Fleiri fréttir

Dumbledore er hommi

Verndari og lærifaðir Harrys Potters, prófessor Dumbledore, er hommi. Höfundurinn J.K. Rowling upplýsti þetta í Carnegie Hall í New York á föstudaginn.

Högni vill aftur til Ameríku

Högni Stefánsson öðru nafni Cat Stevens öðru nafni Yusuf Islam vonast til að komast til Bandaríkjanna í desember næstkomandi.

Höfði enn opinn fyrir Hollywood

Einhver bið verður á því að kvikmynd um leiðtogafund Ronald Reagan og Mikhail Gorbatsjov í Höfða árið 1986 verði gerð.

Verðlaunum rignir á meginlandinu

Þegar tími lægðanna hefst hér í norðrinu er kominn tími á bókmenntaverðlaun á meginlandinu: Nóbelinn er rétt afstaðinn og Doris Lessing hló þegar hún fékk tíðindin: hún væri búin að fá öll verðlaun Evrópu og þessi breyttu engu um hennar hagi, hún væri upptekin við skriftir.

Sterkar tilfinningar á Syndum feðranna

Heimildarmyndin Syndir feðranna eftir þá Ara Alexander og Bergstein Björgúlfsson var frumsýnd í Háskólabíói á fimmtudagskvöldið. Fjölmenni mætti á frumsýninguna og kallaði myndin fram sterkar tilfinningar hjá mörgum.

Nintendo áhugasamt

„Þetta er allt á byrjunarreit en við höfum átt nokkra fundi með forsvarsmönnum Nintendo,“ segir Magnús Scheving, framkvæmdastjóri Latabæjar.

Sonur Bold and the Beautiful stjörnu látinn

Sonur leikkonunnar Hunter Tylo lést í dag. Tylo er landsmönnum að góðu kunnug fyrir leik sinn í sápuóperunni The Bold and the Beautiful en þar fer hún með hlutverk Dr. Taylor Marone. Sonur Tylo, Michael, er talinn hafa drukknað á heimili fjölskyldu sinnar í Nevada. Hann var 19 ára. Blaðafulltrúi leikkonunnar staðfesti þetta síðdegis í dag.

Goodman í meðferð

John Goodman hefur viðurkennt að hafa farið í áfengismeðferð á meðferðarstofnun í Bandaríkjunum. Leikarinn sagði í yfirlýsingu að hann hefði af sjálfsdáðum tekið nauðsynleg skref til að halda sér þurrum; „...það sem eftir er af lífi mínu.“

Borat orðinn pabbi

Sacha Baron Cohen, sem þekktastur er fyrir túlkun sína á fréttamanninum Borat, eignaðist á miðvikudaginn sitt fyrsta barn með leikkonunni Isla Fisher. Hin ástralska leikkona átti í Los Angeles og heilsast bæði móður og barni vel. Cohen og Fisher trúlofuðust árið 2004 en eiga enn eftir að ganga saman að altarinu.

Síðasti meðlimur Rottugengisins látinn

Grínistinn Joey Bishop sem öðlaðist frægð sem meðlimur Rottugengisins með Frank Sinatra, er látinn 89 ára að aldri. Hann var eini eftirlifandi meðlimur gengisins. Árið 1984 lést Peter Lawford, Sammy Davis Junior árið 1990, Dean Martin lést árið 1995 og Frank Sinatra 1998. Bishop lést á heimili sínu á Newport Beach á miðvikudagskvöld.

Goðsögn snýr aftur

Með því að vera trúr stíl sínum hefur Tony Bennett tekist að snúa enn og aftur til vinsælda. Á ferli söngvarans sem nú er áttræður, hefur hann oft missti vinsældir vegna gagnrýni fyrir söngstíl, fagmennsku og ást sína á jassi. Seint á sjötta og sjöunda áratugnum, á miðjum áttunda áratugnum og undir lok hans var hann gagnrýndur fyrir að vera ekki nógu svalur.

Amy Winehouse handtekin í Noregi

Ófarir bresku söngkonunnar Amy Winehouse virðast engan enda ætla að taka. Í gær var hún handtekin á hótelherbergi sínu í Björgvin í Noregi fyrir vörslu fíkniefna. Í herberginu fundust sjö grömm af maríjúana.

Mest aðsókn var á The Simpsons the Movie

Aðsóknarmesta mynd hérlendis er The Simpsons Movie en ekki Astrópía eins og haldið hefur verið fram í fréttum. 55.937 manns sáu Simpsons. Raunar er Astrópía í fimmta sæti yfir aðsóknarmestu myndir ársins og óumdeilanlega sú íslenska mynd sem mesta aðsókn hefur fengið en 44.021 manns hafa séð myndina.

Söngur Geirs Haarde styrkir MS-samtökin

Hin nýja plata South River Band, Allar stúlkurnar, er væntanleg til landsins í næstu viku og verður sett í sölu á netinu. 500 kr. af hverju seldu eintaki munu renna til styrktar MS-samtökunum. Sem kunnugt er af fréttum á Vísi mun Geir H. Haarde forsætisráðherra syngja lagið I Walk The Line eftir Johnny Cash á plötunni en lagið er í þýðingu Hjálmars Jónssonar dómkirkjuprests.

Britney bannað að hitta börnin

Dómari í umgengnis- og forsjármáli Britney Spears og Kevins Federline yfir tveimur börnum þeirra hefur úrskurðað að Britney fái ekki að sjá börnin þar til hún hlýti dómsúrskurði. Ekki er ljóst hvað átt var við með orðalaginu.

Lindsay ekki trúlofuð

Fréttir OK! glanstímaritsins af trúlofun Lindsay Lohan og snjóbrettakappans Riley Giles virðast vera stórlega ýktar. Fjölmiðlafulltrúi Lohan vinnur nú grimmt í því að leiðrétta þessar fréttir sem farið hafa sem eldur í sinu síðan þær birtust fyrr í vikunni. Tilefna fréttanna var forláta demantshringur sem Lohan sást bera á baugfingri en fjölmiðlafulltrúinn staðhæfir að hann sé gjöf frá pabba Lindsay.

Liz Hurley er nískupúki

Elisabeth Hurley og eiginmaður hennar eru sökuð um nirfilshátt vegna þess að þau greiddu ekki krónu til kirkjunnar þar sem þau voru gefin saman. Vanalega er kostnaður við kór, organista og prest um 130 þúsund krónur. Hurley giftist Arun Nayar í smákirkju við Winchcombe í Gloucestershire í mars síðastliðnum.

Heather krefst sex milljarða

Viku eftir að Paul McCartney og Heather Mills eyddu átta og hálfum tíma í að komast að samkomulagi um eignaskipti fyrir dómi, hefur parinu enn ekki enn tekist að ná samkomulagi. Í byrjun vikunnar voru vísbendingar um að tekist hefði samkomulag um þriggja milljarða króna greiðslu til Heather. Nýjar fregnir herma hins vegar að hún hafi hækkað fjárhæðina um helming og gefið fyrrverandi manni sínum frest til föstudags til að svara. Annars verði málið útkljáð fyrir dómi.

Póker kom Pamelu upp að altarinu

Pamela Anderson segir að hún og Rick Salomon, hafi ákveðið gifta sig á meðan þau spiluðu póker. Þau höfðu verið vinir í ein sautján ár áður en þau ákváðu að ganga upp að altarinu.

Oprah í vandræðum með skjaldkirtilinn

Spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey hefur opnað sig um skjaldkirtilssjúkdóminn sem hefur verið að hrjá hana en hann varð meðal annars til þess að hún þyngdist um tíu kíló.

Óþekktur leikari fær hlutverk Kafteins Kirk

Lítt þekktur leikari Chris Pine að nafni hefur verið valinn til að leika Kaftein Kirk í nýju Star Trek myndinni. Þá mun leikarinn Karl Urban sem þekktur er fyrir hlutverk sitt sem Eomer í Hringadrottinssögu leika læknirinn Leonard "Bones" McCoy.

Kynlífsmyndir af verðandi Danaprinsessu

Svissneski sjentilmaðurinn Anthony D. sem er fyrrverandi kærasti Marie Cavallier verðandi Danaprinsessu hefur nú upplýst að hann eigi kynlífsmyndir og myndbönd af þeim, sem "ekki þoli dagsins ljós," eins og hann orðar það.

Græna barnið hennar Berry

Hin 41 árs gamla Halle Berry, sem er komin rúma fjóra mánuði á leið, nýtur meðgöngunnar í botn og ætlar einungis að kaupa umhverfisvæna hluti handa fyrsta barni sínu.

John Voight kominn með nóg af árásum barna sinna

Leikarinn Jon Voight hefur svarað gagnrýni sonar síns opinberlega en sonur hans James Haven segir í samtali við Marie Claire að Voight hafa látið móður hans ganga í gegnum andlegar kvalir svo árum skipti.

Hallgrímur Helgason slær í gegn í Danmörku

Skáldsagan Rokland eftir Hallgrím Helgason fær geysilega góða dóma í Danmörku um þessar mundir. Bókin kom nýverið út í danskri þýðingu Kim Lebek undir heitinu Stormland.

Alræmd tískulöggga á götum á Reykjavíkur

Tískulöggan alræmda, Yvan Rodic, er mætt aftur til Íslands. Rodic vakti athygli á Airwaves hátíðinni í fyrra en þá myndaði hann fólk á förnum vegi og birti af því myndir á heimasíðu sinni. Heimasíða Rodic, facehunter.blogspot.com, er ein þekktasta tískubloggsíða heims en Rodic myndar meðal annars fyrir tímaritin Elle og GQ.

Gyllenhaal vill ekki predika

Leikarinn Jake Gyllenhaal segist forðast það eins og heitann eldinn að leika í kvikmyndum með sterkum boðskap, þrátt fyrir að hafa leikið í myndum á borð við Brokeback Mountain og Rendition.

Ferrera flytur af öryggisástæðum

America Ferrera, leikkonan úr þáttunum um Ljótu Betty, neyddist til að flytja af heimili sínu í Hollywood þar sem framleiðendum þáttanna fannst aðdáendur eiga of auðvelt með að nálgast hana.

Bloom yfirheyrður vegna áreksturs

Leikarinn Orlando Bloom þarf að mæta til yfirheyrslu hjá lögreglunni í Los Angeles eftir að hann klessti bíl vinar síns um síðustu helgi. Bloom, sem fór á kostum í myndunum um sjóræningjana í Karabíahafinu, hafði verið úti á galeiðunni í Hollywood með félögum sínum þegar hann keyrði á kyrrstæða Porche-bifreið.

Kylie Minogue þakkar aðdáendum stuðning

Ástralska söngkonan Kylie Minogue þakkaði aðdáendum sínum sérstaklega fyrir stuðning þeirra þegar heimildarmynd um hana var frumsýnd í London í gær. Myndin, White Diamond, fjallar um baráttu Minogue eftir að hún greindist með brjóstakrabbamein í fyrra.

Lennon vitjaði sonar síns

Julian Lennon var heldur betur brugðið þegar hann fékk vægast sagt óvænta kveðju frá föður sínum 25 árum eftir dauða hans. Julian, sem vinnur nú að kvikmynd í Ástralíu,

Batnandi Paris er best að lifa

Paris Hilton segist enn staðráðin í því að að breyta lífi sínu til hins betra í stað þess að eyða því í næturklúbbabrölt. Paris, sem hefur verið tíður gestur á helstu skemmtistöðunum Hollywood undanfarin ár og þurfti meðal ananrs að dúsa í 23 daga í fangelsi fyrir ölvunarakstur,

Sífellt minna að gera hjá Pfeiffer

Stardustleikkonan Michelle Pfeiffer segir að tilboðum um að leika í kvikmyndum fækki áþreifanlega eftir því sem aldurinn færist yfir. Leikkonan sem kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1979, þá 21 árs, segir í samtali við BANG Showbiz að hún fái mun færri handrit í hendurnar nú þegar hún er að verða fimmtug.

Federline með óhreint mjöl í pokahorninu

Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður Britney Spears, er sagður hafa reykt maríjúana á meðan tökur á nýjum sjónvarpsþætti stóðu yfir. Hinn 29 ára gamli Federline, sem hefur átt í hatrammri forræðisdeilu við Spears, mun koma fram sem gestaleikari í unglingaþáttunum One Tree Hill.

Júróvisjónstjarna lést í bílslysi

Einn allra vinsælasti poppsöngvari Makedóníu, Tose Proeski, lést í dag eftir umferðarslys í Króatíu. Proeski tók þátt í úrslitakeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2004 og var dáður um allan Balkanskaga.

Fingraför tekin af Britney

Britney Spears mætti í gær á lögreglustöð í Los Angeles þar sem henni var birt kæra í tengslum við umferðaróhapp sem hún varð valdur að þann sjötta ágúst síðastliðinn. Spears er gefið að sök að hafa keyrt á kyrrstæðan bíl á bílastæði en látið sig síðan hverfa. Ljósmyndarar sem fylgdu henni eftir náðu myndum af atvikinu.

Dagur eins og sannkölluð Armani fyrirsæta

Þeir Dagur B. Eggertsson og Björn Ingi Hrafnsson hafa nú gengið í eina sæng og ætla framvegis að sammælast um hin ýmsu borgarmál. Það er ekki amalegt að fá tvo fjallmyndarlega karlmenn í brúnna sem auk þess tóna vel við hvorn annan með dökku yfirbragði sínu.

Konur í Hollywood heiðraðar

Sjö konur voru í gær heiðraðar á árlegri samkomu Elle tímaritsins, ,Women in Hollywood, sem haldin var í Los Angeles. Sex leikkonur og einn leikstjóri hlutu heiðurinn í ár og var sú yngsta fjórtán ára en sú elsta 82.

Hudson vill fá Wilson aftur

Eftir að gamanleikarinn Owen Wilson reyndi sjálfsmorð fyrir skemmstu gerði fyrrverandi kærasta hans, Kate Hudson, sér grein fyrir því hversu mikið hún elskar hann og vill nú fá hann aftur að því er tímaritið People greinir frá.

Mel B og Eddie Murphy mætast í dómssal

Kryddpían Mel B á stefnumót við barnsföður sinn Eddie Murphy um miðjan næsta mánuð og fer það fram í dómshúsi einu í Los Angeles. Parið fyrrverandi talast almennt ekki við en ætlunin er að ræða meðlagsfyrirkomulag og fleira í tengslum við sex mánaða dóttur þeirra Angel Iris.

Ekki heimsk eins og Lindsay og Paris

Partýgellan og American Pie leikkonan Tara Reid segir fólk aldrei koma til með að lesa fréttir af því að hún hafi komist í kast við lögin. „Ég er ekki heimsk eins og Lindsay Lohan og Paris Hilton,“ segir hún kokhraust.

Aniston vildi helst vera Oprah

Þó svo að Jennifer Aniston þyki af mörgum nánast fullkomin þá á hún sér drauma eins og aðrir og myndi helst vilja vera sjónvarpsstjarnan Oprah Winfrey ef hún mætti skipta í einn dag. Í viðtali við Harper's Bazar segist hún líka geta hugsað sér að vera Bondstúlka og ef hún ætti að starfa fyrir ríkisstjórnina myndu hún helst vilja gegna hlutverki njósnara.

Sjá næstu 50 fréttir