Fleiri fréttir

Framhald Da Vinci Code í bíó á næsta ári

Framhald hinnar geysivinsælu bíómyndar The Da Vinci Code kemur út á næsta ári. Myndin verður byggð á bókinni Angels & Demons, en hana skrifaði Dan Brown áður en hann byrjaði á The Da Vinci Code.

Mannasiðaþjálfari kærir Borat

Mannasiðaþjálfari í Alabama hefur kært Sacha Baron Cohen, betur þekktan sem Borat, og 20th Century Fox vegna atriðis með henni í myndinni um ferð Borats til Bandaríkjanna.

Ekki meira kók fyrir Keith

Keith Richards, krumpaðasti rokkari sögunnar má ekki lengur fá sér kókaín. „Ég er að taka inn lyf sem heitir Dilantin sem þýðir að ég má ekki taka inn kókaín, sem er svosem í lagi mín vegna,“ sagði Keith Richards í viðtali eftir að hann tók við verðlaunum fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinn Pirates of the Caribbean á dögunum.

Forsetaframbjóðandi hittir geimverur hjá Shirley MacLaine

Shirley MacLaine heldur því fram í nýjustu bók sinni að stjórnmálamaðurinn Dennis Kucinich hefði orðið fyrir meiriháttar andlegri upplifun á heimili sínu þegar hann sá fljúgandi furðuhlut. Dennis er einn þeirra sem sækist eftir útnefningu sem forsetaefni demókrataflokksins fyrir næstu forsetakosningar.

Reese Witherspoon og Jake Gyllenhaal eru par

Reese Witherspoon og Jake Gyllenhaal hafa loksins viðurkennt að þau séu par. Miklar vangaveltur hafa verið í slúðurpressunni um samband leikaranna eftir að þau kynntust við tökur á myndinni Rendition.

Hertogaynjan vill hjálpa Britney Spears

Hertogaynjan af York, Sarah Fergusson, sagði í sjónvarpsviðtali á dögunum að hún myndi vilja geta hjálpað Britney Spears. Hertogaynjan, sem hefur sjálf orðið fyrir miklu áreiti fjölmiðla, sagði að hún fengi sting í hjartað þegar hún fylgist með poppdívunni sökkva dýpra og dýpra. Þá sagði Fergusson að það að fylgjast með vandræðaganginum drægi fram móðureðlið í sér.

Dónalegt Duran Duran myndband bannað í Bretlandi

Myndband við nýjasta lag Durans Durans hefur verið bannað í Bretlandi. Lagið, sem Duran liðar sömdu með Justin Timberlake, fjallar um taugaáföll og vandræðagang stjarna eins og Britney Spears og Lindsay Lohan.

Simply Red að hætta

Ellismellasveitin Simply Red hefur ákveðið að leggja upp laupana. Sveitin, sem hefur starfað í 25 ár, og á að baki smelli eins og Stars og Money's Too Tight, munu hætta eftir að næstu tónleikaferð þeirra lýkur árið 2009. Þetta tilkynnti söngvari sveitarinnar, Mick Hucknall, í viðtali á breskri útvarpsstöð í gær.

Hagnaður Nintendo tvöfaldast

Japanski leikjatölvurisinn Nintendo skilaði 132,4 milljörðum jena, jafnvirði 70,5 milljarða íslenskra króna, á öðrum og þriðja ársfjórðungi samanborið við 54,4 milljarða á sama tíma í fyrra. Þetta er rúmlega tvöfalt betri afkoma en í fyrra.

Dönsku fánaberarnir

Danskar kvikmyndir hafa yfirleitt átt upp á pallborðið hjá kvikmyndaunnendum um allan heim og danskir leikstjórar eru eftirsóttir í Hollywood. Og nú eru danskir leikarar einnig að hasla sér völl þar vestra

Deigluklíkan herðir tökin á borginni

Kristín Hrefna Halldórsdóttir stjórnmálafræðinemi hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Kristín Hrefna er sambýliskona Borgars Þórs Einarssonar stjúpsonar Geirs H. Haarde forsætisráðherra.

Ofbökuð kartafla veldur skelfingu

Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir að höfuðstöðvum BBC í London í gær eftir að eldvarnarkerfi hússins fór í gang. Betur fór þó en á horfðist því ástæðan reyndist ofbökuð kartafla.

Paradísin Ísland í Grey's Anatomy

Handritshöfundum sjúkrahúsdramans Grey's Anatomy finnst greinilega mikið til Íslands koma, en í fjórða þætti nýjustu þáttaraðarinnar bregður landinu fyrir á óvenjulegan hátt. Kona sem fær þær fréttir að hún sé dauðvona ákveður að eyða síðustu dögunum á Íslandi - landinu þar sem sólin sest aldrei.

Foxy Brown í einangrun fyrir slagsmál

Rapparinn Foxy Brown situr nú í einangrun í Rikers island fangelsinu í Bandaríkjunum eftir að hafa slegist við annan fanga. Brown situr inni fangelsi fyrir það meðal annars að ráðast á naglasnyrti og að grýta farsíma í nágranna sinn.

Gagnrýnandi rústar Latabæ

Gagnrýnandi leikhússíðunnar whatsonstage.com birti í gær dóm um uppsetningu á leikritinu um Latabæ sem nú er sýnt í London. Gagnrýnandinn, Heather Neill, fer ekki fögrum orðum um sýningunna. Hún segir hana sálarlausa markaðsvöru og að gestirnir hefðu allt eins getað setið heima hjá sér og horft á sjónvarpið.

Pink ætlar að losa sig við eiginmanninn

Söngkonan Pink ætlar að skilja við eiginmann sinn, motorcross stjörnuna Carey Hart, vegna þess að hún er orðin leið á því að hann sofi hjá öðrum konum. Hjónakornin ákváðu þegar þau giftu sig fyrir tæpum tveimur árum að Hart mætti vera með öðrum konum þegar að Pink væri á tónleikaferðalagi.

Birgitta og Bensi kaupa Bimma

„Þetta er þriðji BMW-inn sem ég eignast, það má því segja að ég sé áskrifandi,“ segir Birgitta Haukdal sem slegið hefur í gegn á götum borgarinnar á Ásnum svokallaða frá BMW. Birgitta og kærasti hennar Benedikt Einarsson, sem alltaf er kallaður Bensi, eiga einn stóran bíl að sögn Birgittu. „Svo finnst mér fínt að eiga einn svona lítinn borgarbíl. Ég hef tekið ástfóstri við þessa bíla og hef yfirleitt fengið mér þá nýjustu, það er fínt að fá smá tilbreytingu,“ segir Birgitta greinilega ánægð með nýja bílinn.

Pavarotti hugsanlega blekktur til að skrifa undir nýja erfðaskrá

Vangaveltur eru uppi um að Luciano Pavarotti hafi verið plataður til að skrifa undir nýja erfðaskrá stuttu áður en hann lést. Í erfðaskránni ánafnar Pavarotti seinni eiginkonu sinni, Nicolettu Mantovani, eignir að virði eins og hálfs milljarðs króna sem söngvarinn átti í Bandaríkjunum. Þá gerði hann þrjár dætur sínar frá fyrra hjónabandi arflausar.

Kryddpíurnar læra súludans

Kryddpíurnar sækja nú stífa tíma í súludansi til að krydda dansatriðin í komandi tónleikaferðalagi sínu. Stúlkurnar læra listina á klúbbnum Soho Revue Bar í London þar sem stripparar og dragdrottningar leika listir sínar við lifandi tónlist öll kvöld.

Slökkviliðsmenn á stjörnufæði í Malibu

Slökkviliðsmenn sem leggja líf og limi í hættu við að bjarga húsum stjarnanna í Hollywood þurfa ekki að svelta, því lúxusveitingastaðurinn Nobu í Malibu hefur ákveðið að leggja sitt af mörkum með því að gefa þeim að borða.

Uppákoma í Leið 13

Farþegar sem tóku Leið 13 í morgun urðu vitni að sérkennilegri uppákomu við Hlemm. Vagninn var nokkuð á eftir áætlun og bílstjórinn, eldri maður, hafði ekið Hverfisgötuna nokkuð greitt. Við bílstjóraskiptin á Hlemmi gáfu þeir tveir sér þó smástund til að slúðra, hvaða slóðar voru ekki mættir í vinnu og svo framvegis.

Rútubílstjóri vill verða ráðuneytisstjóri

Ég tel mig alveg eiga jafnmikið erindi í þetta starf og hinir umsækjendurnir," segir Guðmundur Eyjólfur Jóelsson rútubílstjóri frá Keflavík. Guðmundur er einn tólf umsækjenda um starf ráðuneytisstjóra í landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytinu.

Ljóta Betty hneyksluð

America Ferrera sem leikur Ljótu Betty í samnefndum sjónvarpsþáttum hefur sagt að hún sé yfir sig hneyksluð á því að Hollywoodleikkonum sé lýst sem íturvöxnum, þegar þær séu það alls ekki. Hún segir að alltof mikla áherslu lagða á útlit fólks.

Kaffimálari hefur áhyggjur af heimsmarkaðsverði

Heimsmarkaðsverð á kaffi er nú í hæstu hæðum og lítið útlit fyrir að breyting verði þar á fram á næsta ár. Bergur Thorberg kaffimálari hefur töluverðar áhyggjur af þessari þróun enda er kaffi eitt hans helsta atvinnutæki.

Arnaldur sendir frá sér Harðskafa

Aðdáendur lögregluteymisins Erlends, Sigurðar Óla og Elínborgar, sem eru orðin þjóðkunn úr glæpasögum Arnaldar Indriðasonar, geta tekið gleði sína á ný því þau verða á ferðinni í nýjustu bók Arnaldar sem hlotið hefur nafnið Harðskafi.

Cruise og Travolta áhyggjufullir vegna eldanna

Kvikmyndaleikararnir Tom Cruise og John Travolta hafa lýst sálarangist sinni vegna skógareldanna í Kaliforníu sem hafa orðið til þess að milljón manns hafa flúið heimili sín. Að minnsta kosti einn hefur látið lífið í eldunum sem geisa um svæði í kringum Los Angeles þar sem fjöldi dægurstjarna býr.

Lessing segir árásirnar 11. september ekki svo skelfilegar

Doris Lessing, sem hlaut á dögunum bókmenntaverðlaun Nóbels í ár, segir árásirnar á Bandaríkin þann 11. september 2001 ekki svo skelfilegar í samanburði við hermdarverkastarfsemi IRA á Bretlandi á árum áður.

Pitt og Jolie framleiða sjónvarpsþætti

Brad Pitt og Angelina Jolie ætla að framleiða þáttaröð saman samkvæmt nýjustu heimildum Hollywood Reporter. Þættirnir verða dramatísk saga starfsmanna hjálparstofnana sem vinna á stríðshrjáðum svæðum. Parið verður aðalframleiðandi þáttanna ásamt Scott Burns sem framleiddi óskarsverðlaunamynd Al Gore, The Inconvenient Truth - Óþægilegur sannleikur.

Safaríkar tónlistarsögur

Heimildarmyndir um hljómsveitir eða tónlistar­menn hafa sjaldan eða aldrei verið vinsælli. Myndir um The Rolling Stones, Tom Petty og George Harrison eru allar á leiðinni á hvíta tjaldið, svo ekki sé minnst á gott gengi Heima með Sigur Rós.

Til heiðurs Jónasi Svafár

Dagskrá til heiðurs Jónasi Svafár, skáldi og myndlistarmanni, sem lést árið 2004, verður haldin á fimmtudagskvöld kl. 20 í sal Reykjavíkurakademíunnar, Hringbraut 121. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

Erfiðar tökur hjá Spice Girls

Það gekk á ýmsu þegar Spice Girls komu saman um síðustu helgi til að taka upp kynningarmyndband við nýtt lag sitt, Headlines (Friendship Never Ends).

Toggi bókaður fram að jólum

„Ég er bara með nokkuð stífa dagskrá fram að jólum,“ segir Þorgrímur Þráinsson en óhætt er að segja að mikil spenna ríki fyrir bókinni hans, Hvernig gerirðu konuna þína hamingjusama: Skemmtilegra kynlíf , fallegri samskipti, meira sjálfsöryggi.

Stærri og flottari demantar um þessi jól en oft áður

Íslendingar ætla að gefa stærri og flottari demantshringa en áður fyrir þessi jól. Íslenska þjóðin virðist gripin demantsæði og ekki er lengur óalgengt að gefa demantshring í morgungjöf á tyllidögum eða jafnvel bara sem tækifærisgjöf. Demantar eru enda ágætis fjárfesting og þá er ekki verra að sýna aðeins auðinn.

Aukatónleikar Nýdanskrar

Tvennum aukatónleikum hefur verið bætt við fyrirhugaða tónleika hljómsveitarinnar Nýdanskrar. Sveitin fagnar tuttugu ára afmæli um þessar mundir, og heldur af því tilefni stórtónleika í Reykjavík og á Akureyri.

Með Sigur Rós í London

Hljómsveitin Amiina tekur sér pásu frá tónleikaferð sinni um Evrópu til að spila með Sigur Rós á órafmögnuðum tónleikum í London á morgun, miðvikudaginn 24. október.

Hvert orð satt í Breiðavíkurbók

„Ég er kominn með eintök og það er óneitanlega dálítið sérstakt að sjá nafn sitt í fyrsta skipti á bókatitli,“ segir Bárður Ragnar Jónsson en í dag kemur út bókin Breiðavíkurdrengur: Brotasaga Páls Elísonar. Eins og nafnið gefur til kynna eru þetta minningar Páls frá tíma hans á Breiðavík og einskorðast hún nánast eingöngu við dvölina á betrunarheimilinu sem stóð yfir í rúm þrjú ár.

Sonur sjónvarpsstjörnu drukknaði

Sonur sjónvarpsstjörnunnar Hunter Tylo sem best er þekkt fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum the Bold and the Beautiful drukknaði í sundlaug í Las Vegas. Hann var 19 ára gamall. Michael Tylo yngri var úrskurðaður látinn stuttu fyrir miðnætti á fimmtudag á heimili í úthverfi borgarinnar. Dánardómsstjóri skráði orsök andlátsins af slysförum.

Airwaves: Mugison er rokkskrímsli

Ólafur Páll Gunnarsson, einn helsti poppsérfræðingur landsins, segir að Mugison hafi staðið uppi sem einn helsti sigurvegari Airwaveshátíðarinnar. "Mugison er rokkskrímsli og það er óhætt að segja að hann hafi verið fremstur meðal jafningja á þessari hátíð," segir Óli Palli.

Kvartað yfir hrákanum hans Eiðs Smára

Morgunblaðið birtir í dag lesendabréf frá Guðrúnu Björnsdóttur, Selfossi, sem er ekki par hrifin af framkomu Eiðs Smára Guðjohnsen í landsleiknum á dögunum. „Það var nánast hneisa að sjá Eið Smára hrækja og spýta út úr sér í nærmynd," segir Guðrún og segist nánast hafa átt von á slummunni inní stofu.

Hundruð milljóna í tekjur af Airwaves

Miðbær Reykjavíkur iðaði af lífi alla helgina þegar hátt í fimm þúsund manns lögðu leið sína á tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. Um tvö þúsund hátíðargestir komu erlendis frá en talið er að hátíðin skili nokkur hundruð milljónum af sér í tekjur til hinna ýmsu þjónustuaðila í borginni.

Kid Rock fangelsaður fyrir barsmíðar

Bandaríski tónlistarmaðurinn Kid Rock, fyrrverandi eiginmaður Pamelu Anderson, var handtekinn um helgina fyrir að hafa barið mann á veitingastað í Atlanta.

Skrautleg upptaka hjá Spice Girls

Myndbandsupptaka hjá Spice Girls snérist upp í sannkallaða divu móðursýki enda engin smáegó samankomin í hópnum. Ein þeirra grét stöðugt, önnur stundaði íhugun og sú þriðja hafði aðstoðarkonu stöðugt á hælunum með jarðarber og kampavín.

Sjá næstu 50 fréttir