Fleiri fréttir

Stjórn þriggja flokka líkleg í Hollandi

Þingkosningarnar í Hollandi virtust ætla að verða hnífjafnar samkvæmt fréttum í gærkvöldi. Frjálslynda þjóðarflokknum og Verkamannaflokknum, stærstu flokkunum til hægri og vinstri, var spáð jafnmörgum þingsætum, eða 31 af 150 á hollenska þinginu.

Ný evrópsk herflutningavél

Hin nýja herflutningavél Airbus verksmiðjanna A400M er nú loks komin á vængina eftir miklar tafir og eftir að hafa farið gríðarlega framúr kostnaðaráætlun.

Minntust fórnarlamba morðingja

Mannfjöldi kom saman í Egremont í Englandi í dag til þess að minnast þeirra sem leigubílstjórinn Darrick Bird myrti í síðustu viku.

Mikið var

Margrét Thatcher barónessa og fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands heimsótti David Cameron núverandi forsætisráðherra í Downing stræti 10 í gær.

Konur í sókn í norskum fyrirtækjum

Konum í stjórnunarstöðum í Noregi hefur fjölgað um 41 prósent frá því á síðasta ári að sögn norska blaðsins Dagens Næringsliv.

Kjördagur runninn upp í Hollandi

Kjördagur er runninn upp þingkosningunum í Hollandi en kjörstaðir verða opnaðir klukkan 10 að staðartíma eða klukkan 8 að okkar tíma.

Drög fjárlaga kynnt fyrirfram

Brussel Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins hafa komið sér saman um nýtt fyrirkomulag, sem á að tryggja að fjárlög einstakra ríkja á evrusvæðinu ógni ekki fjármálastöðugleika alls evrusvæðisins.

Landamæri Gasa opin áfram

Egypskur embættismaður fullyrti í gær að landamæri Egyptalands að Gasaströnd verði opin áfram um óákveðinn tíma, en þau voru opnuð eftir að Ísraelar réðust í síðustu viku á skipalest frá Tyrklandi sem átti að rjúfa einangrun Gasa.

Ganga ekki á bak orða sinna

Ákveðið hefur verið að Eistland taki upp evruna í byrjun næsta árs, þrátt fyrir vaxandi áhyggjur af framtíð evrunnar. Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins samþykktu þetta á fundi sínum í Brussel.

Hnúfubakar mynda vinatengsl

Hnúfubakskýr hittast árlega í St. Lawrence flóa undan Kanada til að synda um og leita að fæðu saman. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem birt var í Journal of Behavioral Ecology and Sociobiology.

Tvö tonn af kókaíni gerð upptæk í Gambíu

Að minnsta kosti tvö tonn af kókaíní voru gerð upptæk í Gambíu í Afríku. Kókaínið var á leið til Evrópu í sölu en götuverðmæti þess er um milljarður dollara, segir í frétt BBC.

Sorgleg sjón við Mexíkóflóa

Olíulekinn á Mexíkóflóa hefur haft skelfileg áhrif á dýralíf við strendur Bandaríkjanna. Talið er að hann eigi eftir að drepa milljónir dýra af mörgum tegundum.

Í stærra lagi

Þessi mynd af mótor á Airbus 380 farþegaþotu gefur kannski betri hugmynd um stærð hennar en margar aðrar. Hún var tekin á flugsýningu í Þýskalandi.

Nei nei ÞETTA er upp

Flugsýningar eru vinsælar um allan heim og það þykir sérstaklega tilkomumikið að fá orrustuþotur í heimsókn.

Passið ykkur á boltanum

Breska utanríkisráðuneytið hefur séð ástæðu til þess að skilgreina þá hjálp sem knattspyrnuunnendur geta og geta ekki fengið á heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku.

Opinberir starfsmenn í verkfall á Spáni

Opinberir starfsmenn á Spáni hafa boðað allsherjarverkfalli í dag til að mótmæla áformum stjórnvalda um mikinn niðurskurð á ríkisfjárlögum.

Miður sín og furðu lostnir

Ættingjar leigubílstjórans Derricks Bird, sem skaut tólf manns á norðvestanverðu Englandi í síðustu viku, segjast ekkert skilja í því hvað varð til þess að morðæðið rann á manninn.

Olíuhreinsunin tekur nokkur ár

Yfirmaður bandarísku strandgæslunnar telur að það muni taka nokkur ár að hreinsa upp votlendi og önnur heimkynni vegna olíulekans á Mexíkóflóa. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Nýr iPhone kynntur

Apple kynnti í kvöld nýjan iPhone farsíma, þann fjórða í röðinni. Hann er 24% þynnri en forverinn.

Íranar boða herskipavernd til Gaza

Aðstoðarmaður æðsta trúarleiðtoga Írans segir að Byltingarverðir landsins séu reiðubúnir að veita skipum hervernd sem reyna að rjúfa hafnbann Ísraels á Gaza ströndinni.

Voru múslimar á undan?

Við segjum frá því í frétt annarsstaðar á síðunni að múslimar í Bretlandi hefðu sótt sér innblástur til Íslands til þess að laga ímynd sína.

Vildu úthýsa ófrískri íslenskri konu

Dönsk yfirvöld hugðust vísa ófrískri íslenskri konu úr landi í fyrra vegna þess að hún þáði opinbera aðstoð. Danskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að yfirvöld þar í landi hafa vísað 46 Norðurlandabúum úr landi á síðust sex árum þrátt fyrir samnorrænar reglur um að Norðurlandabúar geti sest að á öðrum Norðurlöndum og þegið félagslega aðstoð í rikinu sem þeir setjast að í.

Fann börnin á Facebook eftir fimmtán ár

Í fimmtán ár hafði móðir í Kaliforníu leitað sonar síns og dóttur. Faðir þeirra hvarf með þau að heiman árið 1995 og síðan hafði hún hvorki séð þau né heyrt.

Wikileaks uppljóstrarinn handtekinn

Bandarísk yfirvöld hafa handtekið starfsmann í leyniþjónustu hersins sem staðsettur var í Írak en hann er grunaður um að hafa látið Wikileaks síðunni í té gögn, meðal annars myndbandið sem sýnir þyrluárás í Bagdad árið 2007 þar sem fjöldi óbreyttra borgara lét lífið, en Ríkissjónvarpið sýndi myndbandið fyrst miðla.

Deilt um heimapössun fatlaðra barna í Gentofte

Deilur hafa blossað upp í sveitarfélaginu Gentofte í Danmörku vegna greiðslna til þeirra foreldra sem velja að passa fötluð börn sín heima við í stað þess að senda þau á stofnanir.

Kærustu Carls Svíaprins ekki boðið í brúðkaup Viktoríu

Sænska konungsfjölskyldan er aftur komin í sviðsljós fjölmiðla á neikvæðan hátt, nú vegna fregnar um að kærustu Carl Philip Svíaprins sé ekki boðið í brúðukaup stóru systur hans Viktoríu prinsessu sem haldið verður seinna í mánuðinum.

Áhrif morgunbollans tálsýn

Örvandi áhrif kaffis á líkamann er blekking. Það eykur ekki árvekni fólks heldur eykur taugaspennu og kvíðatilfinningu. Þetta er niðurstaða breskrar rannsóknar sem gerð var á 379 einstaklingum.

Sjá næstu 50 fréttir