Fleiri fréttir

Ísraelar gera grín að fórnarlömbunum

Fjölmiðlaskrifstofa ísraelska forsætisráðuneytisins sendi fyrir slysni tölvupóst með tengil á myndband þar sem gert er grín að þeim sem voru um borð í skipalestinni sem ísraelski sjóherinn stöðvaði í síðustu viku. Skipalestin var á leið með hjálpargögn til Gazasvæðisins og létust níu sjálfboðaliðar í árás Ísraelsmanna.

Áhöfn Rachel Corrie vísað úr landi

Öllum 19 áhafnarmeðlimum flutningaskipsins Rachel Corrie verður vísað úr landi í dag. Áhöfnin var handtekinn í gær en hún ætlaði að reyna sigla flutningaskipinu til Gaza og koma hjálpargögnum til íbúa þar.

Palin: Umhverfisverndarsinnar bera ábyrgð á olíulekanum

Sarah Palin, varaforsetaefni Repúblíkana í síðustu forsetakosningum, segir að umhverfisverndarsinnar beri ábyrgð á olíulekanum á Mexíkóflóa. Andstaða þeirra við olíuboranir á landi hafa neytt stjórnvöld og einkafyrirtæki til ráðast í afar áhættusöm verkefni á miklu dýpi, að mati Palin. Hún kom þessum skilaboðum á framfæri í gegnum Facebook.

Tveir breskir hermenn féllu í Afganistan

Tveir breskir hermenn létu lífið í átökum við talibana í Helmandhéraði í suðurhluta Afganistan í gær. Alls hafa 292 breskir hermann fallið í Afganistan síðan stríðið hófst árið 2001.

Hermenn komnir um borð í hjálparskipið

Ísraelski sjóherinn hefur ráðist um borð í skip friðarsinna sem var á leið með birgðir til Gaza og siglir því nú til Ashdod Port, sem er helsta lestunarhöfn í Ísrael. Ekkert hefur heyrst frá friðarsinnunum frá því Ísraelsher tók skipið yfir. Samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar hafði skipið Rachel Corrie ekki svarað fjórum skipunum hersins um að leggjast að bryggju í Ísrael.

Meintur morðingi í haldi

Lögreglan í Belgíu hefur handtekið mann sem hún hefur grunaðan um að hafa skotið dómara og aðstoðarmann hennar til bana þegar þau voru að koma úr réttarsal í Brussel á fimmtudagsmorgun.

Ísraelar reyna að stöðva för friðarsinna

Ísraelski sjóherinn reynir nú að stöðva för friðarsinna um borð í hjálparskipi á leið til Gaza. Samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar hefur skipið Rachel Corrie ekki svarað fjórum skipunum hersins um að leggjast að bryggju í Ashdod Port, sem er helsta lestunarhöfn í Ísrael.

Kemur sér upp öskunemum

Breska flugfélagið EasyJet hyggst setja sérstakan búnað í flugvélar sínar sem getur numið öskuský frá eldfjöllum.

Hafa stöðvað mesta lekann

Seigfljótandi olía barst á norðvesturstrendur Flórídaskaga í gær, hálfum öðrum mánuði eftir að sprenging varð í olíuborpalli BP í Mexíkóflóa.

Ætla að mynda hægristjórn

Vaclav Klaus, forseti Tékklands, fól Petr Necas, leiðtoga íhaldsmanna, að mynda stjórn í landinu í gær, nærri viku eftir að þingkosningar voru haldnar.

Eftirlaunaaldur kvenna of lágur

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins krefst þess að ítölsk stjórnvöld hraði hækkun eftirlaunaaldurs kvenna.

Þarf að endurvekja traustið

Japanska þingið kaus í gær Naoto Kan næsta forsætisráðherra landsins. Forveri hans, Yukio Hatoyama, sagði af sér í vikunni þegar ljóst var orðið að honum tækist ekki að standa við stóru kosningaloforðin, svo sem að losa íbúa eyjunnar Okinawa við óvinsælan flugvöll Bandaríkjahers.

Fundu stjörnu sem er heill demantur

Stjarnfræðingar hafa fundið stjörnu sem er heill demantur. Stjarna þessi glitrar á himinhvolfinu í 50 ljósára fjarlægð frá jörðinni.

Írskt flutningaskip á leið til Gaza

Flutningaskip í írskri eigu er nú á leið til Gaza svæðisins með 500 tonn af sementi sem nota á til að endurbyggja skóla, heimili og opinberar byggingar sem eyðilagðar hafa verið í átökum við Ísraelsmenn.

Naoto Kan næsti forsætisráðherra Japan

Japanski Lýðræðisflokkurinn hefur valið Naoto Kan sem næsta forsætisráðherra Japans en sá fyrri, Yukio Hatoyama sagði óvænt af sér í vikunni eftir deilur um framtíð bandarísku herstöðvarinnar á eyjunni Okinawa.

BP tókst að koma tappa á olíulekann í Mexíkóflóa

BP olíufélaginu hefur tekist að koma fyrir sérhönnuðum tappa á olíuleiðsluna sem lekur olíu út í Mexíkóflóa. Aðgerð sem þessi hefur aldrei verið reynd áður en nokkur tími þarf að líða til að sjá hvort hún hafi borið árangur.

Þúsundir mættu í jarðarför

Til Tyrklands komu í fyrrinótt alls 466 þeirra 700 manna sem voru um borð í skipalestinni sem Ísraelar réðust á í vikunni. Flestir þeirra eru Tyrkir, en fimmtíu af öðru þjóðerni.

Tilefni morðanna er enn hulin ráðgáta

Rannsóknarlögreglan í Bretlandi hefur reynt að finna vísbendingar um hvað varð til þess að Derrick Bird, 52 ára leigubílstjóri í norðvesturhluta Englands, tók upp á því að skjóta á fólk meðan hann ók um þorp og sveitir á miðvikudagsmorgun.

Reyndi að gleypa eista gamals kærasta

Tuttugu og fjögurra ára gömul bresk kona hefur verið dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að rífa annað eistað af gömlum kærasta sínum.

Yfirgáfu blindan félaga á Everest

Tuttugu og átta ára gamall breskur fjallgöngumaður lést á Everest fjalli í gær eftir að hann varð blindur á niðurleiðinni.

Sjóræningjar dæmdir til dauða

Sex sómalskir sjóræningjar voru dæmdir til dauða í Yemen í dag. Sex aðrir voru dæmdir til langrar fangelsisvistar.

Almenningur sniðgengur bensínstöðvar BP

Bandarískir neytendur eru byrjaðir að sniðganga bensínstöðvar BP olíufélagsins í miklum mæli og í sumum borgum landsins eru um skipulagaðar aðgerðir að ræða.

Forseti virðist hafa skipt sér af

Upptökur úr flugstjórnarklefa pólsku farþegaþotunnar, sem fórst með helstu ráðamönnum þjóðarinnar í Rússlandi í apríl, leiða í ljós að flugmenn vélarinnar töldu óráðlegt að lenda.

Í einangrun í átján mánuði

Sex menn ætla í dag að fara inn í gluggalausan klefa í Rússlandi, loka á eftir sér og dveljast þar næstu 520 dagana.

Hatoyama segir af sér embætti

Japan, AP Yukio Hatoyama, forsætisráðherra Japans, sagði af sér í gær eftir aðeins átta mánaða setu í embættinu. Afsögn hans gæti lamað japönsk stjórnmál eða leitt til stjórnarskipta.

Baðst afsökunar á Facebook

„Það var ekki í lagi að segjast vilja líf sitt aftur,“ segir Tony Hayward, forstjóri BP olíufyrirtækisins á Facebook.

Sprengja úr heimsstyrjöldinni drap þrjá

Þrír þýskir sprengjusérfræðingar létu lífið í dag þegar sprengja úr síðari heimsstyrjöldinni sprakk meðan þeir voru að reyna að gera hana óvirka.

Lík breska byssumannsins fundið

Búið er að finna lík af manni sem talinn er hafa skotið að minnsta kosti fimm til bana í Cumbria héraði í Bretlandi í dag.

Mikil leit gerð að leigubílstjóra eftir skotárás á Englandi

Breska lögreglan leitar nú manns sem grunaður er um að hafa skotið fjölda fólks í Cumbria héraði á Englandi í morgun. Staðfest hefur verið að nokkir hafi látist í árásinni og telja breskir miðlar að fjórir hið minnsta liggi í valnum, meðal annars í bænum Whitehaven. Hinn grunaði, leigubílstjórinn Derrick Bird, 52 ára, er talinn hafa ekið um í bifreið sinni og skotið á fólk af handahófi.

Sjá næstu 50 fréttir