Viðskipti erlent

Hrun Íslands var ögurstund hjá mörgum vogunarsjóða heimsins

Mikil örvænting hefur gripið um sig meðal vogunarsjóða heimsins þar sem margir reyna nú að losa fjármuni sína og stöður úr þeim. "Hrun Íslands var ögurstund hjá mörgum vogunarsjóðum heimsins," segir Muska Chiu yfirmaður hjá Citigroup Private bank í Hong Kong.

Í frétt á Timesonline segir að stjórnendur kauphalla og markaða gætu neyðst til að loka þeim, upp í allt að tvær vikur, til að reyna að stöðva örvæntinguna hjá fjárfestum í vogunarsjóðum.

Nouriel Roubini prófessor við New York háskólann segir að hundruðir vogunarsjóða séu í hættu á gjaldþroti þar sem fjárfestar eru í óðaönn að losa fé sitt úr þeim. Oft með því að yfirmenn sjóðanna eru neyddir til að selja eignir þeirra á brotajárnsverði.

Jon Moulton, eigandi fjárfestingasjóðsins Alchemy spáir því að meirihluti vogunnarsjóða í Bretlandi, eða 60% þeirra, muni hrynja á næstu þremur mánuðum.

Framangreind orð Muska Chiu eru úr frétt á Bloomberg-fréttaveitunni um breytta tíma í fjármálalífi heimsins. "Fjármálakerfið er í umbreytingu frá gamla tímanum yfir í hinn nýja og við höfum ekki fundið svörin, " segir Chiu. "Markaðurinn mun verða á einskismannslandi þar til við sjáum hvernig nýi tíminn lítur út."

Menn eru almennt sammála um að vogunarsjóðir í núverandi mynd muni ekki tilheyra nýja tímanum á fjármálamörkuðum heimsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×