Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Svo virðist sem betur hafi farið en á horfði þegar lítilli tveggja sæta flugvél hlekktist á við lendingu á Norðfjarðarflugvelli í dag og hvolfdi. Einn var í flugvélinni og slapp hann án meiðsla, samkvæmt tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi. Innlent 22.4.2026 18:20
Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Við, Samfylkingin og annað félagshyggjufólk í Fjarðabyggð, bjóðum fram í komandi sveitarstjórnarkosningum vegna þess að okkur er annt um samfélagið okkar og viljum halda áfram að leggja okkar af mörkum til að gera það enn betra. Við stöndum fyrir skýrum gildum og höfum ávallt gert: jöfnuð, ábyrgð og uppbyggingu sem skilar sér í betra samfélagi. Skoðun 22.4.2026 09:32
Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Áhugi norska ríkisolíufélagsins Petoro á frekari olíuleit á Drekasvæðinu virðist takmarkaður ef marka má svar þess við fyrirspurn Austurfréttar. Félagið hafi skilað inn rannsóknarleyfi sínu því ekki væri talið að þar leyndist einhver olía að ráði. Innlent 17.4.2026 12:59
Rýma hús á Seyðisfirði Ákveðið hefur verið að rýma hús á Seyðisfirði vegna snjóflóðahættu. Um tíu manns munu þurfa að yfirgefa heimili sín klukkan átta í kvöld. Innlent 23. mars 2026 19:20
Fáskrúðsfjarðargöngin opin á ný Fáskrúðsfjarðargöngum var lokað rétt fyrir klukkan níu vegna umferðaróhapps. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrastofnun. Innlent 22. mars 2026 09:32
Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Slökkvilið Fjarðabyggðar var í tvígang kallað út vegna gróðurelda í dag. Grunur er um að íkveikja hafi valdið seinni brunanum, sem náði yfir um tveggja hektara svæði. Innlent 21. mars 2026 21:22
Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla. Innlent 19. mars 2026 12:10
Um Fjarðarheiðargöng og samgönguáætlun Ekki er hægt að segja að það hafi komið á óvart að í fréttum sýnar í gærkvöldi hafi Kristján Már Unnarsson verið með umfjöllun um drög að samgönguáætlun. Skoðun 18. mars 2026 12:17
Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson bæjarfulltrúi er oddviti lista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Listinn var samþykktur samhljóða á félagsfundi í Neskaupstað í kvöld. Innlent 17. mars 2026 23:18
Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum. Innlent 17. mars 2026 21:41
Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Snarpri en góðri loðnuvertíð er að ljúka. Í dag voru aðeins fjögur skip eftir á miðunum og er búist að þau verði öll búin með kvótann á morgun. Nítján íslensk skip sinntu loðnuveiðunum að þessu sinni. Viðskipti innlent 12. mars 2026 21:00
Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Sofin og vakin hafa hjónin Jóna Björg Óskarsdóttir og Víglundur Jón Gunnarsson sett mark á bæjarbraginn í Neskaupsstað með fjölbreytilegum og persónulegum verslunarrekstri í rúm 40 ár. Nú er þó mál að linni, Víglundur hefur staðið sína síðustu vakt í byggingavöruversluninni PAN og fram undan er langt og langþráð frí. Innlent 6. mars 2026 07:03
Með skerta athygli af óþekktum ástæðum þegar slysið varð Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur þá sem flytja inn ökutæki til að flytja ekki inn bíla sem eru án loftpúða fyrir farþega í framsæti. Í nýrri skýrslu nefndarinnar um banaslys við Kross í Berufirði í mars í fyrra segir að meginorsök slyssins hafi verið að öðrum bílnum hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming og að ökumaður hafi verið með skerta athygli. Innlent 4. mars 2026 09:22
Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út á nokkrum stöðum á Austurlandi síðdegis og í kvöld meðan appelsínugul veðurviðvörun hefur staðið yfir. Útköllin snúa fyrst og fremst að því að tryggja samgöngur og koma heilbrigðisstarfsfólki til og frá vinnu. Innlent 2. mars 2026 20:22
Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Skólahaldi var aflýst í tveimur skólum í Múlaþingi í morgun vegna veðurs og þá loka skólar í Fjarðabyggð á hádegi. Hringveginum um Mývatn og Möðrudalsöræfi var lokað í morgun og ekki er búist við að hann opni á ný fyrr en í fyrramálið. Innlent 2. mars 2026 11:55
Austurland er þjóðinni mikilvægt Austurland er þjóðinni mikilvægt, það vitum við vel sem leggjum mikið til þjóðarbúsins. Því miður virðist sem fjarlægðin við Alþingi og suðvesturhorn landsins valdi þekkingarleysi á þessum fjarlæga stað. Skoðun 26. febrúar 2026 11:31
Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Björgunarsveitarfólk á Austurlandi hafði í nægu að snúast í hvassviðri og kófi í gærkvöldi. Fjórtán manns í smárútu sem lenti utan vegar í Fagradal var komið til aðstoðar og ferðafólki í nokkrum bílum á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Innlent 25. febrúar 2026 08:08
Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð samþykkti framboðslistann fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Ragnar Sigurðsson formaður bæjarráðs verður áfram oddviti listans. Innlent 21. febrúar 2026 14:09
Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Stefaníu Helgadóttur, íbúa í Neskaupstað, brá í brún í fyrrakvöld þegar hún sá að lituðu efni hefði verið skvett á heimili hennar. Þetta sé þó ekki í fyrsta skipti sem hún verður fyrir hrekkjum ungmenna en ólíkt áður gáfu ungmennin sig fram, þrifu húsið og fengu því bakkelsi. Innlent 20. febrúar 2026 17:06
Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Lagafrumvarp um lagareldi, sem nú er til umfjöllunar, markar tímamót. Þar er í fyrsta sinn lögð fram heildstæð löggjöf um eina af mikilvægustu atvinnugreinum landsins, með skýrari ramma, auknum fyrirsjáanleika og skýrum kröfum um umhverfisvernd, vöktun og ábyrgð. Skoðun 9. febrúar 2026 17:01
Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. Viðskipti innlent 29. janúar 2026 21:42
Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi á veginum í Fagradal, vegna hættu á því að snjóflóð gæti fallið á hann. Innlent 29. janúar 2026 21:03
Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði. Viðskipti innlent 28. janúar 2026 21:31
Halda til loðnuveiða í kvöld Reiknað er með því að tvö skip haldi til loðnuveiða frá Neskaupstað í kvöld, Barði NK frá Síldarvinnslunni og grænlenska skipið Polar Amaroq. Polar Amaroq kom með fyrstu loðnu vertíðarinnar til Neskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag. Viðskipti innlent 26. janúar 2026 12:14