Merlin fer fram á greiðslustöðvun - Bankahrun hindraði sölu 26. október 2008 23:29
Danska raftækjaverslunin Merlin, sem er í eigu íslenska félagsins Árdegis, sem meðal annars rekur Skífuna, Next og Noa Noa, hefur farið fram á greiðslustöðvun. Fram kemur í tilkynningu Árdegist að um næstu mánaðarmót séu nákvæmlega þrjú ár liðin frá kaupum Árdegis á raftækjaverslunum Merlin. ,,Félagið hafði verið rekið með miklu tapi um margra ára skeið en í félaginu voru að mati Árdegis mikil verðmæti og gríðarleg tækifæri. Við tók þrotlaus vinna við endurskipulagningu og breytingar á starfseminni sem áttu að koma þessu áttatíu ára félagi í gott form að nýju. Þetta var þriggja ára verkefni og fyrir lá nákvæm áætlun um verkið. Í öllum meginatriðum hefur sú áætlun gengið fullkomlega eftir. Fjármálakreppan sem hófst í upphafi ársins hafði slæm áhrif á fjármögnun og rekstur Merlin A/S og mjög þrengdi að varðandi vöruúttektir vegna lækkunnar lánshæfismats íslenskra aðila almennt og þeirrar auknu óvissu sem skapaðist á fjármálamörkuðum," segir í tilkynningunni. Þar kemur enn fremur fram að breytingar hafi verið gerðar á árinu og útlit hafi verið fyrir jákvæða rekstrarniðurstöðu á yfirstandandi ári. Þá hafi Árdegi ætlað að selja félagið og höfðu verðhugmyndir sem nefndar voru í því sambandi verið allar mjög velviðunandi. Ráðist var í viðræður vid tvo aðila á sama markaði sem höfðu áhuga á að kaupa Merlin og var gert ráð fyrir sölu um miðjan október til annars aðilans. Hins vegar hafi fall íslensku bankana orðið til þess að kippa fótunum undan söluferlinu. ,,Fjárhagslegur trúverðuleiki gufaði upp á einni nóttu. Þau fyrirtæki sem tryggja birgja Merlin fyrir úttektum felldu sínar tryggingar niður að fullu og algjört stopp varð á afhendingu vara í verslanir fyrirtækisins. Í slíkri stöðu blæðir fyrirtækjum fljótt út ef ekkert er að gert. Fullkominn óvissa um stöðu banka og efnahagsmála á Íslandi gerði það að verkum að báðir þeir aðilar sem verið var að ræða við um kaup á Merlin drógu sig til hlés og ljóst var að félagið var komið í algjöra sjálfheldu. Allt var reynt til þess að bjarga málum en ljóst að staðan var nánast vonlaus. Þó svo að fjármagn hefði verið til staðar til að bjarga málum tímabundið þá gerði stopp í gjaldeyrisviðskiptum milli Íslands og annarra landa það ókleyft að senda aðstoð. Stjórn Merlin hefur nú samþykkt að óska eftir greiðslustöðvun fyrir félagið. Samhliða verður unnið að því að tryggja áframhaldandi rekstur verslana fyrirtækisins og framtíð starfsmanna með sölu eigna til Elbodan a/s sem meðal annars á og rekur verslanir Expert í Danmörku. Ljóst er að ekki verður af sölu á félaginu í heild eins og til stóð og er tapið vegna þessa gríðarlegt," segir í tilkynningunni. Þá kemur fram að ekki sé vitað hvaða áhrif væntanlegt gjaldþrot Merlin hefur á starfsemi móðurfélagsins Árdegi og starfsemi þess á Íslandi. ,,Árdegi á og rekur verslanir Next og Skífunnar í sjálfstæðum dótturfélögum og verslanir BT í systurfélagi. Allt starf framundan mun miða að því að bjarga verðmætum og tryggja störf þeirra starfsmanna sem vinna hjá félögum í eigu eða tengdu Árdegi," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira