Viðskipti erlent

Strauss-Kahn braut ekki af sér en sýndi af sér dómgreindarskort

Dominique Strauss-Kahn.
Dominique Strauss-Kahn.

Dominique Strauss-Kahn, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sýndi af sér alvarlegan dómgreindarskort með því að eiga í ástarsambandi við undirmann sinn hjá stofnuninni. Hins vegar misbeitti hann ekki valdi sínu til þess að tryggja ástkonunni betri starfslokasamning en öðrum þegar hún hætti hjá sjóðnum fyrr á árinu. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem ráðist var í eftir að ásakanir á hendur Strauss-Kahn þessa efnis voru settar fram.

Strauss-Kahn átti í skammvinnu sambandi Pirosku Nagy, sem vann hjá Afríkudeild sjóðsins, fyrr á þessu ári. Þegar hún hætti svo í kjölfarið hjá sjóðnum vöknuðu grundsemdir um aðkomu forstjórans að því. Óháð lögfræðifyrirtæki hefur nú komist að því að Strauss-Kahn hafi ekki misnotað aðstöðu sína til að knýja Nagy til að hætta eða tryggt henni sérstakan starfslokasamning. Hann er hins vegar sagður hafa gerst sekur um alvarlegan dómgreindarskort með því að hafa átt í sambandinu.

Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hittist í gær til að fjalla um málið og komst að því að með niðurstöðu lögfræðifyrirtækisins væri málinu lokið og því gæti Straus-Kahn haldið áfram starfi sem forstjóri. Sjálfur sagðist Frakkinn í yfirlýsingu þakklátur fyrir að stjórn sjóðsins hefði staðfest að hann hefði ekki brotið af sér. Hann viðurkenndi hins vegar dómgreindarskortinn og baðst afsökunar á honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×