Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar 12. október 2026 11:15 Pólitíski munurinn á hægri og vinstri birtist skýrt í umræðunni um Drekasvæðið. Fjárfestar vilja leggja eigið fé í rannsóknir og taka fjárhagslega áhættu. Við sem trúum á einkaframtakið viljum greiða fyrir því. Andstaðan á þingi virðist hins vegar snúast um að stjórnmálamenn eigi að meta fyrir fjárfestana hvort tækifærið sé þess virði að kanna. Það er einmitt þetta sem bæjarráð Fjarðabyggðar hefur kallað eftir í bókunum sínum: frekari rannsóknum og því að einkaaðilum verði gefið færi á að fjármagna þær og bera fjárhagslegu áhættuna. Krafan hefur aldrei verið um að stjórnvöld ábyrgist olíufund. Hún snýst um að afla þekkingarinnar sem vantar. Greinargerð Umhverfis- og orkustofnunar byggir meðal annars á gögnum fyrri leyfishafa. Þar kemur fram að rannsóknarborun sé eina leiðin til að draga úr óvissunni í túlkun rannsakenda. Þannig mætti kanna betur eldri jarðlög og möguleika á myndun og varðveislu kolvetna. Þetta er rannsóknarþörfin sem bæjarráð hefur bent á. Mér finnst stjórnarþingmenn samt grípa fegins hendi það sem styður áframhaldandi aðgerðaleysi. Eydís Ásbjörnsdóttir tók þó fram í ræðu sinni á Alþingi að niðurstaða greinargerðarinnar útilokaði ekki frekari rannsóknir. Það er jákvætt, en þeirri viðurkenningu verða að fylgja aðgerðir. Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur einmitt kallað eftir frekari rannsóknum og því að einkaaðilum verði gefið færi á að fjármagna þær og bera fjárhagslegu áhættuna. Ef frekari rannsóknir koma til greina og fjárfestar vilja ráðast í þær er ekkert annað að gera en hefjast handa. Rannsóknirnar sjálfar gætu skapað störf og orðið innspýting í öflugt atvinnulíf Austurlands. Þær krefjast sérfræðiþekkingar, flókins búnaðar og umfangsmikillar tækni. Þeim gætu fylgt verkefni fyrir hafnir, skipaþjónustu, verkstæði, flutningafyrirtæki og tæknilega ráðgjafa. Þekkingin sem verður til hefur jafnframt gildi óháð hugsanlegum olíufundi. Ríkisstjórnin segist vilja rjúfa kyrrstöðu og auka verðmætasköpun. Þá þarf hún að vinna með þeim sem vilja fjárfesta. Hlutverk stjórnvalda er að setja skýrar reglur, tryggja eftirlit og gera kröfur um umhverfi, öryggi og getu fjárfestanna. Fögnum því að einkaaðilar hafi trú á svæðinu og vilja leggja fé í rannsóknir. Verðmætasköpun krefst frumkvæðis og áhættutöku. Einkaframtakið vill taka fjárhagslegu áhættuna. Stjórnvöld eiga að greiða fyrir því að rannsóknir geti hafist. Höfundur er formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnar Sigurðsson Olíuleit á Drekasvæði Fjarðabyggð Mest lesið Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Sjá meira
Pólitíski munurinn á hægri og vinstri birtist skýrt í umræðunni um Drekasvæðið. Fjárfestar vilja leggja eigið fé í rannsóknir og taka fjárhagslega áhættu. Við sem trúum á einkaframtakið viljum greiða fyrir því. Andstaðan á þingi virðist hins vegar snúast um að stjórnmálamenn eigi að meta fyrir fjárfestana hvort tækifærið sé þess virði að kanna. Það er einmitt þetta sem bæjarráð Fjarðabyggðar hefur kallað eftir í bókunum sínum: frekari rannsóknum og því að einkaaðilum verði gefið færi á að fjármagna þær og bera fjárhagslegu áhættuna. Krafan hefur aldrei verið um að stjórnvöld ábyrgist olíufund. Hún snýst um að afla þekkingarinnar sem vantar. Greinargerð Umhverfis- og orkustofnunar byggir meðal annars á gögnum fyrri leyfishafa. Þar kemur fram að rannsóknarborun sé eina leiðin til að draga úr óvissunni í túlkun rannsakenda. Þannig mætti kanna betur eldri jarðlög og möguleika á myndun og varðveislu kolvetna. Þetta er rannsóknarþörfin sem bæjarráð hefur bent á. Mér finnst stjórnarþingmenn samt grípa fegins hendi það sem styður áframhaldandi aðgerðaleysi. Eydís Ásbjörnsdóttir tók þó fram í ræðu sinni á Alþingi að niðurstaða greinargerðarinnar útilokaði ekki frekari rannsóknir. Það er jákvætt, en þeirri viðurkenningu verða að fylgja aðgerðir. Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur einmitt kallað eftir frekari rannsóknum og því að einkaaðilum verði gefið færi á að fjármagna þær og bera fjárhagslegu áhættuna. Ef frekari rannsóknir koma til greina og fjárfestar vilja ráðast í þær er ekkert annað að gera en hefjast handa. Rannsóknirnar sjálfar gætu skapað störf og orðið innspýting í öflugt atvinnulíf Austurlands. Þær krefjast sérfræðiþekkingar, flókins búnaðar og umfangsmikillar tækni. Þeim gætu fylgt verkefni fyrir hafnir, skipaþjónustu, verkstæði, flutningafyrirtæki og tæknilega ráðgjafa. Þekkingin sem verður til hefur jafnframt gildi óháð hugsanlegum olíufundi. Ríkisstjórnin segist vilja rjúfa kyrrstöðu og auka verðmætasköpun. Þá þarf hún að vinna með þeim sem vilja fjárfesta. Hlutverk stjórnvalda er að setja skýrar reglur, tryggja eftirlit og gera kröfur um umhverfi, öryggi og getu fjárfestanna. Fögnum því að einkaaðilar hafi trú á svæðinu og vilja leggja fé í rannsóknir. Verðmætasköpun krefst frumkvæðis og áhættutöku. Einkaframtakið vill taka fjárhagslegu áhættuna. Stjórnvöld eiga að greiða fyrir því að rannsóknir geti hafist. Höfundur er formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar.
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar