Fleiri fréttir

Nýársfagnaður á Borginni - myndband

Glys og glamúr var ríkjandi á Hótel Borg á fagnaði sem haldinn var á nýársdag. „Já það var svo mikið 2007 að mæta hérna og ég hef bara haldið því áfram. Það sem er skemmtilegt er að þetta er mikið sama fólkið og maður þekkir langflesta," sagði Sveinn Andri Sveinsson sem sjá má meðal annars í meðfylgjandi myndskeiði sem birtist í Ísland í dag.

Ekki datt stelpugreyið á dansgólfið? - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá ATG's Do-One, sem er einn heitasti raftónlistarhópurinn í London um þessar mundir sem trónir þar á toppi klúbbasenunnar, á skemmtistaðnum Nasa 2. janúar stíðastliðinn.

Áramótadjamm í Reykjavíkurborg - myndir

Eins og meðfylgjandi myndir, sem teknar voru í borginni um áramótin, fagnaði unga fólkið nýju ári meðal annars á skemmtistöðunum Broadway og Austur. Það fer ekkert á milli mála að fólkið skemmtir sér. LJósmyndarinn Sveinbi hjá superman.is tók myndirnar.

60% veðja á að Óli skrifi undir

„Það er óhætt að segja að veðmálið hafi vakið mikla athygli. Um hundrað manns tóku þátt á tveimur dögum,“ segir Lárus Páll Ólafsson, sem sér um markaðsmál fyrir Betsson-vefspilavítið á Íslandi.

Geir Ólafs gefur út óperuplötu

„Það er fyrst og fremst mikill heiður að fá að vinna með svona mönnum eins og Kristjáni Jóhannsyni,“ segir Geir Ólafsson. Hann hyggst gefa út óperuplötu um næstu jól og upptökustjóri verður sjálfur Kristján Jóhannsson, einn fremsti tenór landsins og þótt víðar væri leitað.

Sigmundur Ernir var leikinn af Ljótum hálfvita

„Ég fattaði ekki hversu vel ég náði honum fyrr en ég sá prufuefni. Þá brá mér allsvakalega!,“ segir Hannes Óli Ágústsson, sem fór á kostum sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í Skaupinu. Sjálfur sagði Sigmundur Davíð í viðtali að það væri skrítið að feitasti leikarinn léki hann alltaf.

Nokkur stórafmæli í kortunum

Ef að líkum lætur verður árið viðburðaríkt, enda er þetta afmælisár fyrir marga. Til dæmis verður Páll Óskar fertugur, fjörutíu ár sömuleiðis verða síðan Stuðmenn komu fram í fyrsta skipti og fjörutíu ár verða síðan Listahátíð í Reykjavík var haldin fyrst. Þá verða þrjátíu ár liðin síðan Bubbi Morthens sló í gegn því bæði Ísbjarnarblús og Geislavirkir Utangarðsmanna komu út 1980. En á að halda upp á þetta?

Jól í Jemen og áramót við bakka nílarfljóts

„Það eru engin jól í íslamska lýðveldinu Jemen! Ekki frekar en Eid-hátíðir á Íslandi. Aðfangadagur var eins og hver annar fimmtudagur,“ segir ljósmyndarinn Egill Bjarnason.

Handritsstyrkur vegna Davíðs

Baldvin Kári Sveinbjörnsson, hefur fengið handritsstyrk frá Kvikmyndasjóði Íslands vegna kvikmyndar í fullri lengd sem ber heitið Davíð. „Þetta er eiginlega uppvaxtarsaga fimmtán ára unglingsstráks sem heitir Davíð og er að takast á við kynhneigð sína,“ segir Baldvin Kári, sem steig sín fyrstu spor í kvikmyndagerð í sjónvarpsþáttunum Hjartsláttur á Skjá einum. Núna stundar hann nám í leikstjórn og handritagerð í Columbia-háskólanum í New York. Þar hefur hann lokið þremur árum og býst við að klára tvö til viðbótar. „Þetta hefur gengið vel. Fyrstu tvö árin var ég í mjög stífu prógrammi með mikilli vinnu en núna hefur maður meiri frjálsan tíma í að vinna sjálfstætt að verkefnum.“

Ronnie drekkur

Samkvæmt News of the World er Ronnie Wood á góðri leið með að drekka sig í hel. Og hafa vinir og vandamenn miklar áhyggjur af honum, þá sérstaklega fyrrum eiginkona hans, Jo Wood og börnin þeirra tvö. News of the World heldur því fram að liðsmaður The Rolling Stones drekki tvær flöskur af vodka á hverjum degi og hann sé að rústa eigin lífi. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum skildi Ronnie við eiginkonu sína og tók saman við rússnesku fyrirsætuna Ekaterinu. Því sambandi lauk með miklum látum þegar fyrirsætan unga kærði Ronnie fyrir heimilisofbeldi. News of the World hefur eftir henni að hún hafi hreinlega óttast um líf sitt og að hún hafi verið svo óhamingjusöm að hún hafi íhugað sjálfsmorð.

Ástaróður til eiginmannsins

„Þetta er samið til hans. Maður er svo rómantískur,“ segir söngkonan Kolbrún Eva Viktorsdóttir sem tekur þátt í Eurovison í fyrsta sinn níunda janúar. Lagið sem hún syngur nefnist You Are The One, eða Þú ert sá eini rétti, og fjallar um eiginmann hennar og lagahöfundinn Harald Gunnar Ásmundsson. Saman mynda þau hljómsveitina Myst sem gaf út sína fyrstu plötu fyrir fjórum árum.

Kvikmyndatónlist fylgir frelsi

Gunnlaug Þorvaldsdóttir samdi tónlistina fyrir stuttmyndina A‘mare sem var meðal annars sýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar síðastliðinn. Myndin er í leikstjórn Martina Amati og fjallar um tvo drengi sem fara á haf út og ætla sér að veiða „þann stóra“.

Opnaði nýja heilsuræktarstöð

Líkamsræktarþjálfarinn Sigríður Halldóra Matthíasdóttir, betur þekkt sem Sigga Dóra, hefur opnað nýja heilsumiðstöð að Stórhöfða 17 í Reykjavík. Opið hús er hjá Heilsumiðstöðinni til klukkan sex í dag og eru allir velkomnir. Gestum mun m.a. gefast kostur á að smakka á heilsudrykkjum og fara í ókeypis brennslumælingu.

Besta plata ársins valin: Terminal best

Önnur plata hljómsveitarinnar Hjaltalín er besta plata ársins samkvæmt niðurstöðum tuttugu manna dómnefndar úr bransanum sem Fréttablaðið fékk til að leggja mat á íslenskar plötur ársins. Fjórða plata Hjálma, IV, fylgdi fast á hæla Hjaltalín, en nokkru neðar komu plötur Kimono, Blood group og Dikta.

Hannaði skyrtuskraut sem kreppulausn

Tanja Sif Árnadóttir hannar skyrtuskraut fyrir herra og konur undir heitinu tANJA fOREVER. Skrautið er fáanlegt í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar.

Fullt á hundahóteli um jólin

Fullt var á Hundahótelinu á Leirum yfir hátíðarnar og að sögn Hreiðars Karlssonar, eiganda hótelsins, hefur það verið svo undanfarin ár.

Slæmir nágrannar

Leikarinn Mark Wahlberg er ósáttur við það að Beckham-fjölskyldan hafi flutt í götuna hans þar sem hann segir mikið ónæði fylgja henni. „Beckham-fjölskyldan! Ég bjó í rólegri götu þar til David flutti þangað með fjölskyldu sína. Skyndilega er allt krökkt af ljósmyndurum í hverfinu. Þeir elta alla þá bíla sem keyra niður götuna. Ég er ekki að segja að Beckham eigi að flytja burt, ég er bara ekki viss af hverju þau komu hingað til að byrja með. Við höfum engan áhuga á fótbolta. Það er borin von að Bandaríkjamenn fái áhuga á að horfa á níutíu mínútna langan leik þar sem menn hlaupa um en lítið gerist. Takk fyrir að reyna, en við munum halda okkur við hafna- og körfubolta,“ sagði leikarinn, heldur súr í bragði.

Best og verst á árinu

Megan Fox var kosin versta leikkona ársins 2009 af notendum vefsíðunnar Moviefone, hún var einnig valin kynþokkafyllsta leikkonan. Það kemur líklega fáum á óvart að almenningur kaus kvikmyndina New Moon sem vinsælustu mynd ársins, í öðru sæti var stórmyndin Avatar í leikstjórn James Cameron.

Fóru á kostum á Litla-Hrauni

Mið-Ísland gamanhópurinn og hljómsveitin Hjaltalín gerðu sér ferð austur fyrir fjall um jólin og skemmtu föngum á Litla-Hrauni.

Rændir og grýttir í Amsterdam

„Við vorum með nokkrar evrur til að koma okkur á hótelið og það kemur einhver arabi með gulltönn. Hann segir okkur að fara inn í bílinn.“

Mikið stuð á Mömmu Gógó

Kvikmyndin Mamma Gógó eftir Friðrik Þór var frumsýnd í gær en blásið var til sérstakrar hátíðarsýningar í Háskólabíói þann 30. desember þar sem margt var um manninn.

Erfitt í Hollywood

Leikkonan Natalie Portman sagði í viðtali við þýskt tímarit að það væri henni nauðsynlegt að eiga stuðning foreldra sinna. Portman sagði að það væri vegna þeirra sem hún hefði styrk til að takast á við duttlunga Hollywood. „Fjölskylda mín og vinir hafa alltaf verið til staðar fyrir mig og það er mér mikilvægt því í Hollywood skiptast á skin og skúrir. Einn daginn er verið að hrósa manni og næsta dag er verið að rífa þig niður. Það er mjög lýjandi fyrir mann,“ sagði Natalie.

Megasætar á síðasta sjens - myndir

Beefeater kynnti „Síðasti sjens", sem eru litlu áramótin með FM Belfast og Retro Stefson, sem haldin voru á skemmtistaðnum Nasa 30. desember síðastliðinn. Stóðu þessar stórhljómsveitir sig prýðilega og var fullt hús af megasætu kvenfólki og körlum sem skemmtu sér vel eins og sést greinilega á meðfylgjandi myndum.

Helga Haarde: Held ég gefi ávarpinu frí núna og blessaðri Kryddsíldinni

„Svo horfum við alltaf saman á áramótaskaupið. Ávarp forsætisráðherra hefur verið stór partur af gamlárskvöldi á mínu heimili allra síðustu ár en ég held ég gefi ávarpinu frí núna sem og blessaðri Kryddsíldinni," segir Helga Lára Haarde í einlægu áramótaviðtali við Jól.is. Hér má lesa viðtalið við Helgu í heild sinni.

Kreppuvindlar og vatnspípur

„Það er hægt að fá sér góðan vindil allt frá 500 krónum stykkið upp í 4.000 krónur,“ segir Kári Kjartansson, starfsmaður tóbaksverslunarinnar Bjarkar. Vindlareykingamenn flykkjast nú í búðina fyrir gamlárskvöld þrátt fyrir hækkandi verð á vindlum. „Bæði tóbaksskattur hefur hækkað og gengið hefur fallið. Þetta hefur mikil áhrif. En við reynum að koma til móts við fólk og hafa verðið temmilegt.“

Fjölnir skotspónn gríns í spurningaspili

„Ég var að spila spilið á jóladag og ég get sagt þér, að það var ekki mikil hamingja á bænum,“ segir athafnamaðurinn Fjölnir Þorgeirsson. Í spurningaspilinu Spurt að leikslokum er spurt um mann sem var

Nýárspartí á 14.500 krónur

„Fólk er að fá alveg fyrir aurinn,“ segir Valgarð Sörensen, einn af eigendum skemmtistaðarins Austur.

Löggan viðbúin löngum nóttum

Gamlárskvöld ber upp á fimmtudag og nýársdagur er á föstudegi. Það eru því tveir dagar þar á eftir til að jafna sig. Eða þrír dagar samtals til að taka á.

Fyrirsætuáramót

„Mér finnst það eiginlega nauðsynlegt að vera með fjölskyldunni þegar nýtt ár gengur í garð. Síðan er mamma alveg snilldar kokkur," segir Linda Benediktsdóttir 20 ára fyrirsæta sem gerir það gott í fyrirsætubransanum í viðtali við Jól.is. Lesa viðtalið í heild sinni við Lindu hér.

Ensími byrjar nýtt ár með látum á Sódómu

Árið 2010 hefst með látum þegar Xið 977 stendur fyrir Afleggjara á Sódómu Reykjavík þann 1. janúar. Þar verða drengirnir í Ensimi helsta númerið en þeim til halds og traust verða tvær að efnulegustu sveitum ársins 2009 Cliff Clavin og Cosmic Call.

Ekki ertu ber að ofan í vinnunni? - myndir

Meðfylgjandi má sjá myndir, sem Sveinbi ljósmyndari tók í miðbæ Reykjavíkur annan í jólum, meðal annars á skemmtistöðunum Club 101, Hressó og Jacobsen.

Sjallinn svínvirkar - myndir

Ef meðfylgjandi myndir, sem teknar voru í Sjallanum á Akureyri annan í jólum, eru skoðaðar má sjá að skemmtistaðurinn svínvirkar þegar fjör er annars vegar. Húsið var gjörsamlega stappað en aldurstakmark var 30 ár þetta kvöld og komu því saman flestir sem skemmtu sér í Dynheimum, sem Sjallinn var og hét, í gamla daga.

Lakkríslamb og Logi Bergmann á nýárskvöld

Stórglæsilegur nýársfögnuður verður haldinn á veitinga- og skemmtistaðnum AUSTUR 1.janúar 2010 næstkomandi. „Mikið verður lagt í að gera kvöldið eins skemmtilegt og hugsast getur með frábærum mat, skemmtidagskrá og auðvitað skemmtilegum félagsskap," segir Ásgeir Kolbeinsson. „Vegna gríðarlegar aðsóknar höfum við ákveðið að bæta við borðum," segir hann.

Tyra hættir í sjónvarpi

Ofurfyrirsætan Tyra Banks hefur ákveðið að hætta með spjallþátt sinn The Tyra Show og ætlar þess í stað að snúa sér að kvikmyndaiðnaðinum.

Pálmi með Blúsboltum uppá Skaga

Andi Rúnars Júlíussonar mun svífa yfir vötnum á Akranesi í kvöld þegar hið árlega blúskvöld verður haldið. „Forsagan er sú að Rúnar og Tryggvi Hübner voru að spila á Hótel Akranesi fyrir langa löngu. Ég hitti þá í pásunni og stakk upp á að þeir fyndu sér tvo menn og gerðu þetta að árlegum viðburði. Það gekk eftir,“ segir Tómas R. Andrésson, aðalhvatamaður tónleikana.

Fjölskyldan leggst gegn hundaeign Audda

„Ég var að fara að fá mér hund, en vinir mínir og fjölskylda stoppuðu það – eins og ég væri óhæfur til að eiga dýr,“ segir sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal.

Hófsamar jólagjafir fyrirtækja

Jólagjafirnar á góðærisárunum voru oft glæsilegar og íburðarmiklar og margir supu hreinlega hveljur við fréttum af því hvað leyndist í jólapökkum starfsmanna sumra fyrirtækja. Nú er öldin önnur.

Dýrmæt reynsla að fá stadista hlutverk í Bjarnfreðarson

„Það var dýrmæt reynsla að fá stadista hlutverk í Bjarnfreðarson," svarar Íris Kristinsdóttir spurð út í leik hennar í kvikmyndinni á Jól.is. „Ragnar Bragason er frábær að vinna með og lét okkur líða eins og við værum partur af þessu öllu svo lítið sem við vorum það samt þá leið manni eins og okkar vinna væri mjög mikilvæg." Viðtalið við Írisi hér.

Áramótaheit Ágústu: Muna að njóta hvers dags og grípa augnablikin

„Áramótaheitið mitt um áramótin er að og muna að njóta hvers dags og grípa augnablikin," svarar Ágústa Johnson í viðtali við Jól.is. „Manni hættir mjög til þess að gleyma því í amstri hversdagsleikans," bætir hún við. Lesa viðtalið ´heild sinni við Ágústu hér.

Sjá næstu 50 fréttir