Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leyfarnar af Glitni í Noregi hafa verið seldar Leyfarnar af Glitni í Noregi, Glitnir Marine Finance, hafa nú verið seldar. Kaupandinn er Cleaves Shipbroking. Um leið verður nafni félagsins, sem sérhæfir sig í fjármögunun á skipum, breytt í Cleaves Marine Finance. 27.10.2008 12:25
Seðlabanki svarar ekki fullyrðingum Björgólfs Thors Engin svör fást í Seðlabankanum við fullyrðingum Björgólfs Thors Björgólfssonar um að bankinn hefði getað afstýrt óvissunni með Icesavereikninganna og milliríkjadeilunni sem hún hefur skapað. 27.10.2008 12:00
Hefðum sloppið við gjaldeyriskreppuna með ESB-aðild Ísland væri ekki að takast á við gjaldeyriskreppu og alveg spurning hvort að bankakreppan væri hér ef Ísland hefði verið aðili að Evrópusambandinu. Þetta er álit greiningar Glitnis. 27.10.2008 11:53
Icesave-innistæðueigendur fá endurgreitt í næsta mánuði Tryggingasjóður innistæðueigenda í Bretlandi hyggst byrja að greiða innistæðueigendunum á Icesave-reikingum Landsbankans þar í landi fjármuni sína til baka eftir um tíu daga. Reiknað er með að flestir innistæðueigendur verði búnir að fá fé sitt til baka í lok nóvember. 27.10.2008 11:44
Skítastaða áfram í gjaldeyrismálum - Ögurvík hættir sölu til Bretlands Svo virðist sem erlendir bankar ætli að bíða eftir formlegu samkomulagi Alþjóðgjaldeyrissjóðsins. Áfram er skítastaða í gjaldeyrisviðskiptunum að sögn Arnars Sigurmundssonar, formanns Samtaka fiskvinnslustöðva. Ögurvík er hætt að selja fisk til Bretlands meðan ástandið varir. 27.10.2008 11:02
Deutsche Postbank tapar miklu á íslensku bönkunum Deutsche Postbank skilaði tapi á þriðja ársfjórðungi upp á tæplega 450 milljónir evra eða rúmlega 67 milljarða kr. Stór hluti tapsins skýrist af hruni íslensku bankanna og töpuðum útlánum sökum þessa. 27.10.2008 10:48
Bakkavör á athugunarlista vegna viðtals í Markaðinum Bakkavör hefur verið fært á athugunarlista kauphallarinnar á grundvelli laga um fyrirtöku hlutabréfa til viðskipta. 27.10.2008 10:19
Færeyjabanki niður í afar fáum viðskiptum Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka féll um rúm 4,8 prósent við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í dag. Þá lækkaði gengi bréfa í Marel Food Systems um 1,4 prósent og í Össuri um 0,58 prósent. 27.10.2008 10:19
Carnegie fær 16 milljarða kr. aðstoð frá Rikisbanken Fjárfestingabankinn Carnegie fær í dag 16 milljarða kr. eða 1 milljarð sænskra kr. frá Riksbanken það er seðlabanka Svíþjóðar. 27.10.2008 10:01
Norðursjávarolían undir 60 dollara tunnan Verð á Norðursjávarolíunni fór undir 60 dollara á tunnuna í morgun. Á sama tíma fór bandaríska léttolían niður í 62,50 dollara og hefur ekki verið lægri í 17 mánuði. 27.10.2008 09:55
Áfram hrun á mörkuðum í Evrópu Hlutabréfavísitölur hafa lækkað mikið á mörkuðum í Evrópu í morgun í kjölfar mikil hruns á Asíumörkuðum. Einn mest lækka vísitölurnar á Norðurlöndunum. 27.10.2008 09:51
Íslensk stjórnvöld biðja Norðurlönd um 500 milljarða kr. í dag Íslenska stjórnin vonast til að hin Norðurlöndin samþykki lán til Íslands upp á 4 milljarða dollara eða sem svarar tæplega 500 milljörðum kr.. Málið verður rætt á fundi forsætisráðherra landanna í Helskinki síðdegis í dag. 27.10.2008 09:25
Vonast til að staða Íslands skýrist á ráðherrafundi í dag Geir H. Haarde forsætisráðherra segist vonast til að hægt verði að skýra stöðu Íslands og hvaða ráð séu tiltæk í efnahagskreppunni þegar forsætisráðherrar Norðurlandanna koma saman til fundar í Finnlandi í dag. 27.10.2008 09:07
Elbodan tekur yfir búðir og starfsfólk Merlin Elbodan mun taka yfir búðir og starfsfólk verslunarkeðjunnar Merlin í Danmörku. Merlin sem er í eigu Árdegis fékk sem kunnugt er greiðslustöðvun um helgina. 27.10.2008 09:02
Nikkei á tímabili ekki lægri síðan 1982 Hlutabréf lækkuðu á mörkuðum í Asíu í morgun. Nikkei-vísitalan lækkaði um 6,4 prósentustig og náði á tímabili sinni lægstu stöðu síðan árið 1982. 27.10.2008 07:15
Merlin fer fram á greiðslustöðvun - Bankahrun hindraði sölu Danska raftækjaverslunin Merlin, sem er í eigu íslenska félagsins Árdegis, sem meðal annars rekur Skífuna, Next og Noa Noa, hefur farið fram á greiðslustöðvun. 26.10.2008 23:29
Úkraína sækir 16,5 milljarða dala lán til IMF Úkraína hefur náð samkomulagi við Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn um 16,5 milljarða dala lán til að fást við fjármálakreppuna sem nú geysar í heiminum. 26.10.2008 16:30
Strauss-Kahn braut ekki af sér en sýndi af sér dómgreindarskort Dominique Strauss-Kahn, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sýndi af sér alvarlegan dómgreindarskort með því að eiga í ástarsambandi við undirmann sinn hjá stofnuninni. Hins vegar misbeitti hann ekki valdi sínu til þess að tryggja ástkonunni betri starfslokasamning en öðrum þegar hún hætti hjá sjóðnum fyrr á árinu. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem ráðist var í eftir að ásakanir á hendur Strauss-Kahn þessa efnis voru settar fram. 26.10.2008 16:29
Hugsanlegt að olíuframleiðsla dragist enn meira saman Mögulegt er að olíuframleiðsla verði minnkuð enn meira á næstunni vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði. Þetta segir Mohammad Ali Khatibi, fulltrúi Írana hjá OPEC, samtökum olíuframleiðsluríkja. Ráðgert er að næsti fundur OPEC fari fram í Alsír í desember. 26.10.2008 15:17
Áætlunin réttlætir aðgengið Stórhuga áætlun Íslands um efnahagsumbætur, stuðning við krónuna og endurreisn fjármálakerfis landsins réttlætir aðgengi þjóðarinnar að sjóðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 25.10.2008 18:00
Gjaldfelldu lán án tafar Aðstoðarmaður Samson eignarhaldsfélags í greiðslustöðvun þess hefur gert fyrirvara við réttmæti skuldajöfnunar Straums-Burðaráss við félagið, að því er fram kemur í tilkynningu sem Straumur sendi frá sér í gær. 25.10.2008 18:00
Neita ábyrgð á falli Kaupþings Tilvísun Gordon Brown í stórfelldar tilfærslur á fjármagni frá Bretlandi til Íslands dögum fyrir fall bankanna átti ekki við um Landsbankann. 25.10.2008 17:50
Aðeins ein kona í hópi 10 stjórnenda Kaupþings Allir yfirmenn hins nýja Kaupþings sátu áður í stjórnunarstöðum í gamla bankanum. Af tíu stjórnendum er aðeins ein kona. Nýtt skipurit hins nýja Kaupþings banka var kynnt í gær. Allir yfirmenn hins nýja banka - fyrir utan nýráðinn bankastjóra - sátu áður í stjórnunarstöðum í gamla bankanum. 25.10.2008 12:32
Forstjóra Auðar Capital var boðin forstjórastaða Nýja Kaupþings Kristínu Pétursdóttur, forstjóra Auðar Capital, var boðin forstjórastaðan í Nýja Kaupþingi þegar hann tók til starfa. Þetta kom fram í Markaðnum á Stöð 2 í morgun. 25.10.2008 11:54
Hugmyndin um að færa Kaupþing úr landi var á umræðustigi Hugmyndin um að færa Kaupþing banka úr landi var komin á umræðustig þegar bankinn féll. Þetta sagði Lýður Guðmundsson, kenndur við Bakkavör, í samtali við Björn Inga Hrafnsson á Markaðnum á morgun. 25.10.2008 11:34
Breskir Icesave innistæðueigendur fá pening sinn til baka Breskir Icesave innistæðueigendur munu fá allan sinn pening til baka á næstu dögum. Þetta kemur fram á vefsíðu breska dagblaðsins The Guardian. Haft eftir fulltrúa breska innlánstryggingasjóðsins að allar innistæður verði greiddar út auk vaxta frá því Landsbankinn var þjóðnýttur í byrjun mánaðarins. 25.10.2008 10:01
Framkvæmdastjóri IMF: Ísland verðskuldar stuðning Alþjóðasamfélagsins Ísland hefur mótað metnaðarfulla efnahagsáætlun sem miðar að því að auka traust á bankakerfinu, að auka stöðugleika krónunnar með sterkum efnahagsaðgerðum og að hagræða eftir hrun bankanna,“ 24.10.2008 17:23
Búast við 15,7 prósenta verðbólgu í október Greiningardeild Kaupþings spáir því að verðbólga í október reynist 15,7 prósent og hækki þannig um tæp tvö prósentustig á milli mánaða. Nýjar verðbólgutölur verða birtar á mánudag og í hálffimmfréttum Kaupþings kemur fram að greiningardeildin geri ráð fyrir að verðlag hækki um um það bil tvö prósent. 24.10.2008 17:17
Kaupþingskóngar gætu tapað 281 milljón á starfslokagreiðslum Í ársskýrslu Kaupþings frá árinu 2007 kemur fram að ef stjórnarformaður og forstjóri bankans segi upp störfum fái þeir greidd laun næstu 12 mánuði. Hætti þeir hinsvegar störfum af öðrum ástæðum fá þeir greidd laun í 48 mánuði frá því að þeir hætta störfum. Steinar Þór Guðgeirsson formaður skilanefndar Kaupþings þekkir ekki til þessa ákvæðis í samningi forstjórans og stjórnarformannsins og vill ekkert láta eftir sér hafa um málið. 24.10.2008 16:58
Eik Banki selur hlut sinn í SPRON Stjórn Eik Bank hefur í dag ákveðið að selja allan hlut félagsins í SPRON hf., samtals 422.450.084 hluti eða sem nemur 8,44% af heildarhlutafé, til Eik Grunnurin. 24.10.2008 16:19
Eimskip enn á uppleið en Bakkavör féll Gengi hlutabréfa í Bakkavör skall niður um 23,4 prósent í einum viðskiptum upp á rétt rúm 40 þúsund krónur í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi Century Aluminum, sem féll um 16,7 próent, Icelandair fór niður um 2,75 prósent og Færeyjabanki um 2,69 prósent. 24.10.2008 15:35
Krónan styrkist eftir aðkomu IMF Krónan tók kipp eftir að tilkynnt var að ríkisstjórnin hafi formlega óskað eftir samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til að koma á efnahagslegum stöðugleika á Íslandi. Krónan styrktist um tvö prósent eftir veikingu í morgun. 24.10.2008 15:28
Straumur keypti 12 milljónir evra af Samson Í forsíðufrétt Fréttablaðsins í morgun, undir fyrirsögninni „Færðu milljarða fyrir greiðslustöðvun“, er því haldið fram að Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. hafi greitt Samson eignarhaldsfélagi ehf. („Samson“) umtalsverða fjármuni þann 7. október síðastliðinn, sama dag og Samson fékk greiðslustöðvun. Straumur tjáir sig að öllu jöfnu ekki um málefni einstakra viðskiptavina en telur þó að forsíðufrétt Fréttablaðsins gefi tilefni til að upplýsa hið rétta í málinu. 24.10.2008 15:23
Utanríkisráðherra Noregs á leið til Íslands til að ræða fjármálin Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra Noregs kemur í heimsókn til Íslands á sunnudaginn 2. nóvember til viðræðna um fjármálakreppuna hér. 24.10.2008 14:45
Finnair segist ekki vera að kaupa Sterling Finnair hefur nú bætst í hóp þeirra flugfélaga sem segjast ekki vera að kaupa Sterling. Það er því enn leyndarmál við hverja Sterling er að semja um kaupin. 24.10.2008 13:49
Mikið fall á bandarískum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa hríðféll í blóðrauðri byrjun viðskiptadagsins á Wall Street í Bandaríkjunum í dag. Skelfingin stafar fyrst og fremst af sterkum orðrómi um að gjaldþrot sé nú yfirvofandi hjá bandaríska bílaframleiðandanum General Motors (GM). Vart er á bætandi ótta fjárfesta að fjármálavandinn geti valdið efnahagskreppu víða um heim. 24.10.2008 13:33
Hvíta húsið skammar OPEC Bandarísk stjórnvöld segja þá ákvörðun OPEC ríkjanna að draga úr olíuframleiðslu markaðsfjandsamlega. OPEC, samtök olíuframleiðsluríkja, ákváðu á fundi sínum í Vín í gær að draga úr olíuframleiðslu um sem nemur 1,5 milljónum tunna á dag til að stemma stigu við lækkandi olíuverði. Tunnan fór hæst í 147 dollara í sumar, en hefur vegna minnkandi eftirspurnar undanfarið lækkað töluvert í verði, og er nú komin niður í rúman 61 dollar. 24.10.2008 13:14
Seðlabanki ESB mun verja dönsku krónuna fram í rauðan dauðan Fari svo að Seðlabanki Danmerkur geti ekki varið gengi dönsku krónunnar mun Seðlabanki Evrópu gera slíkt fram í rauðan dauðan. Stýrivaxtahækkun Seðlabanka Danmerkur í dag, þvert á ástand efnahagsmála, var til að bregðast við miklu útstreymi gjaldeyris frá landinu. 24.10.2008 13:12
Eik Banki tapaði rúmlega 600 milljónum kr. Tap Eik Banki í Færeyjum á þriðja ársfjórðungi ársins eftir skatta nam 31,7 milljónum danskra kr. eða rúmlega 600 milljónum kr. 24.10.2008 12:53
Viðskipti stöðvuð í Kauphöll New York Lokað var fyrir framvirka samninga á Dow Jones hlutabréfavísitöluna í morgun eftir að verð féll um meira en 550 punkta. Ekki er hægt að eiga frekari viðskipti fyrr en klukkan hálf tíu, þgar kauphöllin opnar. 24.10.2008 12:32
Stýrivextir hækkaðir í Danmörku þrátt fyrir versnandi efnahag Danski seðlabankinn hækkaði í dag stýrivexti sína í annað skiptið frá upphafi mánaðar þrátt fyrir versnandi efnahagshorfur í Danmörku. 24.10.2008 12:25
Bílaútflutningur frá Íslandi gæti orðið umtalsverð búbót Bílaútflutningur gæti skilað þjóðarbúinu umtalsverðum og kærkomnum gjaldeyristekjum á næstu mánuðum. Til stendur að breyta lögum um opinber gjöld af bifreiðum á þann hátt að þau fáist endurgreidd að verulegu eða öllu leyti við útflutning notaðrar bifreiðar. 24.10.2008 12:19
„Gamla kreppan“ 79 ára í dag Í dag eru 79 ár frá „svarta fimmtudeginum“ 24. október 1929 sem margir telja að hafi markað upphaf heimskreppu fjórða áratugar 20. aldarinnar. 24.10.2008 11:46
Orðrómur um gjaldþrot GM veldur skelfingu á mörkuðum Skelfingin sem nú ríkir á fjármálamörkuðum heimsins stafar af sterkum orðrómi um að gjaldþrot sé nú yfirvofandi hjá bandaríska bílaframleiðandanum General Motors. 24.10.2008 11:17
Hrun Íslands var ögurstund hjá mörgum vogunarsjóða heimsins Mikil örvænting hefur gripið um sig meðal vogunarsjóða heimsins þar sem margir reyna nú að losa fjármuni sína og stöður úr þeim. "Hrun Íslands var ögurstund hjá mörgum vogunarsjóðum heimsins," segir Muska Chiu yfirmaður hjá Citigroup Private bank í Hong Kong. 24.10.2008 10:39