Lífið

Erfiðar tökur hjá Spice Girls

Kryddstúlkurnar eru komnar saman aftur, en tökur á nýju kynningarmyndbandi gengu allt annað en þægilega fyrir sig. nordicphotos/Getty
Kryddstúlkurnar eru komnar saman aftur, en tökur á nýju kynningarmyndbandi gengu allt annað en þægilega fyrir sig. nordicphotos/Getty
Það gekk á ýmsu þegar Spice Girls komu saman um síðustu helgi til að taka upp kynningarmyndband við nýtt lag sitt, Headlines (Friendship Never Ends).

Kryddstúlkurnar fimm, Emma Bunton, Mel B, Mel C, Geri Halliwell og Victoria Beckham, komu saman á ný í sumar og munu senda frá Greatest Hits-plötu á næstunni, en á henni verða tvö ný lög. Headlines er annað þeirra. Við tökurnar á kynningarmyndbandinu gekk þó á ýmsu og segir heimildarmaður The Sun að tökur hafi dregist fram eftir öllu vegna hegðunar Geri Halliwell, sem fór fram á sérstaka tegund af flöskuvatni og lét tökur sitja á hakanum á meðan hún hugleiddi.

„Geri hægði endalaust á öllu með því að hugleiða og standa í undarlegum trúarlegum athöfnum,“ segir hann. „Hlutunum seinkaði mjög mikið. Leikstjórinn reif í hár sitt og hótaði því að fara. Stelpurnar voru svo þreyttar og Emma grét á meðan tökurnar drógust enn,“ segir hann, en tökur stóðu yfir til klukkan þrjú um nótt.

Victoria Beckham hafði líka sérþarfir á staðnum og fékk aðstoðarmann til að elta sig um tökustað með ávaxtabakka og kampavín. Mel B ku hafa varið bróðurpartinum úr deginum í að „væla yfir flugþreytu“ eftir að hafa flogið frá Los Angeles, og Mel C var að því komin að bugast.

Headlines kemur út 19. nóvember næstkomandi en stúlkurnar leggja upp í tónleikaferð í desember, ef allt gengur að óskum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.