Viðskipti innlent

Bílaútflutningur frá Íslandi gæti orðið umtalsverð búbót

Bílaútflutningur gæti skilað þjóðarbúinu umtalsverðum og kærkomnum gjaldeyristekjum á næstu mánuðum. Til stendur að breyta lögum um opinber gjöld af bifreiðum á þann hátt að þau fáist endurgreidd að verulegu eða öllu leyti við útflutning notaðrar bifreiðar.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að á vef Bílgreinasambandsins komi fram að u.þ.b. 8-10.000 notaðir bílar séu nú til sölu hér á landi, og að meðalverð á notuðum bílum sé í námunda við 2,5 milljónir króna.

Þótt veruleg óvissa ríki um hve hátt verð muni fást fyrir þessa bíla erlendis og ljóst að aðeins mun hluti þeirra verða sendur úr landi má ætla að talsverðar gjaldeyristekjur myndu fást með þessu móti. Auk þess mun slík sala létta töluvert undir með heimilum sem eiga töluverða fjármuni bundna í bifreiðum á sölu hérlendis.

Loks er gengi krónu afar hagstætt fyrir slík viðskipti í dag, sér í lagi með nýlega bíla sem keyptir voru þegar krónan stóð hvað sterkust á fyrri hluta síðasta árs. Má því ætla að efnahagslegur ávinningur af slíkum útflutningi geti verið töluverður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×