari ríki um að þau dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda en að Sviss fái heiðurinn af samdrættinum. Sérfræðingar vara við því að samningar af þessu tagi gætu tafið loftslagsaðgerðir í auðugri ríkjum heims. Erlent 9. nóvember 2022 13:49
Talinn hafa ætlað að stela ljónsungum en var drepinn Maður var drepinn af ljónum í dýragarði í Gana, eftir að hann fór yfir girðingu í dýragarði í Accra, höfuðborg landsins, í gær. Talið er að maðurinn hafi mögulega ætlað að stela tveimur sjaldgæfum hvítum hvolpum sem hafa vakið mikla athygli í dýragarðinum. Erlent 29. ágúst 2022 15:01
Tveir látnir í Gana vegna Marburg veirunnar Yfirvöld í Afríkuríkinu Gana hafa staðfest að tveir hafi nú látist í landinu af völdum Marburg veirunnar svokölluðu, en hún er afar smitandi sjúkdómur í ætt við Ebólu. Erlent 18. júlí 2022 07:45
Miklar vonir bundnar við bóluefni gegn malaríu Rúmlega ein milljón barna í Malaví, Gana og Kenía hafa þegar fengið einn eða fleiri bóluefnaskammta gegn malaríu en Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) væntir þess að bóluefnið geti bjargað fjörutíu til áttatíu þúsund börnum í Afríku frá dauða á ári hverju. Heimsmarkmiðin 25. apríl 2022 14:15
Útivallarmark tryggði Ganverjum sæti á HM Gana tryggði sér í kvöld farseðilinn á HM í Katar sem fram fer í desember er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Nígeríu. Fótbolti 29. mars 2022 19:28
Leiðtogafundur um stöðu fólks með fötlun Í vikunni var haldinn í Ósló alþjóðlegur leiðtogafundur um stöðu fólks með fötlun. Talið er að 15 prósent jarðarbúa, einn milljarður manna, sé með fötlun. Af þeim búa 80 prósent í lág- og millitekjuríkjum. Heimsmarkmiðin 18. febrúar 2022 15:01
Flytja alla hermenn frá Malí vegna versnandi samskipta við herstjórnina Franskir hermenn og bandamenn þeirra munu yfirgefa Malí eftir nærri því tíu ára baráttu við vígamenn íslamista þar og í öðrum ríkjum Vestur-Afríku. Ástæðan er versnandi pólitískt samstarf með herstjórn Malí sem tók þar völd árið 2020. Erlent 17. febrúar 2022 14:58
Óttast að tugir séu látnir: Flutningabíll og mótorhjól skullu saman Talið er að tugir hafi látist þegar flutningabíll sprakk í loft upp í Gana í Vestur-Afríku fyrr í dag. Í bílnum voru sprengiefni sem nota átti við námugröft. Erlent 20. janúar 2022 23:08
Hyggjast bólusetja alla óbólusetta við komuna til Gana Stjórnvöld í Gana hyggjast bólusetja alla borgara og íbúa landsins við komuna á flugvöllum frá og með mánudegi, ef þeir hafa ekki þegar þegið bóluefni. Þá verður þeim sem yfirgefa landið gert að framvísa sönnun um bólusetningu. Erlent 10. desember 2021 12:11
Fyrrverandi forseti Gana er látinn Jerry John Rawlings, fyrrverandi forseti Gana, er látinn, 73 ára að aldri. Erlent 12. nóvember 2020 14:23
Ráku alla landsliðsþjálfarana sína á einu bretti Það er óhætt að segja að yfirmenn knattspyrnusambands Gana hafi ákveðið að taka til í landsliðsstarfi sínu um áramótin. Fótbolti 3. janúar 2020 10:30