Fleiri fréttir

Besta plata ársins valin: Terminal best

Önnur plata hljómsveitarinnar Hjaltalín er besta plata ársins samkvæmt niðurstöðum tuttugu manna dómnefndar úr bransanum sem Fréttablaðið fékk til að leggja mat á íslenskar plötur ársins. Fjórða plata Hjálma, IV, fylgdi fast á hæla Hjaltalín, en nokkru neðar komu plötur Kimono, Blood group og Dikta.

Hannaði skyrtuskraut sem kreppulausn

Tanja Sif Árnadóttir hannar skyrtuskraut fyrir herra og konur undir heitinu tANJA fOREVER. Skrautið er fáanlegt í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar.

Fullt á hundahóteli um jólin

Fullt var á Hundahótelinu á Leirum yfir hátíðarnar og að sögn Hreiðars Karlssonar, eiganda hótelsins, hefur það verið svo undanfarin ár.

Slæmir nágrannar

Leikarinn Mark Wahlberg er ósáttur við það að Beckham-fjölskyldan hafi flutt í götuna hans þar sem hann segir mikið ónæði fylgja henni. „Beckham-fjölskyldan! Ég bjó í rólegri götu þar til David flutti þangað með fjölskyldu sína. Skyndilega er allt krökkt af ljósmyndurum í hverfinu. Þeir elta alla þá bíla sem keyra niður götuna. Ég er ekki að segja að Beckham eigi að flytja burt, ég er bara ekki viss af hverju þau komu hingað til að byrja með. Við höfum engan áhuga á fótbolta. Það er borin von að Bandaríkjamenn fái áhuga á að horfa á níutíu mínútna langan leik þar sem menn hlaupa um en lítið gerist. Takk fyrir að reyna, en við munum halda okkur við hafna- og körfubolta,“ sagði leikarinn, heldur súr í bragði.

Best og verst á árinu

Megan Fox var kosin versta leikkona ársins 2009 af notendum vefsíðunnar Moviefone, hún var einnig valin kynþokkafyllsta leikkonan. Það kemur líklega fáum á óvart að almenningur kaus kvikmyndina New Moon sem vinsælustu mynd ársins, í öðru sæti var stórmyndin Avatar í leikstjórn James Cameron.

Fóru á kostum á Litla-Hrauni

Mið-Ísland gamanhópurinn og hljómsveitin Hjaltalín gerðu sér ferð austur fyrir fjall um jólin og skemmtu föngum á Litla-Hrauni.

Rændir og grýttir í Amsterdam

„Við vorum með nokkrar evrur til að koma okkur á hótelið og það kemur einhver arabi með gulltönn. Hann segir okkur að fara inn í bílinn.“

Mikið stuð á Mömmu Gógó

Kvikmyndin Mamma Gógó eftir Friðrik Þór var frumsýnd í gær en blásið var til sérstakrar hátíðarsýningar í Háskólabíói þann 30. desember þar sem margt var um manninn.

Erfitt í Hollywood

Leikkonan Natalie Portman sagði í viðtali við þýskt tímarit að það væri henni nauðsynlegt að eiga stuðning foreldra sinna. Portman sagði að það væri vegna þeirra sem hún hefði styrk til að takast á við duttlunga Hollywood. „Fjölskylda mín og vinir hafa alltaf verið til staðar fyrir mig og það er mér mikilvægt því í Hollywood skiptast á skin og skúrir. Einn daginn er verið að hrósa manni og næsta dag er verið að rífa þig niður. Það er mjög lýjandi fyrir mann,“ sagði Natalie.

Megasætar á síðasta sjens - myndir

Beefeater kynnti „Síðasti sjens", sem eru litlu áramótin með FM Belfast og Retro Stefson, sem haldin voru á skemmtistaðnum Nasa 30. desember síðastliðinn. Stóðu þessar stórhljómsveitir sig prýðilega og var fullt hús af megasætu kvenfólki og körlum sem skemmtu sér vel eins og sést greinilega á meðfylgjandi myndum.

Helga Haarde: Held ég gefi ávarpinu frí núna og blessaðri Kryddsíldinni

„Svo horfum við alltaf saman á áramótaskaupið. Ávarp forsætisráðherra hefur verið stór partur af gamlárskvöldi á mínu heimili allra síðustu ár en ég held ég gefi ávarpinu frí núna sem og blessaðri Kryddsíldinni," segir Helga Lára Haarde í einlægu áramótaviðtali við Jól.is. Hér má lesa viðtalið við Helgu í heild sinni.

Kreppuvindlar og vatnspípur

„Það er hægt að fá sér góðan vindil allt frá 500 krónum stykkið upp í 4.000 krónur,“ segir Kári Kjartansson, starfsmaður tóbaksverslunarinnar Bjarkar. Vindlareykingamenn flykkjast nú í búðina fyrir gamlárskvöld þrátt fyrir hækkandi verð á vindlum. „Bæði tóbaksskattur hefur hækkað og gengið hefur fallið. Þetta hefur mikil áhrif. En við reynum að koma til móts við fólk og hafa verðið temmilegt.“

Fjölnir skotspónn gríns í spurningaspili

„Ég var að spila spilið á jóladag og ég get sagt þér, að það var ekki mikil hamingja á bænum,“ segir athafnamaðurinn Fjölnir Þorgeirsson. Í spurningaspilinu Spurt að leikslokum er spurt um mann sem var

Nýárspartí á 14.500 krónur

„Fólk er að fá alveg fyrir aurinn,“ segir Valgarð Sörensen, einn af eigendum skemmtistaðarins Austur.

Löggan viðbúin löngum nóttum

Gamlárskvöld ber upp á fimmtudag og nýársdagur er á föstudegi. Það eru því tveir dagar þar á eftir til að jafna sig. Eða þrír dagar samtals til að taka á.

Fyrirsætuáramót

„Mér finnst það eiginlega nauðsynlegt að vera með fjölskyldunni þegar nýtt ár gengur í garð. Síðan er mamma alveg snilldar kokkur," segir Linda Benediktsdóttir 20 ára fyrirsæta sem gerir það gott í fyrirsætubransanum í viðtali við Jól.is. Lesa viðtalið í heild sinni við Lindu hér.

Ensími byrjar nýtt ár með látum á Sódómu

Árið 2010 hefst með látum þegar Xið 977 stendur fyrir Afleggjara á Sódómu Reykjavík þann 1. janúar. Þar verða drengirnir í Ensimi helsta númerið en þeim til halds og traust verða tvær að efnulegustu sveitum ársins 2009 Cliff Clavin og Cosmic Call.

Ekki ertu ber að ofan í vinnunni? - myndir

Meðfylgjandi má sjá myndir, sem Sveinbi ljósmyndari tók í miðbæ Reykjavíkur annan í jólum, meðal annars á skemmtistöðunum Club 101, Hressó og Jacobsen.

Sjallinn svínvirkar - myndir

Ef meðfylgjandi myndir, sem teknar voru í Sjallanum á Akureyri annan í jólum, eru skoðaðar má sjá að skemmtistaðurinn svínvirkar þegar fjör er annars vegar. Húsið var gjörsamlega stappað en aldurstakmark var 30 ár þetta kvöld og komu því saman flestir sem skemmtu sér í Dynheimum, sem Sjallinn var og hét, í gamla daga.

Lakkríslamb og Logi Bergmann á nýárskvöld

Stórglæsilegur nýársfögnuður verður haldinn á veitinga- og skemmtistaðnum AUSTUR 1.janúar 2010 næstkomandi. „Mikið verður lagt í að gera kvöldið eins skemmtilegt og hugsast getur með frábærum mat, skemmtidagskrá og auðvitað skemmtilegum félagsskap," segir Ásgeir Kolbeinsson. „Vegna gríðarlegar aðsóknar höfum við ákveðið að bæta við borðum," segir hann.

Tyra hættir í sjónvarpi

Ofurfyrirsætan Tyra Banks hefur ákveðið að hætta með spjallþátt sinn The Tyra Show og ætlar þess í stað að snúa sér að kvikmyndaiðnaðinum.

Pálmi með Blúsboltum uppá Skaga

Andi Rúnars Júlíussonar mun svífa yfir vötnum á Akranesi í kvöld þegar hið árlega blúskvöld verður haldið. „Forsagan er sú að Rúnar og Tryggvi Hübner voru að spila á Hótel Akranesi fyrir langa löngu. Ég hitti þá í pásunni og stakk upp á að þeir fyndu sér tvo menn og gerðu þetta að árlegum viðburði. Það gekk eftir,“ segir Tómas R. Andrésson, aðalhvatamaður tónleikana.

Fjölskyldan leggst gegn hundaeign Audda

„Ég var að fara að fá mér hund, en vinir mínir og fjölskylda stoppuðu það – eins og ég væri óhæfur til að eiga dýr,“ segir sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal.

Hófsamar jólagjafir fyrirtækja

Jólagjafirnar á góðærisárunum voru oft glæsilegar og íburðarmiklar og margir supu hreinlega hveljur við fréttum af því hvað leyndist í jólapökkum starfsmanna sumra fyrirtækja. Nú er öldin önnur.

Dýrmæt reynsla að fá stadista hlutverk í Bjarnfreðarson

„Það var dýrmæt reynsla að fá stadista hlutverk í Bjarnfreðarson," svarar Íris Kristinsdóttir spurð út í leik hennar í kvikmyndinni á Jól.is. „Ragnar Bragason er frábær að vinna með og lét okkur líða eins og við værum partur af þessu öllu svo lítið sem við vorum það samt þá leið manni eins og okkar vinna væri mjög mikilvæg." Viðtalið við Írisi hér.

Áramótaheit Ágústu: Muna að njóta hvers dags og grípa augnablikin

„Áramótaheitið mitt um áramótin er að og muna að njóta hvers dags og grípa augnablikin," svarar Ágústa Johnson í viðtali við Jól.is. „Manni hættir mjög til þess að gleyma því í amstri hversdagsleikans," bætir hún við. Lesa viðtalið ´heild sinni við Ágústu hér.

Klovn-hjónin héldu jól á Íslandi

Þau Iben Hjejle og Casper Christiansen, þekktust hér á landi fyrir leik sinn í Klovn-þáttunum vinsælu, héldu jólin hátíðleg hér á Íslandi. „Það er alltaf jafn yndislegt að koma til Íslands og þessi ferð var engin undantekning," sagði Casper þegar Fréttablaðið náði tali af honum.

Villi vildi ekkert gera í málinu

„Hann kom í afgreiðsluna af því hann var með smá gat á hausnum, Stúlkan þurrkaði það og hann fór inn í sal aftur að æfa. Hann vildi ekki gera neitt úr þessu,“ segir Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class.

Litli DV-maðurinn kærir

Jón Bjarki Magnússon, þekktur sem litli DV-maðurinn, hefur stefnt útgáfufélaginu Birtíngi vegna vangoldinna launa.

Keppir við vini í Eurovision

„Okkur finnst þetta bara fyndið og skemmtilegt,“ segir Steinarr Logi Nesheim, sem keppir á móti vinum sínum úr rokksveitinni Dead Sea Apple og Kung Fu í undankeppni Eurovision.

Karlar á toppnum

Kiljuútgáfan af Körlum sem hata konur eftir Stieg Larsson er mest selda bók ársins hjá Eymundsson. Larsson hefur þar með slegið Arnald Indriðason af toppnum sem hefur setið þar undanfarin tvö ár.

Ótrúleg aðsókn á Bjarnfreðarson og Avatar

Íslendingar borguðu 25 milljónir í aðgangseyrir um jólahelgina á aðeins tvær myndir. Annars vegar komu níu þúsund manns á Hollywood-stórmynd James Cameron, Avatar og hins vegar mættu ellefu þúsund manns á íslensku kvikmyndina Bjarnfreðarson sem byggir á Vaktarseríunum um þá Georg, Daníel og Ólaf Ragnar.

Ráðgjafi í ástamálum

Leikkonan Jennifer Aniston hefur mjög gaman af því að gefa vinum sínum ráð varðandi ástarsambönd. Sjálf hefur hún lent í alls kyns vandræðum þegar ástin er annars vegar en það stöðvar hana ekki í ráðgjafahlutverkinu.

Sambandinu lokið

Susan Sarandon og Tim Robbins staðfestu sambandsslit sín stuttu fyrir jól og sendu frá sér svohljóðandi fréttatilkynningu: „Leikkonan Susan Sarandon og sambýlismaður hennar til 23 ára, leikarinn Tim Robbins, slitu sambandi sínu í sumar. Parið mun ekki tjá sig frekar um sambandsslitin."

Sjötta plata Cash

Sjötta platan í American-seríunni með Johnny Cash verður hugsanlega gefin út 23. febrúar næstkomandi. Þá hefði söngvarinn svartklæddi orðið 78 ára gamall. Upptökustjóri er hinn sami og áður, Rick Rubin, og notaðar eru upptökur frá árinu 2003. Litlar fregnir hafa borist af plötunni en þó tilgreinir netsíðan Amazon.com að hún heiti American VI: Ain"t No Grave.

Viðurkennir tískumistök

Tónlistarmaðurinn George Michael fer hjá sér í hvert sinn sem hann sér gamlar myndir af sér þegar hann söng með Wham!

Daðrar óstjórnlega

Leikarinn Ryan Phillippe hefur lítið verið í fréttum síðan hann skildi við eiginkonu sína, Óskarsverðlaunahafann Reese Witherspoon. Tímaritið The Enquirer birti nýverið frétt þar sem samband leikarans og kærustu hans, leikkonunnar Abbie Cornish, var sagt standa á brauðfótum.

Svali: Horfum saman á Skaupið

„Við borðum góðan mat með allri fjölskyldunni, förum öll á brennu saman i Skerjó og svo horfum við saman á Skaupið," segir Svali Kaldalóns útvarpsmaður á FM957 spurður út í áramótin á Jól.is. „Í ár verður skotið upp á Úlfarsfelli og notið þess að horfa yfir Reykjavík." Hér má lesa viðtalið við Svala.

Páll Óskar diskókóngur klikkar ekki - myndir

Diskókóngurinn Páll Óskar breytti skemmtistaðnum Nasa í hið sögufræga Stúdíó 54 í New York á annan í jólum. Eins og Palli lofaði var sett upp risastór sviðsmynd, brjálaðar skreytingar og flottasta ljósasjóv sem sést hefur í húsinu í samstarfi við Bacardi. Það var troðfullt hús og skemmti fólk sér stórkostlega eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Árámótaheit: Stefnir á að komast í dúndurform

„Í ár ætla ég að setja áramótaheit í fyrsta skipti í mörg mörg ár." svarar Sólveig Eiríksdóttir í viðtali á Jol.is hvort hún ætlar að setja sér áramótaheit þessi áramót og segir: „Þar sem ég verð fimmtug á nýja árinu þá ætla ég að stefna á að verða í betra formi heldur en þegar ég varð fertug." Lesa viðtalið í heild sinni.

Sjá næstu 50 fréttir