Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vildi að hún hefði aldrei byrjað að reykja „Ég sé að sjálfsögðu eftir því í dag að hafa nokkurn tímann byrjað að reykja,“ segir Svanhildur Benediktsdóttir, fimm barna móðir og baráttujaxl frá Reykjanesbæ. Hún reykti í fjölda ára og nú er svo komið að hún er með ólæknandi lungnakrabbamein. Rætt verður við Svanhildi í Íslandi í dag í kvöld þar sem hún segir frá veikindum sínum, einkennilegu viðmóti fólks, reiði fjölskyldumeðlima í hennar garð og síðast en ekki síst hvers vegna fólk ætti aldrei að byrja að reykja. Íslandi í dag hefst klukkan 18:55 í kvöld. 30.9.2009 13:23
Samkvæmisdansari varð sjónvarpsstjarna - myndir „Ég var nemandi í dansskólanum í átta ár og keppti í samkvæmisdansi þar til ég var sextán ára. Síðan einhverra hluta vegna ákvað ég að reyna fyrir mér í fótbolta en sé eftir því að hafa hætt,“ svarar Ásgeir Erlendsson íþróttafréttamaður hjá Sjónvarpinu aðspurður hvað hann var að flækjast í 20 ára afmæli Dansskóla Jóns Péturs og Köru í Valsheimilinu. „Ég byrjaði sjö ára og var bara kominn í rosa form. Byrjaði bara að keppa í þessu strax sjö eða átta ára og keppti í mörg ár. Æfði fimm til sex sinnum í viku,“ segir Ásgeir aðspurður út í dansinn. Var það mamma þín sem skráði þig í dansinn? „Sko ástæðan var sú... mamma segir að ég hafi verið að horfa á Helgarsportið og sá dans í sjónvarpinu og þótti það svo rosalega sniðugt að ég vildi prófa. Mömmu leiddist ekki að koma með mér og fylgjast með á dansæfingum. Stemningin í kringum þetta þegar ég var þrettán/fjórtán ára var nett saumaklúbbsstemning fyrir utan dansgólfið,“ segir Ásgeir á léttu nótunum. Ásgeir stundar nám í sálfræði í HR og hefur tekið sér pásu frá fjölmiðlinum: „Eða þar til ég tel stigin í Gettu betur eftir áramót. Svo kem ég inn í íþróttadeildina í afleysingar með skólanum.“ 30.9.2009 10:46
Útrásarvíkingum boðið í bíó Svo gæti farið að Davíð Oddsson, Geir H. Haarde, Jón Ásgeir Jóhannesson, Bjarni Ármansson og Björgólfur Thor sætu allir saman í stóra sal Háskólabíós þriðjudaginn 6.október þegar heimildarmynd Helga Felixsonar, Guð Blessi Ísland, verður frumsýnd. 30.9.2009 06:00
Ráðherra ferðast aldrei einn „Þetta voru mjög ónákvæm ummæli hjá mér en hitt er rétt að peningarnir sem greiddu bæði flug og gistingu fyrir mig, prívat og persónulega, komu annars vegar úr norrænum sjóðum og hins vegar af fjárveitingu Norðurlandaskrifstofu vegna formennsku Íslands 2009. Og svo ferðast ráðherrar víst aldrei einir,“ segir Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra. 30.9.2009 05:00
Hart tekið á Fangavaktar-þjófum „Það verður tekið hart á þessum þjófnaði. Við höfum margfalt betri upplýsingar um þá aðila sem reka þessar skráarskiptasíður en við höfum haft áður og þetta er eitthvað sem verður kært til lögreglu enda á ég fund með henni á morgun um þetta mál,“ segir Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdarstjóri SMÁÍS. 30.9.2009 04:00
GLÆPURINN RITSKOÐAÐUR Framhald af dönsku sakamálaþáttaröðinni Forbrydelsen byrjaði á DR í síðustu viku. Leikstjóri þáttanna er brjálaður út í forsvarsmenn danska ríkissjónvarpsins. 30.9.2009 03:30
Snýr aftur á Bylgjuna: Hemmi - og svaraðu nú. Síðastliðinn vetur var Hermann Gunnarsson með þátt á sunnudagsmorgnum sem náði ágætis vinsældum, í sumar var hann svo á Ferðalagi með Bylgjunni um landið og hélt úti þætti á laugardögum eftir hádegi ásamt Svansí vinkonu sinni. Nú snýr Hemmi aftur á gamla tímann sinn frá í hitteðfyrra. 29.9.2009 19:00
Aldrei fleiri kettir í Kattholti Ófremdarástand er að skapast í Kattholti sem Kattavinafélag Íslands rekur í Stangarhyl. Fólk virðist vera að losa sig við kisurnar í kreppunni. 29.9.2009 06:00
Líkti Svavari við Jack Black Breski tónlistarmálarinn Kilford sem málaði á tónleikum For a Minor Reflection á Nasa fyrir skömmu líkir Svavari Knúti við Hollywood-leikarann og söngvarann Jack Black á bloggsíðu sinni. 29.9.2009 06:00
Sveppi í sögubækurnar „Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt og miklu meira en ég bjóst við,“ segir Sverrir Þór Sverrisson en alls sáu 8.500 manns fjölskyldumyndina Algjör Sveppi og leitin að Villa sem frumsýnd var á fimmtudaginn. 29.9.2009 06:00
Súludans auglýstur í tímariti fyrir unglingsstelpur „Mér þykir þetta leitt og ég sagði þeim að mér þætti auglýsingin ekki viðeigandi, en þau sannfærðu mig,“ segir dansarinn Josy Zareen. 29.9.2009 05:00
Sunny Day sótt 2.600 sinnum Lag Þórs Kristinssonar, Sunny Day, var sótt tæplega 2.600 sinnum á heimasíðu Microsoft, Myspace.com/windows, í nýrri kynningarherferð sem fyrirtækið stóð fyrir. „Mig langar að þakka öllum þeim sem studdu mig í herferðinni. Ég fékk mikla kynningu," sagði Þór, hæstánægður með árangurinn. 29.9.2009 04:00
Keppt um kreppuna á kappdegi MR og Verzló Ræðulið Verzló og MR koma til með að keppa um umræðuefnið „Ísland verður betra eftir kreppuna“ á hinum árlega kappdegi skólanna á föstudag. Verzlingar koma til með að mæla með fullyrðingunni, en MR-ingar á móti. Samningar um viðfangsefnið tókust með liðunum aðfaranótt laugardags, en þá höfðu viðræður staðið yfir þeirra á milli síðan seinni part föstudags. 29.9.2009 03:52
Sigur Rós í gjörningi Bandaríski listamaðurinn Rob Bliss framkvæmdi óvenjulegan gjörning á sunnudag þegar hundrað þúsund pappaflugvélar voru settar á flug undir ómþýðum tónum Sigur Rósar. Um fimmtíu sjálfboðaliðar hjálpuðu Bliss að búa til flugvélarnar, sem voru í ýmsum litum. 29.9.2009 03:00
Nýtt frá Lady & Bird Ný tónleikaplata hljómsveitarinnar Lady & Bird, La ballade of Lady and Bird, er komin út hér á landi. Skífan kom út í Frakklandi fyrir viku og hefur fengið mjög góðar viðtökur. Dúettinn er skipaður Barða Jóhannssyni og hinni frönsk/ísraelsku Keren Ann Ziedel. 29.9.2009 02:00
Hugleikur stofnar eigið bókaforlag „Við ætlum að gefa út allt sem okkur langar til að gefa út og er fræðilegur möguleiki á að einhver kaupi. Það er okkar manifestó,“ segir skopteiknarinn og leikskáldið Hugleikur Dagsson. 29.9.2009 02:00
Réttir verða endurteknar á næsta ári Tónleikaröðin Réttir sem var haldin um síðustu helgi verður aftur í Reykjavík á næsta ári, að sögn Eldars Ástþórssonar, eins af skipuleggjendum viðburðarins. „Þetta fór fram úr okkar björtustu vonum og gekk ótrúlega vel. 29.9.2009 02:00
Heiðra Alice in Chains Í tilefni þess að rokksveitin Alice in Chains gefur út nýja plötu á morgun eftir langt hlé verða haldnir tónleikar til heiðurs sveitinni á Sódómu á fimmtudaginn. 29.9.2009 01:00
Fox þolir ekki pappír Leikkonan Megan Fox ræddi við grínistann Jimmy Fallon í þætti hans Late Night á fimmtudaginn var. Í þættinum viðurkenndi hún að henni þætti ónotalegt að snerta þurran pappír og þyrfti því ávallt að bleyta fingur sína áður en hún kæmi við blað. 29.9.2009 00:30
Giftist í þriðja sinn Randy Taraborelli, sem ritar ævisögu söngkonunnar Madonnu, segir í viðtali við tímaritið Hello! að söngkonan standi í ströngu við að skipuleggja brúðkaup sitt og brasilísku fyrirsætunnar Jesus. 29.9.2009 00:15
Umborið hvort annað í 30 ára „Dúettinn „Þú og ég" var stofnaður af Gunnar Þórðarsyni árið 1979 þegar diskóæðið hertók heiminn," svarar söngkonan Helga Möller sem fagnar 30 ára starfsafmæli dúettsins Þú og ég um þessar mundir. 28.9.2009 12:11
Friends á hvíta tjaldið Kvikmynd um ævintýri sexmenninganna Joey, Chandler, Monicu, Phoebe, Ross og Rachel verður framleidd innan tíðar. Þetta staðhæfir James Michael Tyler, sem fór með hlutverk Gunthers í Friends-þáttunum. „Myndin verður gerð. Ég er í góðu sambandi við fólkið og það eru allir spenntir,“ segir hann. 28.9.2009 08:00
Mikið þakklæti í leikslok Einar Már Guðmundsson, rithöfundur með meiru, frumsýndi í Kringlubíói heimildarmyndina sína Sigur í tapleik á fimmtudagskvöldið. Rithöfundurinn var ánægður í leikslok. 28.9.2009 06:00
Lærði að hekla í nikótínleysi Philipppe Clause er franskur að uppruna en hefur verið búsettur á Íslandi síðastliðin þrjú ár. 28.9.2009 06:00
Færri taka á móti stúdentum Orðið vísindaferð hefur verið notað um skipulagðar ferðir háskólanema til ýmissa fyrirtækja og stofnana. Í þessum ferðum er starfsemi fyrirtækisins kynnt fyrir nemendum auk þess sem boðið er upp á veitingar. Í kreppunni hefur þó eitthvað borið á að vísindaferðum háskólanema hafi fækkað og þykir mörgum það slæm þróun. 28.9.2009 06:00
Þóra Björk í tónlist á eigin forsendum Sólóplatan I Am a Tree Now er frumraun Þóru Bjarkar Þórðardóttur. Lögin á plötunni má flokka sem alternatíft popp-rokk þar sem djass, þjóðlagafílingur, kántrí og blágresi svífa yfir vötnum. 28.9.2009 06:00
Hefur selt 150 þúsund bækur í Þýskalandi Nýjasta glæpabók Viktors Arnars Ingólfssonar, Sólstjakar, kemur í verslanir 1. október. Bókin kemur út í Þýskalandi í vor á vegum útgefandans Lübbe, hins sama og gefur út bækur Arnaldar Indriðasonar þar í landi. „Þýskaland er annar eða þriðji stærsti bókamarkaður heims og þar koma út níutíu þúsund titlar á ári. Bara það að komast í bókabúðirnar er afrek í sjálfu sér,“ segir Viktor, sem hefur selt bækur sínar í um 150 þúsund eintökum þar í landi. 28.9.2009 05:00
Yfir stöðuvatn í milljónaþætti „Þetta er sent út í beinni og það má ekkert klikka,“ segir torfærukappinn Gísli Gunnar Jónsson. Hann kemur fram í einum vinsælasta sjónvarpsþætti Evrópu, Wetten Dass, á þýsku sjónvarpsstöðinni ZDF hinn þriðja október. Þar ætlar hann að aka bíl sínum um tvö hundruð metra yfir 80 metra djúpt stöðuvatn í beinni útsendingu. Rétt áður en hann leggur í svaðilförina geta áhorfendur veðjað um hvort honum takist ætlunarverkið eður ei. 28.9.2009 04:00
Noel til liðs við Kasabian Noel Gallagher virðist leiðast lífið eftir að hann yfirgaf Oasis fyrir skemmstu. Hann hefur nú ákveðið að ganga til liðs við hljómsveitina Kasabian á tónleikaferðalagi um Bretland. Noel er þó ekki formlega genginn í hljómsveitina, hann ætlar einungis að spila með vinum sínum á nokkrum tónleikum. „Hann er tónleikamaskína og elskar að koma fram, svo hann mun stökkva á hvert tækifæri til að vera með okkur,“ segir Tom Meighan, söngvari Kasabian. 28.9.2009 04:00
Nota dans sem tjáningarform „Hluti af verkefnum Dansflokksins er fræðsla almennings um listformið og við höfum reynt að sinna því meðal annars með því að halda ýmis námskeið. Við höfum verið að halda sérstök þriggja daga löng námskeið fyrir unglingsdrengi frá árinu 2005 og markmið námskeiðanna er að gefa drengjunum tækifæri til að kynnast listdansi,“ segir Jóhanna Pálsdóttir, markaðsstjóri Íslenska dansflokksins. 28.9.2009 03:00
Popp, rokk og sveitt partí Tónlistarhátíðin Réttir náði hámarki sínu um helgina. Trausti Júlíusson fylgdist áhugasamur með. Nóra hóf dagskrána á Nasa á föstudagskvöldið. Það heyrðist að þarna var ný sveit á ferð, en þrátt fyrir smá hik og óöryggi komust þau í bandinu ágætlega frá sínu. Efnileg poppsveit sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni. Strákarnir í Sing for Me Sandra voru þéttir og fullir af orku, en mættu vera aðeins djarfari í lagasmíðunum. 28.9.2009 02:00
Gulli Helga auglýsir eftir pari til að stunda kynlíf Gulli Helga sem stýrir morgunþættinum á Kananum ásamt heimasætunni Lísu Einarsdóttur lýsir eftir pari til að stunda kynlíf á hverjum degi dag í meira en einn mánuð. 27.9.2009 20:19
Polanski handtekinn fyrir 30 ára gamalt brot Kvikmyndagerðamaðurinn Roman Polanski var handtekinn í Sviss í gær vegna gruns um að hafa átt í kynferðislegu sambandi við ólögráða stúlku. 27.9.2009 11:56
Ber að ofan í Bollywoodveislu - myndir Fagnaðaralæti brutust út í Bollywoodveislu Yesmine Olsson í Veisluturninum í gærkvöldi þegar Arnar Grant mætti skyndilega ber að ofan og spilaði á flautu á meðan dansararnir sýndu listir sínar. Á meðfylgjandi myndum má sjá fjölda þekktra einstaklinga sem nutu Bollywoodveislunnar og snæddu indverskan mat af sérstökum snúningsdisk á hverju borði. Gulli Helga Kanakall, Elín Reynisdóttir stjörnusminka, Karl Berndsen hárgreiðslu- og förðunarmeistari, Ísak Freyr Helgason aðstoðarmaður Kalla, Yesmine Olsson dans og söngkona, Einar Bárða útvarpsstjóri og Arnar Grant líkamsræktarfrömuður. 26.9.2009 08:45
Kominn í úrslit á Cannes með Formúlu 1-teiknimynd „Það er ekkert barnaefni sem tengist Formúlu 1-keppninni beint en við munum vonandi breyta því,“ segir Sigvaldi J. Kárason leikstjóri. Hann tekur nú þátt í sannkölluðu frumkvöðlaverkefni, teiknimyndaseríu sem nefnist Franco and Formula Fun. Þættirnir fjalla um strákinn Franco sem hverfur inn í Formúlu 1-heiminn og flýgur heimshornanna á milli í flugvélinni sinni. Um borð eru síðan formúlu-fun bílarnir og lætur Franco þá keppa á ævintýralegum brautum. 26.9.2009 06:00
Daðraði við dauðann Söngvarinn Robbie Williams hefur nú opnað sig í fyrsta sinn og rætt opinberlega um eiturlyfjaneyslu sína. Söngvarinn fór í meðferð árið 2007, eftir þriggja ára baráttu við eiturlyfjadjöfulinn. 26.9.2009 06:00
Stefán lögreglustjóri í Útsvari Spurningaþáttur sveitarfélaganna, Útsvar, hófst fyrir viku þegar lið Norðurþings lagði fulltrúa Reykjanesbæjar í æsispennandi keppni. Ljóst er að mörg sveitarfélögin ætla að leggja töluvert meiri metnað í keppnina nú en síðasta vetur þegar Kópavogsbær fagnaði sigri með eftirminnilegum hætti. 26.9.2009 06:00
Magnús Þór semur fyrir Fjallabræður „Fjallabræður og Magnús eiga einhvern veginn saman – við erum búnir að eignast nýjan bróður,“ segir Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri vestfirska kórsins Fjallabræðra. 26.9.2009 05:30
Listdans um helgi Tvær danssýningar verða í boði um helgina: í Hafnarfjarðarleikhúsinu er á ferðinni gestasýning. Efnið – Barbara – er mörgum kunnugt hér bæði af samnefndri sögu og kvikmynd. Barbara er færeysk-dönsk sýning, afsprengi listræns samstarfs danska danshöfundarins Ingrid Tranum og færeyska tónskáldsins Trondar Bogasona. Sýningin er innblásin af skáldsögu Jörgens Fritz Jacobsen sem ber sama nafn og var valin framlag Dana á heimssýningu EXPO. 26.9.2009 05:30
Sveppi 2 á teikniborðinu Kvikmyndin Algjör Sveppi og leitin að Villa var frumsýnd á fimmtudagskvöldið. Fjöldi ungmenna lagði leið sína í Álfabakka til að fylgjast með því þegar margar skærustu stjörnur barnanna gengu inn í kvikmyndahúsið eftir rauðum dregli. 26.9.2009 05:00
Fengu hjálp frá Grammy-hafa Skagahljómsveitin Cosmic Call gaf nýverið út sjö laga plötu sem er sú fyrsta úr hennar herbúðum. Grammy-verðlaunahafinn Richard Dodd, sem hefur unnið með listamönnum á borð við Green Day, Kings of Leon, Red Hot Chili Peppers og George Harrison, sá um að leggja lokahönd á gripinn. Cosmic Call og Sigurður Ingvar Þorvaldsson stjórnuðu upptökum. 26.9.2009 04:15
Sýning á myndum Kertész Í dag verður opnuð sýning á Ljósmyndasafni Reykjavíkur á verkum eins mesta ljósmyndara allra tíma, André Kertész, og nefnist hún Frakkland - landið mitt (Ma France). Sýningin kemur frá hinu virta safni Jeu de Paume í París. André Kertész var Ungverji. 26.9.2009 04:00
TEKIST Á VIÐ INNRI ÓTTANN Mikil gróska er í kringum Leikhúsbatteríið. Nýtt verk verður frumsýnt þar á morgun. 26.9.2009 04:00
Mun ekki bæta á sig Renée Zellweger hefur tekið að sér að leika í þriðju kvikmyndinni um hina seinheppnu Bridget Jones. Í þetta sinn mun leikkonan þó ekki bæta á sig fyrir hlutverkið heldur mun hún klæðast sérstökum búningi. 26.9.2009 03:30
Fyrsta platan í 20 ár Breska eitíshljómsveitin Spandau Ballet ætlar í nóvember að gefa út sína fyrstu plötu í tuttugu ár. Platan nefnist Once More og er titillag hennar á leið í útvarpsspilun. 26.9.2009 03:15